Skessuhorn


Skessuhorn - 10.10.2018, Side 1

Skessuhorn - 10.10.2018, Side 1
 FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 41. tbl. 21. árg.10. október 2018 - kr. 750 í lausasölu arionbanki.is Það tekur aðeins örfáar mínútur að skrá sig í viðskipti hjá Arion banka. Af því að okkar lausnir snúast um tíma og þægindi. Þægilegri bankaþjónusta gefur þér tíma Nýtt! Fæst án lyfseðils Eru bólgur og verkir að hrjá þig? 30% afslátt ur Okkar glæsilega og holla hádegishlaðborð sími 437-1600 Bjóðum ykkur velkomin alla daga frá kl. 11:30 til 14:30 sjá vetrardagskrá og matseðil Landnámsseturs á landnam.is 25. okt. – 4. nóv. Brekkósprettur er árlega tekinn í Brekkubæjarskóla á Akranesi. Flestir nemendur skólans, kennarar og nokkrir foreldrar að auki skemmtu sér saman þegar hlaupinn var víður hringur umhverfis skólann. Þessar frísklegu stúlkur blésu vart úr nös. Sjá nánar bls. 30. Ljósm. Ragnheiður H. Guðjónsdóttir. Guðrún Emelía Daníelsdóttir, eða Gunna Dan eins og flestir þekkja hana, þarf vart að kynna. Á Sauða- messu um síðustu helgi bauð hún, ásamt spinningshópnum. Spinnigal í Borgarnesi, fólki að koma og byrja daginn í spinning og hjóla sig þann- ig inn í Sauðamessu. Rúmri viku fyrir messuna tilkynnti Guðrún á Facebo- ok síðunni, Borgarnes: “Ég dáist að fjölskyldu og vinum Einars Darra. Þau hafa lyft grettistaki í baráttunni við fíkniefni og læknadóp.” Í fram- haldinu setti hún ásamt spinninghópi sínum, Spinnigal, á laggirnar fjáröfl- un til styrktar Minningarsjóðnum. Þar bað hún einstaklinga og fyrirtæki að hjóla til styrktar málefnisins. Á einni viku safnaðist rúmlega 1,2 milljón króna sem fer í það góða for- varnarstarf og þjóðarátak sem Minn- ingarsjóður Einars Darra er. glh Safnaði yfir milljón Stefna að fram- þróun skólastarfs Til stendur að færa starfsemi leik- skólans Hnoðrabóls frá Gríms- stöðum í Reykholtsdal að Klepp- járnsreykjum, í nýja byggingu sem reist verður við húsnæði grunn- skólans. Hluti af eldri byggingum skólans verða rifnar og leikskól- inn byggður á grunni þeirra. Verk- ið verður boðið út á haustdögum og stefnt á að húsið verði tilbúið eftir rúmt ár. Að framkvæmdum loknum verður á Kleppjárnsreykj- um samstæður leik- og grunn- skóli, þó ekki þannig að skóla- stofnanirnar verði sameinaðar í eina. Slíkt samstarf tveggja skóla- stiga á sama stað er engu að síð- ur talið fela í sér mikla möguleika í framþróun skólastarfs á staðnum. Sjá bls. 12. Mótmæla R-leið harðlega Nokkuð hefur verð tekist á um framtíðar staðsetningu nýs Vest- fjarðavegar um Reykhólasveit. Vegagerðin hefur sagt svokall- aða ÞH-leið um Teigsskóg vera vænlegasta kostinn en kostn- aðargreinir nú að leggja veg framhjá Reykhólum út á Reykja- nes með brú og vegtengingu við Skálanes eins og lagt var til í sumar. Ábúendur á Stað og ná- grannar þeirra í Árbæ mótmæla þessari tillögu harðlega enda telja þau jarðir sínar og afkomu- möguleika skerðast verulega við slíkt inngrip um land þeirra. Rætt er við bændur á Stað í Skessu- horni vikunnar. Sjá bls. 14. Byggðarráð skipað konum Byggðarráð Borgarbyggðar er nú í fyrsta sinn aðeins skipað konum. Fremur sjaldgæft er að pólitísk slagsíða sé á þann veginn. Hitt er mun algengara. Það eru þær Lilja Björg Ágústsdóttir, forseti sveitar- stjórnar og oddviti Sjálfstæðis- flokksins, Halldóra Lóa Þorvalds- dóttir, oddviti Vinstri hreyfing- arinnar græns framboðs og for- maður byggðarráðs, og Guðveig Anna Eyglóardóttir oddviti Fram- sóknarflokksins sem skipa ráð- ið. Blaðamaður Skessuhorns leit við hjá þeim að loknum byggð- arráðsfundi síðastliðinn fimmtu- dag þar sem fjórða konan sat sem áheyrnafulltrúi, María Júlía Jóns- dóttir varamaður Samfylkingar- innar. Sjá bls. 6. Aukin upplýsinga- gjöf besta forvörnin Í síðustu viku voru björgunarað- ilar kallaðar út til leitar og björg- unar að ungri konu sem var hætt komin í Kirkjufelli við Grundarfjörð. Í kjölfar tíðra slysa á fjallinu hefur komið upp umræða meðal íbúa og björgunaraðila um hvort ástæða væri til að takmarka umferð óvanra á Kirkjufell, einkum yfir vetrartím- ann. Í Skessuhorni í dag er rætt við Björgu Ágústsdóttur bæjarstjóra um hvernig mögulega er hægt að bregðast við. Fram kemur að hvorki lögregla né sveitarfélög hafa vald til að stöðva gönguferðir, en það vald er einna helst í höndum land- eigenda, þótt það sé takmörkun- um háð. „Bráðaaðgerðir felast í að setja upp skilti, koma upplýsing- um til ferðafólks og mögulega að verja svæðið tímabundið. Í stærra samhengi verðum við að skoða skipulag innviða og uppbyggingu áfangastaða,“ segir Björg. Sjá bls. 10.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.