Skessuhorn - 12.09.2018, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 12. septeMbeR 201826
Mt: stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvernig myndir þú lýsa
Íslendingum í einu orði?
Spurni g
vikunnar
Bjarni Gíslason
„Ruddar.“
Gísli V Halldórsson
„Við erum ágæt.“
Helgi Samúelsson
„Við erum smalafólk.“
Aleksandra Mazur
„Artí.“
Alda Björnsdóttir
„stressaðir.“
(Spurt í Borgarnesi)
ÍA semur við
bandarískan
þjálfara
KÖRFUBOLTI: Sviptingar hafa orðið í
þjálfaramálum hjá karlaliði ÍA í körfuknatt-
leik. Greint var frá því í síðasta mánuði að
Körfuknattleiksfélag ÍA hefði samið við
Jermelle Fraser um að þjálfa og leika með
liðinu, en það gekk ekki eftir. Skagafréttir
greina frá. Undir mánaðamót var því sam-
ið við Bandaríkjamanninn Chaz Franklin
um að taka að sér þjálfun liðsins í 2. deild
karla næsta vetur. Chaz kemur frá Fíladel-
fíuborg. Hann hefur mikla reynslu af sem
bæði leikmaður og þjálfari og hefur þjálfað
körfuknattleik víða um heim. Auk þess að
þjálfa meistaraflokk karla mun Chaz ann-
ast þjálfun yngri flokka ÍA. -kgk
Komst ekki
áfram
GOLF: Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylf-
ingur úr Golfklúbbnum Leyni, komst ekki
í gegnum niðurskurðinn á Lacoste Ladies
Open mótinu sem haldið var í Frakklandi
um helgina. Hún átti erfitt uppdráttar á
fyrsta hring mótsins, lék hann á 78 högg-
um, eða sjö yfir pari og var komin í erfiða
stöðu fyrir annan hringinn. En þar var ann-
að uppi á teningnum. Valdís lék á als oddi
á öðrum hring og lauk honum á 68 högg-
um, eða þremur undir pari. Hún bætti sig
því um tíu högg milli hringja. En það dugði
Valdísi því miður til að komast í gegnum
niðurskurðinn og lauk hún því keppni eftir
tvo hringi. -kgk
Tap fyrir norðan
FÓTBOLTI: Káramenn urðu af mikilvægum
stigum í toppbaráttu 2. deildar karla þegar
þeir töpuðu 1-0 fyrir Völsungi á útivelli á
sunnudag. Eina mark leiksins skoraði Guð-
mundur Óli Steingrímsson á 48. mínútu
leiksins. Bergi Jónmundssyni, leikmanni
Völsungs, var vikið af velli á 60. mínútu og
léku heimamenn því manni færri síðasta
hálftímann. En Káramönnum tókst ekki
að nýta sér það og máttu því sætta sig við
1-0 tap. Eftir leikinn situr Kári í 5. sæti með
35 stig en aðeins fjórum stigum frá Aftur-
eldingu og Gróttu í efstu tveimur sætun-
um. Kári á því enn möguleika á að komast
upp um deild þegar tveir leikir eru eftir, en
þurfa að treysta á hagstæð úrslit úr öðrum
leikjum. Næst leikur Kári gegn Víði á úti-
velli næstkomandi laugardag, 15. ágúst.
-kgk
Kenpo Karate í Borgarnesi
Það voru spenntir krakkar sem
tóku við appelsínugula beltinu í
Kenpo Karate tímanum í borg-
arnesi í síðustu viku. Þar sýndu
krakkarnir mismunadi aðferðir í
sjálfsvörn fyrir foreldra. sýningin
endaði svo á beltis-afhendingu og
krakkar fengu að spreyta sig í að
brjóta spýtu í kjölfarið.
Í þolfimisalnum í íþróttamið-
stöðinni er Kenpo Karate kennt
þrisvar í viku en þetta er nýjung
í sveitarfélaginu og hefur aldrei
boðist íþróttaiðkendum þar áður.
Kenpo Karate er núna að nálg-
ast eins árs afmæli í borgarnesi en
þetta er ákveðin tegund af Karate
sem þróaðist í bandaríkjunum og
á betur við í dag. Karate kemur þó
upprunalega frá Japan og er alda-
gömul bardagalist. Leiðbeinandi á
námskeiðunum er Móses K. Jós-
efsson sem býr yfir 30 ára reynslu
í Kenpo Karate. Hann fékk svarta
beltið 19 ára gamall og kenndi í
mörg ár í Chile. Kenpo ferill Mós-
es hófst á Íslandi árið 2007 en hann
byrjaði að kenna nemendum í
borgarnesi fyrir rúmu ári. Í Kenpo
Karate er lögð mikil áhersla á aga
og virðingu, ekki einvörðungu í
íþróttinni heldur lífinu öllu.
glh
Krakkar sýndu listir sínar fyrir áhorfendur.
Sýnd var ýmis tækni í sjálfsvörn.
Agla Lind Gunnarsdóttir brýtur spýtu
með kröftum sínum.
blaklið Ungmennafélags Grund-
arfjarðar hefur ráðið þær Grétu
sigurðardóttur og svönu björk
steinarsdóttur til að sjá um þjálf-
un á meistaraflokki kvenna í vet-
ur. Gréta mun einnig þjálfa yngri
flokka félagsins. Ungmennafélag
Grundarfjarðar mun tefla fram
tveimur liðum í meistaraflokki
kvenna þar sem liðin eru skráð í 2.
deild og 6. deild blaksambands Ís-
lands. Góð stemning var í hópnum
þegar fréttaritari leit inná æfingu í
vikunni.
tfk
Nýir þjálfarar hjá UMFG
F.v. Gréta Sigurðardóttir og Svana Björk Steinarsdóttir þjálfarar fyrir framan liðið.
skallagrímsmenn unnu
baráttusigur gegn Álfta-
nesi í undanúrslitum
í fjórðu deild karla
í knattspyrnu um
helgina. Þónokk-
uð margir áhorf-
endur voru mætt-
ir á völlinn í borgar-
nesi og veðrið var ekki
til að kvarta yfir, skýjað
og logn.
Mikil orka og hraði var í upp-
hafi leiks í báðum liðum og skipt-
ust þau á að sækja af krafti. Á 39.
mínútu varð einhver vandræða-
gangur í vítateig heimamanna með
þeim afleiðingum að Álftnesingur-
inn Kristján Lýðsson fann
boltann og skilaði hon-
um í netið og kom
gestunum yfir. Leik-
urinn hélt áfram á
svipuðum nótum
en ekki komu fleiri
mörk í fyrri hálf-
leik.
síðari hálfleikur var
fjörugur og á 51. mínútu
náðu heimamenn að jafna
metin þegar Ísak Máni sævars-
son skoraði fyrir skallagrím. Jafnt
var með liðunum og mikil barátta
ríkjandi á vellinum. Á 66. mínútu
kom markaskorarinn, Guillermo
Gonzalez Lamarca, skallagrími
yfir í fyrsta skipti í leiknum. Foryst-
an varði ekki lengi því Álftnesingar
fengu víti strax í næstu sókn. Arnar
Már björgvinsson fór á punktinn og
skilaði boltanum fast og örugglega
í markið. ennþá meira fjör færðist í
leikinn og á 74. mínútu kom sigur-
jón Ari Guðmundsson skallagrími
yfir á nýjan leik. Álftnesingar sóttu
af mikilli ákefð í kjölfarið en ekki
náðu þeir að nýta færi sín og því 3-2
sigur skallagríms staðreynd.
Með sigrinum eru skallagríms-
menn í forystusæti þegar liðin
mætast aftur í dag á bessastaða-
velli klukkan 17:00. Með sigri í dag
getur skallagrímur tryggt sér sæti í
þriðju deild á næsta tímabili. glh
Skallagrímur hafði
betur í fjörugum leik