Skessuhorn - 10.10.2018, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 201830
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Ert þú að lesa einhverja
bók þessa dagana?
Spurni g
vikunnar
Steinþór Hans Grönfeldt
Ekki í augnablikinu.
Ingigerður Jónsdóttir
Já, ég er að lesa Mánastein.
Pétur Helgi Pétursson
Nei, enga bók.
Heiðrún Bjarnadóttir og
Hekla Ísabell Mikaelsdóttir
Já, Syndafallið og Hekla er að
lesa Lubbi finnur málbeinið.
Árni Guðjónsson
Já, ég er að lesa nýjustu bókina
eftir Arnald. Myrkrið veit.
(Spurt í Borgarnesi)
Skólahlaupið Brekkósprettur var
hlaupið í Brekkubæjarskóla á Akra-
nesi síðastliðinn föstudag. Flest-
ir nemendur skólans, kennarar og
nokkrir foreldrar að auki skemmtu
sér saman þegar hlaupinn var víð-
ur hringur umhverfis skólann. Það
lá vel á nemendum þar sem þeir
hlupu hvern hringinn á fætur öðr-
um, til þess að safna sem flestum
stigum fyrir sinn árgang, en sá ár-
gangur sigrar sem hleypur flesta
hringi.
klj/ Ljósm. Ragnheiður
H. Guðjónsdóttir.
Brekkósprettur í Brekkubæjarskóla
Það var vel hægt að skemmta sér á leiðinni og spjalla saman. Fyrstu bekkingar fengu sumir hjálp við að ná alla leið.
Fyrir hlaupið, meðan sól var enn lágt á lofti, var tekin góð
upphitun.
Börnin hlupu og gengu til skiptis.
Rósa Björk Árnadóttir hefur verið
að bjóða upp á krakkajóga á Akra-
nesi fyrir krakka á aldrinum 7-13
ára. Hún er menntaður heilsu-
markþjálfi og krakka jógakennari
frá Childplay Yoga og Little Flo-
wer Yoga auk þess sem hún er kenn-
ari í Kundalini jóga. Á námskeiðun-
um kennir hún börnum jóga í gegn-
um leik og tónlist. „Ég nota tónlist-
ina til að kenna börnunum hreyf-
ingarnar og svo leikum við okkur og
reynum að hafa gaman,“ segir Rósa.
Í lok hvers tíma leiðir Rósa börnin í
gegnum hugleiðslu og slökun. „Þeg-
ar ég var að læra að kenna krakka-
jóga var mér sagt að börn væru svo
ör og ættu erfitt með að taka þátt í
slökun. En það hefur ekki verið mín
reynsla. Fyrir mörg börnin er þetta
hápunkturinn. Þau eru spennt að fá
augngrímurnar sínar og slaka á, sum
þeirra sofna og eru svo ekki tilbúin
að standa upp og fara heim eftir tím-
ann,“ segir Rósa glöð.
Næsta jóganámskeið hefst 15.
október og kennt verður á mánu-
dögum og miðvikudögum. Rósa tek-
ur við skráningum í sími 822-0860
en einnig er hægt að hafa samband
við hana í gegnum Facebook síð-
una Mín besta vinkona er ég - Minn
besti vinur er ég.
arg
Býður upp á krakkajóga á Akranesi
Rósa Björk Árnadóttir býður upp á
krakkajóga á Akranesi.
Í síðustu viku fengu fimm íþrótta-
félög og -sambönd styrki til að
standa fyrir verkefnum sem ætlað er
að hvetja börn af erlendum uppruna
til þátttöku í íþróttastarfi. Verkefnið
er samstarfsverkefni Íþrótta- og Ól-
ympíusambands Íslands og Ung-
mennafélags Íslands. Af félögun-
um fimm sem hljóta styrk eru tvö á
Vesturlandi; Íþróttabandalag Akra-
ness og Héraðssamband Snæfells- og
Hnappadalssýslu. Hin félögin þrjú
eru Íþróttabandalag Vestmannaeyja,
Valur og Taekwondodeild Keflavík-
ur.
Margrét Lilja Guðmundsdóttir,
sérfræðingur hjá Rannsóknum og
greiningu, flutti erindi um hlutfall
barna af erlendum uppruna í íþrótt-
um. Kom fram í máli hennar að talið
væri að um tíu prósent íbúa landsins
væru innflytjendur en samanlagt væri
fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda
um tólf prósent þjóðarinnar. Sam-
kvæmt niðurstöðu rannsóknar sem
lögð var fyrir 8.-10. bekk árið 2016
stunda 56% barna og ungmenna nær
aldrei íþróttir ef þau koma frá heim-
ilum þar sem engin íslenska er töl-
uð. 46% stunda nær aldrei íþróttir
meðal barna og ungmenna frá heim-
ilum þar sem íslenska er töluð ásamt
öðru tungumáli. Sagði Margrét slá-
andi hve stórt hlutfall barna og ung-
menna af erlendum uppruna virtist
ekki stunda íþróttir.
Þar að auki fluttu stutta fyrirlestra
þau Maciej Baginski, körfuknatt-
leiksmaður úr Njarðvík og Samar
E. Zahilda, taekwondokona úr Ár-
manni. Maciej flutti fimm ára frá
Póllandi með foreldrum sínum en
Samar á foreldra frá Pakistan. Lýstu
þau reynslu sinni og mæltu með því
að foreldrar barna af erlendum upp-
runa skrái börn sín í íþróttir. Sögðu
þau þátttöku sína í íþróttum hafa
haft mjög jákvæð áhrif á líf sitt. En
þátttaka í íþróttum væri ekki aðeins
jákvæð fyrir börn af erlendum upp-
runa, heldur hefði hún einnig já-
kvæð félagsleg áhrif á foreldrana.
Þeir geti eignast nýja vini og eflt
félagsleg tengsl í gegnum íþróttastarf
barnanna. kgk
Hvetja börn af erlendum uppruna
til að taka þátt í íþróttum
ÍA og HSH fengu styrk til málefnisins
Fulltrúar íþróttafélaganna fimm sem fengu styrk, ásamt Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra og fulltrúum
íþróttahreyfingarinnar. Ljósm. ÍSÍ.
Knattspyrnumarðurinn Leó Örn
Þrastarson skrifaði um síðustu
helgi undir nýjan þriggja ára samn-
ing við Víking Ólafsvík. Leó Örn
var í sumar lánaður til Skallagríms
og spilaði með liðinu í 18 leikjum
í 4. deildinni og skoraði tvö mörk.
Skallagrímur endaði sem kunnugt
er í öðru sæti deildarinnar og fór
upp um deild. Á myndinni er auk
Leós, Jóhann Pétursson formaður
Víkings Ólafsvík. þa
Leó Örn á
heimaslóðir
ÍA bar sigurorð af liði Stál-úlfs á
útivelli, 91-108, þegar liðin mætt-
ust í 2. deild karla í körfuknattleik á
sunnudagskvöld. Sigurinn var fyrsti
sigur Skagamanna í Íslandsmótinu í
körfuknattleik í meira en ár, en lið-
ið tapaði öllum leikjum sínum í 1.
deildinni á síðasta keppnistímabili.
Eftir tvo leiki hafa Skagamenn
því tvö stig í sjötta sæti deildarinn-
ar. Næst mæta þeir Reyni Sand-
gerði, sem situr á botninum eins og
staðan er í dag. Leikur ÍA og Reyn-
is fer fram á Akranesi sunnudaginn
21. október næstkomandi.
kgk/ Ljósm. úr safni/ jho.
Fyrsti sigurinn
í meira en ár