Skessuhorn - 10.10.2018, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 201816
Laugardaginn 20. október klukkan
14-16 verður Fjölmenningarhátíð
haldin í Frystiklefanum í Rifi. Þetta
er í fjórða sinn sem hátíðin er hald-
in á þessum stað. Rebekka Unnars-
dóttir, verkefnastjóri hjá Átthaga-
stofu, segir að móttökur við hátíð-
inni hafi alltaf verið góðar og skipu-
lagningin í ár hafi gengið mjög vel.
„Það lokar fljótlega fyrir skráningu
en það eru nú þegar komin nokkur
góð atriði.“
Rebekka segir að Fjölmenning-
arhátíðin hafi alltaf vakið mikla
lukku meðal íbúa Snæfellsbæjar.
„Það er alltaf svo mikil jákvæðni
bundin þessari hátíð,“ segir hún.
„Það eru allir tilbúnir að taka þátt og
það er alltaf mjög vel mætt.“ Meðal
atriða í ár er tónlistaratriði frá Tón-
listarskóla Snæfellsbæjar, krakkar
í grunnskólum bæjarins hafa und-
irbúið atriði og svo verður framandi
matur frá öðrum menningarheim-
um í boði. „Markmið okkar er að
hafa gaman og svo spilar líka mat-
urinn stórt atriði á þessari hátíð.“
Þátttakendum á hátíðinni stendur
til boða að koma með framandi rétti
á hlaðborð á hátíðinni og ekki er
verra ef réttinum fylgi skemmtileg
saga. Hægt er að fá endurgreiddan
hráefniskostnað í matarréttina, allt
að tíu þúsund krónur.
Tilgangurinn með hátíðinni er
að skapa vettvang þar sem fólk úr
öðrum menningarheimum getur
kynnst öðrum íbúum Snæfellsbæjar
og kynnt sína menningu í leiðinni.
„Ég vissi til dæmis ekki að það eru
yfir tuttugu þjóðerni sem búa hérna,
bara í Snæfellsbæ,“ segir Rebekka í
samtali við Skessuhorn. Í ár verður
boðið upp á fræðsluerindi um fjöl-
menningu. „Fyrirlestrarnir eru al-
mennt um fjölmenningu og samfé-
lagið,“ segir Rebekka.
Á hátíðinni geta fyrirtæki og
félagasamtök líka verið með kynn-
ingu á starfsemi sinni. „Í fyrra voru
til dæmis félagasamtök með bás og
í ár hafa verkalýðsfélögin útbúið
kynningarefni sem verður dreift. Þá
verður Umhverfisstofnun Snæfells-
ness og Þjóðgarðurinn Snæfellsjök-
ull með eitthvað í boði,“ segir Re-
bekka. Aðaltilgangur hátíðarinnar er
hins vegar að kynnast betur nýjum
íbúum Snæfellsbæjar. Frítt er á há-
tíðina sem opin er milli klukkan 14
og 16 í Frystiklefanum í Rifi og eru
allir hvattir til að mæta og skemmta
sér saman. „Það eru allir velkomnir,
hvaðan sem er úr heiminum,“ segir
Rebekka.
klj
Fjölmenningarhátíð í
Snæfellsbæ 20. október
Á fjölmenningarhátíðinni gefst fólki frá mismunandi menningarheimum tækifæri
til að kynna sína menningu. Þessi mynd úr safni var tekin á fjölmenningarhá-
tíðinni 2016.Byggðaþróun og umhverfismál,
hvernig getur blómleg byggð
og náttúruvernd farið saman,
er umræðuefni á stórri byggð-
aráðstefnu sem haldin verður á
Fosshótel Stykkishólmi dagana
16.-17. október nk. Að ráðstefn-
unni standa Byggðastofnun, Sam-
band íslenskra sveitarfélaga, Sam-
tök sveitarfélaga á Vesturlandi og
Stykkishólmsbær.
„Tilgangur ráðstefnunnar er að
tengja saman fræðilega og hagnýta
þekkingu á byggðaþróun með það
að markmiði að stuðla að sjálf-
bærri þróun byggðar um allt land.
Leitast verður við að ná fram ólík-
um sjónarmiðum þeirra sem vinna
að rannsóknum og stefnumótun á
vettvangi byggðamála með áherslu
á umhverfismál. Ráðstefnan er
vettvangur fólks úr háskólum,
stjórnsýslunni, sveitastjórnum og
annarra sem áhuga hafa á byggða-
þróun og umhverfismálum,“ segir
í tilkynningu.
Skráning á ráðstefnuna er á vef
Byggðastofnunar þar sem hægt er
að kynna sér dagskrána. Skrán-
ingarfrestur er til 10. október.
Ráðstefnugjald 15.000 krónur og
innifalið er veitingar og ráðstefnu-
gögn.
mm
Ráðstefna um byggðamál
framundan í Stykkishólmi
Kaffihúsið Kaffi Brák í Borgar-
nesi hefur nú verið starfandi og
opið gestum og gangandi síðustu
þrjú sumur. Kaffihúsið er staðsett
í Kaupangi, elsta húsi Borgarness,
en hjónin Helga Halldórsdóttir og
Gunnar Jónsson festu kaup á húsinu
fyrir rúmum fjórum árum. Á þeim
tíma var Kaupangur íbúðarhús en
Helga og Gunnar innréttuðu fast-
eignina sem gistiheimili og kaffihús
og bættu þar með við rekstur sinn
sem þau höfðu fyrir, Egils Guest-
house. Í dag sér elsti sonur þeirra,
Hafþór Ingi Gunnarsson, um dag-
legan rekstur fyrirtækisins og hefur
hann tekið eftir því að fleiri gestir
eru að koma á kaffihúsið þetta sum-
ar heldur en hefur verið.
„Það er tvöföld aukning frá því
í fyrra sem er mjög jákvætt,“ segir
Hafþór Ingi ánægður í samtali við
Skessuhorn um liðna helgi. „Ég tel
að stiginn sem pabbi minn setti upp
hérna fyrir utan hafi margt með það
að gera,“ bætir hann við. Við Kaup-
ang er brekka sem leiðir að lista-
verkinu Brákinni eftir listamanninn
Bjarna Þór Bjarnason. „Við fengum
styrk fyrir efniskostnaði frá sveitar-
félaginu til að byggja tröppur upp að
listaverkinu og kláraðist það verkefni
í sumar. Eftir það höfum við tekið
eftir mikilli fjölgun gesta hingað inn
til okkar á kaffishúsið. Margir sem
ganga upp að Brákinni sjávarmegin
taka eftir tröppunum þegar á topp-
inn er komið, ganga niður og stoppa
í kaffi og bakkelsi hjá okkur. Áður en
tröppurnar komu þá snéri fólk oft
við á toppnum. Núna er þetta svona
hringur sem fólk í göngutúr getur
haft not af.“
Viðskiptavinur ársins
Viðskiptavinur ársins hjá Kaffi
Brák er Magnús Guðbjarnarson
frá Straumfirði en hann er dugleg-
ur að heimsækja kaffihúsið. „Þetta
er í fyrsta skipti sem við gefum
út titilinn, Viðskiptavinur ársins.
Hugmyndin á bakvið þetta er að
sýna þakklæti til tryggra viðskipta-
vina sem að þessu sinni er Maggi í
Straumfirði. Hann er heimamað-
ur sem kemur reglulega til okkar í
heimsókn. Stærsti hluti gesta okkar
er þó erlendir ferðamenn sem eru
okkar helsta tekjulind. Það er aft-
ur á móti extra gaman að fá heima-
fólk til okkar, sérstaklega heima-
menn sem koma reglulega, það er
alls ekki sjálfsagt í svona litlum bæ,”
segir Hafþór.
Magnús segir titilinn ekki hafa
komið sér á óvart. „Hingað er gott
að koma og setjast niður. Það er
gott andrúmsloft hérna inni og það
er alltaf vel tekið á mót mér,“ seg-
ir Magnús um leið og hann fær sér
sopa af kaffi. „Ég fæ mér alltaf sneið
af gulrótarköku og tvær kleinur með
kaffinu mínu,“ bætir hann við glað-
ur í bragði. Magnús kemur í hvert
skipti um kaffitímaleytið í heimsókn
og segir gaman að hitta fólk hverju
sinni. „Það er gott að fara á svona
kaffihús. Svona hittir maður alls-
konar fólk og það er skemmtilegt.“
Ásamt því að vera reglulegur gest-
ur á Kaffi Brák þá sér Magnús um
að losa gáminn hjá Rauða krossi Ís-
lands sem stendur við Félagsbæ í
Borgarnesi. „Ég átti að prófa að
vera í þessu verkefni í einn og hálf-
an mánuð hjá Rauða krossinum. Ég
byrjaði um miðjan nóvember og átti
að vera út desember 2007,” útskýr-
ir Magnús. „En þetta prufu-verkefni
hefur núna enst í ellefnu ár,“ segir
Maggi í Straumfirði og hlær.
Kaffi Brák er einungis opið um
helgar í vetur þangað til annað
verður auglýst, en kaffihúsið hef-
ur yfirleitt einungis verið opið yfir
sumartímann. „Við ætlum að sjá til
hvernig þetta þróast. Það veltur allt
á aðsókninni. Ferðamenn eru farn-
ir að ferðast um landið allan ársins
hring og þess vegna langaði okkur
að prófa að hafa opið um helgar yfir
veturinn. Við ætlum að sjá hvernig
október verður og taka svo stöð-
una,” segir Hafþór að lokum.
glh
Gott sumar hjá Kaffi Brák í Borgarnesi
Húsið Kaupangur sem hýsir starfsemi Kaffi Brákar og Egils Guesthouse.
Hafþór Ingi Gunnarsson sér um rekstur Kaffi Brákar og Egils Guesthouse. Magnús Guðbjarnarson er Viðskiptavinur ársins hjá Kaffi Brák.
Byggður var stigi til að auðvelda
göngugörpum leiðina að Brákinni sem
sést á toppnum.