Skessuhorn


Skessuhorn - 10.10.2018, Síða 18

Skessuhorn - 10.10.2018, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 201818 Sauðamessa var haldin hátíðlega í Borgarnesi síðastliðinn laugardag. Skipuleggjendur hátíðarinnar þurftu þó að aðlaga dagskrána að íslensku veðri, en hitastigið hélt sig í kring- um núll gráður og mikið rok og rigning gekk á með köflum. Öll dagskrá sem átti að fara fram í Skallagrímsgarði var því færð inn í Hjálmaklett þar sem meðal annars Sauðamessu- markaðurinn fór fram. Fólk var ánægt með aðlögunina og margir nýttu tækifærið og kíktu inn í Hjálmaklett, í skjól frá veðrinu. Gestir kíktu á markaðinn þar sem allskonar prjóna- vörur voru í boði, fólk gæddi sér á kjötsúpu og fylgdist með dagskrá á sviði en þar hélt meðal annars Bjarni Benedikts- son, fjármála- og efnahagsráðherra, tölu fyrir mannskap- inn. Á sviðinu var meðal annars boðið upp á ostasmökkun og umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar voru afhent- ar af Ragnari Frank Kristjánssyni, sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs (sjá í annari frétt). Síðast en ekki síst atriða sem fram fóru á sviðinu var læra- kappátið þar sem fjórir einstaklingar kepptust um að borða eins mikið af lambakjöti og þau gátu á þremur mínútum. Á meðal keppanda var Halldór Óli Gunnarsson, sigurveg- ari frá því í fyrra, en hann freistaði þess að verja titil sinn og tókst það. Hann gerði sér lítið fyrir og borðaði 420 grömm af lambakjöti á þremur mínútum eða 80 grömmum meira en næsti keppandi, Eiríkur Þór Theodórsson, sem varð í öðru sæti. Einnig var boðið upp á ball fyrir yngri kynslóðina þar sem Meginstreymi spilaði en seinna um kvöldið var hinn árlegi Sauðamessudansleikur. Þar nýttu margir tækifærið til að sletta úr klaufunum og dansa sig inn í nýjan dag og betra veður. glh Sauðamessan í Borgarnesi var vel sótt Allskonar vörur voru í boði á Sauðamessumarkaðinum. Hið árlega kappát fór fram, þar sem keppst er um að borða sem mest af lambalæri á þremur mínútum. Boðið var upp á dansiball fyrir yngstu kynslóðina að dagskrá lokinni. Krakkarnir voru á öllum aldri. Hjónin Ólafur Guðmundsson og Þuríður Guðmundsdóttir fengu Umhverfisviður- kenningu Borgarbyggðar fyrir Snyrtilegasta býlið 2018. Halldór Óli Gunnarsson varði titil sinn frá því í fyrra með yfirburðum. Hann borðaði 420 grömm af lambakjöti á þremur mínútum eða 80 grömmum meira en næsti keppandi. Þessum þótti kjötsúpan góð. Þær Hugrún Hanna og Ingibjörg Jónasdóttir fengu verðlaun fyrir lopapeysur sínar. Hugrún Hanna fyrir frumlegustu hönnunina og Ingibjörg fyrir þá fallegustu. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, flutti ávarp í tilefni dagsins. Margir nýttu tækifærið og gæddu sér á íslenskri kjötsúpu. Eiríkur Jónsson kynnti dagskrárliði á sviði í Hjálmakletti. Margir fylgdust með atriðum á sviðinu í Hjálmakletti.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.