Skessuhorn - 12.09.2018, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 12. septeMbeR 2018 11
Akraneskaupstaður er sveitarfélag í sókn og ætlar að fjölga atvinnutækifærum og stuðla
ennfrekar að atvinnuþróun og nýsköpun í bæjarfélaginu. Kaupstaðurinn auglýsir tímabundna
stöðu verkefnastjóra til tveggja ára lausa til umsóknar. Starfið sem um ræðir er fjölbreytt og
fyrir framsækinn og kraftmikinn einstakling. Hlutverk verkefnastjóra er að sinna atvinnumálum
fyrir bæjarfélagið og styðja bæjarstjóra í málaflokknum. Verkefnastjóri mun einnig sinna
verkefnastjórnun á öðrum sviðum sem stuðla að framþróun bæjarfélagsins.
Umsóknarfrestur er til og með 30. september næstkomandi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri, baejarstjori@akranes.is.
Sótt er um starfið í gegnum heimasíðu Akraneskaupstaðar. Umsóknum fylgi ítarleg ferilskrá
ásamt greinargerð þar sem fram koma ástæður umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi til starfsins.
Akraneskaupstaður er ört vaxandi bæjarfélag með
sjö þúsund íbúa. Mikil áhersla er lögð á góða
þjónustu við bæjarbúa og fagleg vinnubrögð í
stjórnsýslunni.
Einkunnarorð sveitarfélagsins eru jákvæðni,
metnaður og víðsýni.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Innleiðing og stýring verkefna.
• Leiða vinnu við endurnýjun atvinnustefnu
Akraneskaupstaðar.
• Kynna Akraness sem vænlegan kost til
atvinnuuppbyggingar.
• Samstarf og samskipti við fyrirtæki,
einstaklinga og hagsmunasamtök.
• Gagnavinnsla og úttektir um stöðu
atvinnumála á Akranesi.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
• Reynsla af verkefnastjórnun æskileg.
• Vottun í aðferðarfræði verkefnastjórnunar
er kostur.
• Framsetningar og greiningarhæfni á rekstri
og öðrum gögnum.
• Mikil skipulags- og samskiptahæfni.
• Rík þjónustulund og sjálfstæð vinnubrögð.
• Jákvætt viðmót og frumkvæði og metnaður
til að ná árangri í starfi.
Erum við að leita að þér?
Verkefnastjóri óskast til starfa hjá Akraneskaupstað
sunnudaginn 16. september næst-
komandi klukkan 16 verða haldn-
ir tónleikar í Innra-Hólmskirkju í
Hvalfjarðarsveit. Laufey sigurðar-
dóttir fiðluleikari og páll eyjólfs-
son gítarleikari munu þar flytja tón-
verk frá barokktímanum og til okkar
daga. Það er listafélagið Kalman sem
stendur fyrir tónleikunum. Á næstu
misserum munu fara fram tónleikar í
kirkjunni þar sem allur aðgangseyr-
ir mun renna í viðahaldssjóð kirkj-
unnar, en viðhaldi hennar hefur eins
og fram hefur komið í skessuhornis
verið verulega ábótavant svo áratug-
um skiptir og eru komandi tónleikar
liður í því að safna í sjóðinn.
Innri-Hólmur í Hvalfjarðarsveit
er einn elsti kirkjustaður á landinu.
segir í Landnámu að þar hafi ver-
ið reist kirkja nokkuð fyrir kristni-
töku árið 1000. Vitað er að þar var
kirkja þegar tíundarlög voru sett
árið 1096. Kirkjan sem nú stendur
í Innra-Hólmi var vígð árið 1892.
Henni var valinn staður á fallegum
stað og hefur kirkjan og umhverfi
hennar verið afar vinsælt myndefni
í gegnum tíðina. Inni í kirkjunni
er afar góður hljómburður að sögn
sveins Arnars sæmundssonar org-
anista og má segja að kirkjan sé afar
heppileg undir tónleikahald.
tónlistarfólkið, Laufey og páll,
hafa starfað saman frá árinu 1986.
Þau hafa haldið tónleika víðs vegar
um landið sem og erlendis og gert
upptökur fyrir útvarp og sjónvarp.
samspil þeirra er rómað fyrir fág-
un og glæsileika og það er ekki vafi,
að efnisskrá þeirra mun hljóma vel í
Innra-Hólmskirkju.
tónleikarnir hefjast klukkan 16
og verða um klukkustundar langir.
Aðgangseyrir er kr. 2.500 og rennur
óskiptur í viðhaldsjóð Innra-Hólms-
kirkju eins og áður sagði. Heitt verð-
ur á könnunni og nýbakaðar kleinur
í boði, eftir tónleika.
mm
tónleikar í Innra-Hólmskirkju til styrktar viðhaldssjóði