Skessuhorn - 10.10.2018, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018 15
mun blasa við rekstri fyrirtækjanna,
vegna boðaðra aðgerða ríkisvaldsins.
Ekki er ólíklegt að sum aðildarfélög
SFV muni þurfa að taka rekstur sinn
til endurskoðunar til að mæta áfram-
haldandi niðurskurði á framlögum
ríkisins allt til ársins 2021 að minnsta
kosti, annað hvort með því að leggja
niður ákveðna þjónustuþætti eða
breyta rekstrarfyrirkomulaginu til að
afla nýrra tekna á öðrum vettvangi
óháðum framlögum frá ríkinu,“ segir
í tilkynningu SFV.
Nær til allra heimila á
Vesturlandi
Björn Bjarki Þorsteinsson er fram-
kvæmdastjóri hjúkrunar- og dvalar-
heimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi
og varaformaður Samtaka fyrirtækja
í velferðarþjónustu. Hann segir þann
niðurskurð á rekstrarframlögum til
hjúkrunar-, dvalar- og dagrýma sem
boðaður er í fjárlagafrumvarpi næsta
árs ná til allra hjúkrunar- og dval-
arheimila á Vesturlandi. Það er að
segja Höfða á Akranesi, Brákarhlíð-
ar í Borgarnesi, Dvalarheimilis aldr-
aðra í Stykkishólmi, Jaðars í Ólafsvík,
Fellaskjóls í Grundarfirði, Silfurtúns
í Búðardal og Fellsenda í Dölum.
„Frumvarpið snertir öll þessi heim-
ili, þau eru rekin á sömu daggjalda-
forsendum, sem reiknuð eru út við
áramót annars vegar fyrir dvalar-
rýmin og hins vegar hjúkrunarrým-
in,“ segir Bjarki í samtali við Skessu-
horn. „Við höfum miklar áhyggjur af
því hvernig heimilin eigi að reka sig
á þeim forsendum sem þeim er gert
að mæta, því öll starfa þau samkvæmt
kröfulýsingu sem þeim er gert að
fylgja og reksturinn hefur verið afar
þungur undanfarin ár. Ef skera á nið-
ur framlög viljum við líka fá að vita
hvaða tilteknu þjónustu við eigum að
hætta að veita, þar verður ríkisvald-
ið að stíga fram og koma með skýr
skilaboð. Auðvitað þykir okkur afar
leitt ef við lendum í að þurfa að skera
niður þjónustu við okkar skjólstæð-
inga. Fólkið á það ekki skilið,“ bætir
hann við. „Þessi staða kemur okkur
mikið á óvart vegna þess að afar skýrt
er kveðið á um það í stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarinnar að huga þurfi og
styrkja að rekstrargrunni hjúkrunar-
heimila í landinu. Við sjáum það hins
vegar alls ekki í verki enn sem komið
er,“ segir Bjarki að endingu.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Hópur tónlistarmanna frá Banda-
ríkjunum hefur undanfarið verið á
ferð um landið undir heitinu Ap-
artment Sessions. Hópurinn sam-
anstendur af 40 tónlistarmönnum
sem hafa flutt og tekið upp tónlist
á Íslandi við hinar ýmsu aðstæður,
til dæmis í Surtshelli í Hallmund-
arhrauni í Borgarfirði og í Akra-
nesvita. Allir leika tónlistarmenn-
irnir á órafmögnuð hljóðfæri, en
þar sem upptökur hafa farið fram
utandyra er notast við bílarafhlöð-
ur og sólarsellur við upptökurnar.
Á meðan heimsókninni í Akranes-
vita stóð tók hópurinn upp þrjú
lög auk þess að flytja nokkur fyr-
ir gesti og gangandi. Var vitanum
lokað á meðan upptökum stóð.
Hópurinn hélt síðan tónleika á
Húrra í Reykjavík sl. fimmtudags-
kvöld þar sem lög úr Íslandsferð-
inni voru flutt. Skagakonan Inga
María Hjartardóttir gekk í sama
skóla og hluti hópsins. Tók hún
að sér að leiða ferðalag Apartment
Sessions um landið.
kgk
Tóku upp tónlist á
Vesturlandi og víðar
Hópurinn samankominn við Akranesvita. Ljósm. aðsend.
Félagsaðilar í Samtökum fyrirtækja
í velferðarþjónustu koma saman til
félagsfundar næstkomandi föstudag.
Þar munu þeir ræða „þá alvarlegu
stöðu sem framundan er í rekstri
fjölmargra heilbrigðisfyrirtækja og
-stofnana víða um land sem boðuð er
í framlögðu fjárlagafrumvarpi ríkis-
stjórnarinnar fyrir næsta ár,“ eins það
er orðað í tilkynningu frá SFV. „Í
fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi fyrir
árið 2019 boðar ríkisstjórnin áfram-
haldandi niðurskurð á greiðslum til
flestra aðildarfélaga SFV með sama
hætti og þau hafa staðið frammi
undanfarin ár, ekki síst á yfirstand-
andi ári. Samkvæmt fjármálaáætl-
un ríkisstjórnarinnar stendur einnig
til að skerða greiðslurnar enn frekar
árin 2020 og 2021, að minnsta kosti.
Standi þessi ákvörðun í meðförum
Alþingis í umræðum um fjárlaga-
frumvarpið verður niðurskurðurinn
meiri árin 2020 og 2021 heldur en á
yfirstandandi ári og fyrirsjáanlegur er
á næsta ári.“
Segir í tilkynningunni að þetta
komi nokkuð á óvart í ljósi þess að
sérstaklega sé tiltekið í stjórnarsátt-
mála ríkisstjórnarinnar að huga þurfi
að rekstrargrunni hjúkrunarheim-
ila. Af lestri frumvarpsins sé aug-
ljóst að boðuð aukning á framlög-
um til heilbrigðiskerfisins sé að lang-
stærstum hluta ætluð Landspítala og
opinberum heilbrigðisstofnunum. „Í
frumvarpinu er á hinn bóginn gert
ráð fyrir að skera áfram niður við
rekstrarframlög til hjúkrunar-, dval-
ar- og dagrýma þótt ætlunin sé að
fjölga slíkum rýmum. Vísbendingar
eru um að það viðbótarfjármagn hafi
verið vanreiknað auk þess sem ríkis-
valdið hefur lagt ýmsar nýjar og fjár-
hagslega íþyngjandi kröfur á aðildar-
félög SFV undanfarin misseri án þess
að kröfurnar hafi verið fjármagnaðar
af hálfu ríkisins,“ segir í tilkynning-
unni.
Vegna þessa hafa viðræður SFV við
Sjúkratrygginar um nýjan ramma-
samning fyrir dagdvalir siglt í strand.
Engir samningafundir hafa verið
haldnir frá því í lok marsmánaðar.
Rammasamningur um hjúkrunar- og
dvalarrými rennur út á áramótum og
er fyrirhugaður samningur sá stærsti
í sögu Sjúkratrygginga, að því er
fram kemur í tilkynningu SFV. „Að
mati stjórnar SFV er nauðsynlegt að
kalla saman félagsfund til að ræða
þá alvarlegu stöðu sem að óbreyttu
Segja alvarlega stöðu blasa við í
rekstri heilbrigðisfyrirtækja
Niðurskurður á rekstrarframlögum til hjúkrunar-, dvalar- og dagrýma nær til allra hjúkrunar- og dvalarheimila á Vesturlandi.
Björn Bjarki Þorsteinsson er
framkvæmdastjóri Brákarhlíðar og
varaformaður Samtaka fyrirtækja í
velferðarþjónustu.