Skessuhorn - 25.07.2018, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚlÍ 201824
Seglskútan Pan Orama lá við fest-
ar í Grundarfjarðarhöfn mánudag-
inn 23. júlí og er þetta í annað sinn
sem hún kemur til Grundarfjarðar.
Skútan kom einnig 9. júlí síðastlið-
inn en þá var aftakaveður og blés
hressilega um farþegana. Nú viðr-
aði töluvert betur en skútan er með
34 farþega og 19 manna áhöfn.
Þetta var fyrsta skemmtiferðaskip-
ið í þessari viku en alls verða þau
fimm talsins þegar vikan verður
liðin. Í gær kom Pacific Princess til
hafnar. Í dag er svo von á tveimur
skipum og svo á föstudaginn kem-
ur Costa Meditarranea sem er að
koma í annað sinn í sumar en það
er stærsta skipið sem kemur þetta
sumarið en það er rúmlega 85 þús-
und tonn 293 metrar á lengd og 32
metrar á breidd.
tfk
Sturla Þórðarson sagnaritarinn
mikli var fæddur 29. júlí 1214.
Þennan dag, sunnudaginn 29. júlí
næstkomandi, verður haldin Stur-
luhátíð í Tjarnarlundi í Saurbæ.
Samkoman hefst klukkan 14. „Að
þessu sinni er atburðurinn tengd-
ur fullveldinu. Það er vegna þess
að fornritin íslensku voru í senn
menningararfur og undirstaða
sjálfstæðisbaráttunnar, baráttunnar
fyrir fullveldi þjóðarinnar. Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur
ávarp við upphaf Sturluhátíðarinn-
ar, en Ragnheiður Pálsdóttir vara-
oddviti Dalabyggðar býður gesti
velkomna. Einar Kr. Guðfinns-
son, formaður Sturlunefndar, setur
Sturluhátíðina. Vigdís Finnboga-
dóttir fyrrverandi forseti Íslands er
heiðursgestur hátíðarinnar,“ segir í
tilkynningu.
Á hátíðinni verður sagt frá
merkri fornminjaskráningu á Stað-
arhóli í Saurbæ þar sem Sturla bjó
lengst. „Það er Guðrún Alda Gísla-
dóttir fornleifafræðingur sem seg-
ir frá fornminjaskráningunni sem
fór fram í fyrra. Þá mun Ari S. Ed-
wald forstjóri Mjólkursamsölunnar
segja frá þátttöku fyrirtækisins í því
að setja upp söguskilti í Dalabyggð
á „Gullna söguhringnum“. Guð-
rún Ása Grímsdóttir fræðimaður á
Árnastofnun segir frá útgáfu Hins
íslenska fornritafélags á Sturlungu
sem lengi hefur verið á döfinni. Um
tónlist sjá þau Hanna Dóra Sturlu-
dóttir og Snorri Sigfússon Birgis-
son. Að lokinni samkomunni mun
Svavar Gestsson segja frá áformum
um minningarreit um Sturlu Þórð-
arson að Staðarhóli. Samkoman er
öllum opin.“
mm
Allt sem þú
gerir skiptir
máli ekki síst
það sem þú
hugsar. Það
er kannski ógnvekjandi tilhugs-
un því við upplifum oft að stjórna
ekki alveg því sem gerist innra með
okkur, en raunin er sú að það er al-
veg hægt að stjórna hugsunum sín-
um, tilfinningar eru aðeins erfið-
ari en við getum samt valið hvern-
ig við bregðumst við þeim. Það er
hægt að gera margar sniðugar og
einfaldar æfingar til að bæta okkur
og stilla hugann, ein sú albesta er
þakklætisæfing. Þessi æfing eykur
hamingju og sátt með lífið, dregur
úr þunglyndis- og kvíðaeinkennum
og eykur líkur á blómstrun. Hana
má gera í huganum, segja upphátt,
makar gætu t.d. sagt hvor öðrum í
lok dags fyrir hvað þeir eru þakklát-
astir þann daginn. Róandi og upp-
byggilegt koddahjal. Fyrir börn er
þetta frábær leið til að koma falleg-
um hugsunum í kollinn á þeim fyr-
ir svefninn og eiga gæðastund sem
lyftir báðum aðilum upp andlega.
Best er þó að gera hana skriflega.
Bæði er það að skrifa hana áhrifa-
ríkara en að segja eða hugsa og þá
áttu þetta í áþreifanlegu formi og
sem getur bjargað slæmum degi í
framtíðinni, ef þú tekur stílabók-
ina fram og lest yfir. Margföld
áhrif sem sagt. (Barn gæti teiknað í
sína þakklætisdagbók).
Æfingin felst í því að finna það
þrennt sem þú ert mest þakklát/ur
fyrir í dag/núna. Skrifa það niður,
helst í sérstaka þakklætisdagbók
(eða HappApp sem er frítt, íslen-
skt app) og leyfa sér að upplifa
þakklætistilfinninguna á meðan.
Þetta er jú æfing í þakklæti en ekki
skriftaræfing. Þetta endurtekur þú
daglega en mátt ekki nota sömu
atriði nema þú sért einhverra hlu-
ta vegna sérlega þakklát/ur aftur
seinna fyrir það sama.
Það eru mörg tilbrigði við þessa
æfingu, það má til að mynda bæta
við hvaða þátt þú átt sjálf/ur í góðu
atriðunum, það bætir sjálfsmyndi-
na. Sumir velja að finna þrennt sem
var skemmtilegt eða fyndið, það
eykur gleði og þar með vellíðan.
Ein leiðin til að nota þetta er þe-
gar slæmu dagarnir koma og það
er erfitt að vera þakklát/ur, eins og
ef vatnið er tekið af, en þá er up-
plagt að velta fyrir sér hvað þarf til
að við höfum rennandi vatn, það
eru ansi margir sem hafa lagt hönd
á plóg og mikið af efni sem þarf
til þess að við höfum þessa „sjálf-
sögðu“ hluti.
Þetta kann að hljóma eins og
Pollíönnu-ismi sem er það að vera
of eða óraunsætt jákvæð/ur, en hér
erum við ekki að tala um að afneita
því slæma heldur að leita markvisst
að því góða sem raunverulega er til
staðar. Það er því miður innbyg-
gt í okkur að taka frekar eftir því
neikvæða, (sbr. 3:1 hlutfallið) þan-
nig að til að halda jafnvægi verðum
við að „handvelja“ að beina athyg-
li líka að góðum hlutum. Á annars
glötuðu rigningarsumri getum við
verið raunverulega ánægð með ef
það styttir upp einmitt í göngufer-
ðinni eða glaðst yfir að eiga góða
regnkápu. Fullkomlega raunsætt.
Síðan þegar sólin kemur loksins
verðum við enn glaðari en á ven-
julegu sumri, ekki satt?
Steinunn Eva Þórðardóttir
Heilsupistill Steinunnar Evu
Það sem er þakkarvert - Æfing í þakklæti
Emil Þór Volden kom með
mömmu sinni og eldri bróður til
að skila inn bókum fyrir sumar-
lesturinn á Bókasafni Akraness.
Hann fékk bókapoka og eins kíkti
hann í „dótakassann“ og fékk að
velja sér dót því hann var búinn
með fimm bækur. Hann sam-
þykkti að vera lesari vikunnar að
þessu sinni.
Hvað heitir þú og hvað
ertu gamall?
Ég heiti Emil og ég er 7 ára.
Í hvaða skóla ertu?
Ég er í Brekkó og fer í 2. bekk
í haust.
Hvaða bók varstu að lesa og
hvernig var hún?
Ég var að lesa bók sem heitir Tóta
og Tumi og hún var skemmtileg.
Hvar er best að vera þegar þú
ert að lesa?
Mér finnst best að lesa í rúminu
mínu. Ég les stundum áður en ég
fer að sofa.
Hvernig bækur finnst þér
skemmtilegastar?
Mér finnast ævintýrabækur
skemmtilegastar.
Áttu þér uppáhalds bók?
Já, uppáhaldsbókin mín heitir
Þín eigin hrollvekja. Við lásum
hana saman í fjölskyldunni.
Er þetta í fyrsta sinn sem þú tek-
ur þátt í sumarlestrinum?
Já, þetta er í fyrsta sinn.
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
Ég er búinn að fara til Noregs og
í útilegu og svo tók ég þátt í Co-
lor Run.
Sumarlesari vikunnar
Fimm skemmtiferða-
skip í þessari viku
Sturluhátíð verður
næstkomandi sunnudag