Skessuhorn - 25.07.2018, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚlÍ 201812
Fornbílaklúbbur Íslands efndi í
sunnudagsbíltúr síðastliðinn sunnu-
dag og var stefnan tekin í Borg-
arfjörðinn að þessu sinni. Fyrst á
dagskrá var heimsókn í Samgöngu-
safnið í Brákarey þar sem félagar í
Fornbílafélagi Borgarfjarðar tóku á
móti gestunum. Eftir dágóða við-
dvöl á safninu var svo lagt í hann
fram í Hálsasveit að Hraunfossum
og höfðu þá bæst við í hóp ferða-
langa nokkrir FBF-félagar á sex
bílum. Alls voru fararskjótar því um
20 af ýmsum gerðum og aldri. Kíkt
var í skúra hjá Sæmundi í Brák-
arey, Steina í Hátúni og hjá Jak-
obi á Hömrum í Reykholtsdal. Vel
heppnuð ferð á góðum degi, sem
aukinheldur var tiltölulega þurr.
jgg
Nú er tími íslensku jarðarberj-
anna og garðyrkjubændur í landinu
vinna hörðum höndum við að tína
ber, vigta í öskjur og koma þeim
til neytanda við fyrsta tækifæri. Á
Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði
búa hjónin og garðyrkjubændurn-
ir Einar Pálsson og Kristjana Jóns-
dóttir sem reka garðyrkjustöð-
ina Sólbyrgi sem er á um tíu hekt-
ara landi. Blaðamaður Skessuhorns
kíkti í heimsókn til þeirra í vikunni
til að ræða um uppskeruna í ár.
Kuldagallinn innan
seilingar
Jarðaberjaræktun að Sólbyrgi hófst
fyrir alvöru árið 2013 en áður, þeg-
ar hjónin festu kaup á rekstrinum
árið 2008, voru þar nær eingöngu
ræktaðar gulrætur. Í dag eru aðal-
lega ræktuð jarðarber en einnig
má finna kirsuberjatómata, salat og
kryddjurtir. Nú er háuppskerutími
hjá hjónunum en uppskeran kemur
heldur seinna þetta árið. „Það fór
allt í köku hérna í vetur út af veðr-
inu. Á einni nóttu brotnuðu 500
rúður og hérna inni snjóaði úr öll-
um áttum,“ segir Einar og bendir
inn í gróðurhúsið. „Þetta tafði okk-
ur og við byrjuðum að tína í júní en
ekki í apríl eins og við erum vön að
gera,“ segir hann, en er þó bjart-
sýnn. „Það var bara farið beint í
að þrífa upp glerið og laga húsið.
Við erum líka búin að lýsa töluvert
meira í maí og júní heldur en við
gerðum í febrúar og mars,“ bætir
hann við og vitnar í sólarlitla vor-
og sumarmánuði. „Yfirleitt í maí þá
geng ég frá kuldagallanum og nota
hann ekkert fyrr en í september eft-
ir sumarið. En miðað við tíðarfarið
þetta árið þá er ég með gallann inn-
an seilingar,“ segir hann hálf hlæj-
andi.
Vilja taka á móti
ferðamönnum
Í Sólbyrgi eru sex gróðurhús,
fimm undir jarðarberjaræktun og
eitt með allskonar ræktun eins og
til dæmis salat, gúrkur og paprik-
ur. „Það er gaman að hafa eitt húsið
undir allskonar ræktun. Þó svo að
það sé gaman í jarðarberjunum þá
hjálpar að geta stokkið í eitthvað
öðruvísi svo dagarnir verða ekki of
einhæfir,“ segir Kristjana. „Okk-
ur langar nefnilega að færa okkur
yfir í ferðaþjónustuna með rækt-
uninni,“ bætir Einar við. „Hug-
myndin er að taka á móti ferðafólki
tvisvar til þrisvar á dag í húsinu þar
sem við erum með þessa „bland í
poka“ ræktun og segja fólkinu frá
sögunni hérna og fræða það um
íslenska ræktun. Að auki myndu
hóparnir fá að smakka jarðarber
með rjóma í litlum boxum. Fyrir
flesta er þetta mikil upplifun að fá
að koma í svona gróðurhús.“ Með
þessari viðbótar þjónustu vonast
hjónin til að ná auka tekjum inn í
reksturinn. „Garðyrkja ein og sér
getur verið svolítið basl og því telj-
um við það hjálpa að hafa eitthvað
tengt ferðaþjónustunni með og við
erum spennt að sjá hvernig þetta
þróast,“ segir Einar bjartsýnn.
Áhrif Costco
Talsverður samdráttur var í sölu
á íslenskum berjum og grænmeti
þegar Costco kom til landsins fyr-
ir um ári síðan en margt af því hef-
ur gengið til baka og eru Kristjana
og Einar ekki með stórar áhyggjur
af því heldur líta tilveru Costco já-
kvæðum augum frekar en eitthvað
annað. „Þetta Costco dæmi ýtir
bara undir neyslu og það er jákvætt
fyrir okkur. Við erum aldrei að fara
að keppa í verði, það er bara ekki
hægt. Í staðinn snýst þetta um gæð-
in. Hérna notum við bara lífræn-
ar varnir, flugur og hreint vatn til
að tryggja þessi gæði,“ segja þau að
endingu. glh
Háuppskerutími
jarðarberjanna
Garðyrkjubændurnir Kristjana Jónsdóttir og Einar Pálsson.
Notast er eingöngu við lífrænar varnir,
flugur og hreint vatn til að tryggja
gæði á íslenskum jarðarberjum.
Kristjana tínir berin af plöntunum í
öskju.
Á fornbílum í reisu um Borgarfjörð
Gestir komnir í hlað í Brákarey.
Ferðamönnum við Hraunfossa þóttu farkostirnir forvitnilegir.
Höfðinginn í hópi farkosta Plymouth árg. 1947 og auðvitað er eigandinn Kjartan
Friðgeirsson höfðingi einnig.
Uppgerð grind úr FORD A hjá Jakobi á Hömrum (A-Fordarnir voru
einnig kallaðir Nýi Ford og þá varð T-Fordinn að Gamla Ford).
Nokkrir úr hópi ferðalanganna.
Sitthvað að sjá og skoða í Hátúni. Í hlaði á Hömrum.