Skessuhorn - 10.10.2018, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 20184
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.976 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.580. Rafræn áskrift kostar 2.337 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.160 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is
Katrín Lilja Jónsdóttir klj@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Litið um öxl
Undanfarna daga hafa fjölmiðlar landsins keppst við að rifja upp fjár-
málahrunið sem hér varð fyrir áratug. Hver með sínum hætti. Ekki úti-
lokað að tilburðir hafi verið til að haga þeirri söguritun með þeim hætti
sem hentar viðkomandi fjölmiðli eða öllu heldur eigendum þeirra. Slíkt
er gert með því að velja „rétta“ viðmælendur og hleypa ekki hverjum sem
er að. Nú hef ég ekki lagt það á mig að lesa t.d. viðhafnarútgáfu Hann-
esar Hólmsteins á sérpöntuðu skýrslunni um Hrunið, um hversu vond-
ir Bretar voru við okkur, hversu vel þáverandi seðlabankastjóri stóð sig á
vaktinni og hversu frábærlega stjórnmálamenn stóðu sig í þessum ólgu-
sjó. Fjármálaráðherra bað hann jú að skrifa þessa skýrslu og vafalítið er
hún fróðleg. En af því að ég hef ekki lesið hana get ég ekki dæmt hana
sem góða, slæma eða einhvers staðar þar á milli. Því hef ég ekki forsend-
ur til að meta hvort þetta hafi verið hlutlaust plagg þótt það hafi vissu-
lega verið skrifað af þeim sem ég myndi álíta að stæði hvað tæpast á hægri
bjargbrún pólitíska litrófsins. Gaman væri að fílósófera um hvernig þetta
plagg hefði litið út ef til dæmis sósíalistinn Gunnar Smári hefði ritað það
í umboði vinstri manns í fjármálaráðuneytinu. En pólitík er alltaf spurn-
ing um lobbýisma og það ber að hafa í huga. Nú sýnist mér auk þess að
álitsgjafar séu búnir að merkja starfsmenn RUV á hið pólitíska litróf og
engu líkara en sumir haldi að þar starfi einungis illa þenkjandi fólk sem
vilji ekkert fremur en knésetja pólitísk öfl. En það er ekki svo. Á öllum
fjölmiðlum starfar jú ágætis fólk sem vill vel. Það helgast ekki síst af því að
skortur hefur verið á atvinnutækifærum fyrir blaðamenn og við þær að-
stæður segja fræðin að meðaltalið batni. Ég trúi því allavega. Samt er ég
ekki alveg sannfærður um að það hafi verið gott „move“ hjá Davíð að láta
Agnesi Braga skrifa um verkalýðsmál, fremur en ef ég færi til dæmis að tjá
mig fjálglega um skipulagsmál í Reykjavík.
En þegar hrunið og afleiðingar þess er gert upp er fínt að líta í eigin
barm. Hvernig hefur okkur vegnað frá þessum „Guð blessi Ísland“ degi
fyrir tíu árum? Persónulega er ég bara nokkuð sáttur. Allavega lifði ég af
hjartaáfallið sumarið 2009 sem ég skrifa alfarið á álagið sem fylgdi því að
reka fyrirtæki við þær vonlausu aðstæður sem þá ríktu. Þá var ég líka svo
stálheppinn að eiga hvorki innistæður í banka, Sjóði 9 né hlutabréf í fyr-
irtækjum þegar ósköpin dundu yfir. Enginn missir jú það sem hann ekki
á. Húsnæðislánin tóku að vísu risastökk á verri veg. Ekki síst lánið sem
bundið var gengi einhverra erlendra gjaldmiðla. Krónan féll jú í þá átt
sem sólin ekki sést og því hækkaði höfuðstóllinn þannig að eigið fé okkar
hjóna í íbúðinni varð nánast ekkert. En svo eftir nokkur ár var það leið-
rétt að hluta. Nú er höfuðstóll húsnæðisskuldarinnar nánast upp á krónu
jafn hár og hann var við kaupin fyrir sextán árum. Það er jú svo fallega ís-
lenskt eitthvað að slíkar upphæðir lækka ekki og helgast það af gjaldmiðli
sem við kjósum að nota, verðtryggingu og vaxtastigi sem ég vil ekki tala
um núna, af því ég vil reyna að vera á jákvæðu nótunum. Það sem hins
vegar hefur unnið með okkur er að húsnæðisverð hefur hækkað og þar
með aukist það sem kalla má eigið fé í húsnæðinu. Það er jákvætt. Þá get
ég nefnt að sjálfur þarf ég ekki að kaup nærri eins mikið vatn af Orku-
veitunni til að fylla baðkarið. Samt er ég enn með sama karið! Á þessum
árum hef ég þannig byggt upp margvíslegan varaforða til að mæta því ef
næsti skellur verður stór. Ég áætla til dæmis að ég gæti lifað á vegan fæði
í allavega tvær eða þrjár vikur yrði knýjandi þörf til þess. Það hefði ég sko
ekki getað eftir 6. október 2008.
Megi Guð, Geir alþjóðabankastjóri og aðrar góðar vættir halda áfram
að blessa Ísland.
Magnús Magnússon.
Umhverfisviðurkenningar Borgar-
byggðar voru veittar á laugardag-
inn. Afhending viðurkenninganna
var liður í dagskrá Sauðamessu, sem
haldin var sama dag. Veittar voru
viðurkenningar fyrir snyrtilegasta
bændabýlið, snyrtilegustu lóð við
íbúðarhús og snyrtilegustu lóð við
atvinnuhúsnæði auk sérstakrar við-
urkenningar umhverfis-, skipulags-
og landbúnaðarnefndar vegna um-
hverfismála.
Viðurkenningu fyrir snyrtileg-
asta bændabýlið fengu ábúend-
ur á Sámsstöðum í Hvítársíðu. Í
rökstuðningi segir að á fjárbúinu
Sámsstöðum sé öll umhirða til fyr-
irmyndar, snyrtimennska í háveg-
um höfð varðandi heyskap, frágang
vinnuvéla og tækja úti við, sem og
við rúllustæður og girðingar. Þá sé
húsunum vel við haldið.
Ingibjörg Jónsdóttir og Anna E.
Rafnsdóttir hlutu viðurkenningu
fyrir snyrtilegustu lóð við íbúðar-
hús, Berugötu 5 í Borgarnesi. „Við-
urkenningin er veitt fyrir garðrækt.
Garðurinn er í gömlum garðastíl og
þar er að finna fjölbreyttan gróður.
Mikil natni og alúð er lögð í rækt-
unina og blómin ræktuð frá grunni.
Mikil og sífelld vinna er lögð í um-
hirðu garðsins,“ segir í rökstuðn-
ingi.
Grenigerði fékk viðurkenningu
fyrir snyrtilegustu lóð við atvinnu-
húsnæði. Þykir aðkoman þar snyrti-
leg og ræktunarstarf gróskumikið.
„Rita og Páll í Grenigerði hafa lagt
mikla vinnu í umfangsmikla trjá-
rækt, með virðingu og umhyggju
fyrir náttúrunni í kring að leiðar-
ljósi. Þá hafa þau gefið mikið af sér
til samfélagsins; tekið á móti hóp-
um og gefið trjáplöntur til skóla
og annarra stofnana. Heimsókn í
Grenigerði er heimsókn í ævintýra-
land.“
Sérstaka viðurkenningu um-
hverfis-, skipulags og landbúnaðar-
nefndar hlaut Björk Jóhannsdóttir
fyrir frumkvöðlastarf, elju og ein-
staklingsframtak. Hún var aðalhug-
myndasmiður verkefnunum „Egla
tekur til hendinni“ og burðarplast-
pokalaus Borgarbyggð. Auk þess
virkjaði hún hóp sjálfboðaliða til
ruslatínslu í nærsamfélaginu undir
nafninu Plokkhópur Eglu.
kgk
Umhverfisviðurkenningar
Borgarbyggðar veittar
Handhafar umhverfisviðurkenninga Borgarbyggðar 2018 í Hjálmakletti á laugardag. Ljósm. glh.
Karlmaður sem braust inn í fjölda
ólæstra húsa á landsbyggðinni í
sumar og haust og stal þaðan verð-
mætum hefur verið verið dæmdur í
18 mánaða fangelsi í Héraðsdómi
Suðurlands. Maðurinn er af erlendu
bergi brotinn og hefur áður komist
í kast við lögin víða um Evrópu, að
því er kemur fram í frétt RÚV um
málið. Lögregla hafði hendur í hári
mannsins í júní eftir röð húsbrota.
Hann hafði farið inn í hús á Eyr-
arbakka og stolið þaðan peningum
og myndavél, tekið skartgripi og
peninga úr húsi í Þorlákshöfn og
stolið fjórum gullúrum, gullarm-
bandi, barmnælu og peningum úr
húsi á Hellissandi. Á Fáskrúðsfirði
fór hann inn í hús þegar húsráð-
andi kom að honum og reyndi að
hindra för hans. Þá sló hann hús-
ráðanda í kviðinn og lagði á flótta.
Lögregla veitti bifreið hans eftirför
þar til hún hafnaði utan vegar aust-
ur í Breiðdal. Kom þá í ljós að faðir
hans sat undir stýri.
Eftir að feðgarnir voru látnir
lausir úr gæsluvarðhaldi hélt son-
urinn uppteknum hætti. Það var
síðan Lögreglan á Vesturlandi sem
hafði hendur í hári hans eftir tvö
húsbrot á Snæfellsnesi í lok ágúst.
Ítarlega var sagt frá því í Skessu-
horni.
Fram kemur í dómi Héraðsdóms
Suðurlands að maðurinn hafi tólf
sinnum verið dæmdur til refsingar
undanfarinn áratug en aldrei áður
á Íslandi. Hefur hann hlotið dóma
í Danmörku, Noregi, Svíþjóð,
Austurríki, Þýskalandi, Póllandi og
Lúxemborg fyrir þjófnaði, eigna-
spjöll, eiturlyfjasmygl og fleira.
Maðurinn játaði brot sín fyrir Hér-
aðsdómi Suðurlands en dómstóll-
inn ákvað að 18 mánaða fangelsis-
refsing hans skyldi vera óskilorðs-
bundin, sem þýðir að hann þarf að
sitja inni. Honum var þar að auki
gert að greiða rúma eina milljón
króna í málskostnað.
kgk
Átján mánaða fangelsi fyrir
þjófnaði víða um land
Innbrotsþjófur. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Ljósm. úr safni.