Skessuhorn - 10.10.2018, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Skallagrímskonur máttu játa sig
sigraðar gegn Val, 71-51, þegar lið-
in mættust í fyrstu umferð Dom-
ino‘s deildar kvenna sl. miðviku-
dagskvöld.
Leikurinn á Hlíðarenda fór hægt
af stað og liðin höfðu skorað sjö
stig hvort þegar komið var fram yfir
miðjan fyrsta leikhluta. Eftir það
náðu Skallagrímskonur góðri rispu
og leiddu með átta stigum fyrir ann-
an fjórðung, 9-18. Valsliðið kom sér
snarlega upp að hlið Skallagríms í
upphafi annars leikhluta og fylgdi
Borgnesingum eins og skugginn það
sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Staðan í
hléinu var 29-33, Skallagrími í vil.
Valur náði undirtökunum í leikn-
um snemma í síðari hálfleik. Lið-
ið náði átta stiga forskoti um miðj-
an þriðja fjórðungi og tókst með
góðum endaspretti að auka hana
í tólf stig áður en leikhlutinn var
úti. Skallagrímskonur náðu ekki að
svara fyrir sig og það sem eftir lifði
leiks jók Valur hægt og rólega for-
ystuna og vann að lokum með 20
stigum, 51-71.
Shequila Joseph var atkvæðamest
í liði Skallagríms með 17 stig og 17
fráköst. Bryesha Blair skoraði 13
stig og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir
var með átta stig og fimm stoðsend-
ingar.
Í liði Vals var Brooks Johnsons
með 20 stig og 16 fráköst, Guðbjörg
Sverrisdóttir 18 stig og ellefu frá-
köst, Bergþóra Holton Tómasdótt-
ir 14 stig og fimm fráköst og Ásta
Júlía Grímsdóttir ellefu stig og sex
fráköst.
Næsti leikur Skallagríms er jafn-
framt fyrsti heimaleikur vetrarins.
Hann fer fram í kvöld, miðvikudag-
inn 10. október, þegar liðið mætir
Breiðabliki í Borgarnesi.
kgk/ Ljósm. úr safni/
Skallagrímur.
Botninn datt úr leik
Skallagríms í síðari hálfleik
Snæfellskonur gerðu sér lítið fyr-
ir og lögðu Íslandsmeistara Kefla-
víkur, 87-75, þegar liðin mættust í
Domino‘s deild kvenna á laugar-
dag. Leikurinn var jafnframt fyrsti
heimaleikur Stykkishólmsliðsins í
vetur.
Snæfellskonur byrjuðu af krafti
og komust í 10-0 áður en gestirn-
ir komust á blað. Þær höfðu yfir-
höndina allan fyrsta leikhlutann og
höfðu afgerandi forystu að honum
loknum, 34-18. Keflavíkurliðið tók
aðeins við sér í öðrum fjórðungi en
Snæfell var þó áfram mun sterkara
lið vallarins og leiddi með 14 stig-
um í hléinu, 50-36.
Snæfellskonur héldu upptekn-
um hætti í þriðja leikhluta og réðu
ferðinni inni á vellinum. Þær leiddu
73-55 eftir þiðja leikhluta og sigldu
síðan sigrnium heim í þeim fjórða.
Keflavík náði að minnka forskot-
ið niður í 12 stig en sigur Snæfells
var aldrei í hættu. Lokatölur urðu
87-75.
Kristen McCarthy var algerlega
frábær í liði Snæfells með skoraði
28 stig 15 fráköst, átta stoðsend-
ingar og hvorki fleiri né færri en tíu
stolna bolta. Helga Hjördís Björns-
dóttir var með 20 stig og Gunn-
hildur Gunnarsdóttir 15 stig, fimm
fráköst og sjö stoðsendingar.
Brittany Dinkins var atkvæða-
mest í liði Keflavíkur með 35 stig,
tólf fráköst og sex stoðsendingar og
Bryndís Guðmundsdóttir 17 stig.
Snæfell hefur sigrað báða leiki
sína í vetur og hefur því fjögur stig
eftir tvo fyrstu leikina. Næst leikur
Snæfell gegn Stjörnunni á útivelli
miðvikudaginn 17. október næst-
komandi. kgk
Snæfell sigraði Íslandsmeistarana
Kristen McCarthy átti stórleik bæði í vörn og sókn þegar Snæfell lagði Íslands-
meistara Keflavíkur. Ljósm. úr safni.
Snæfell tapaði stórt gegn Vestra,
80-47, þegar liðin mættust á Ísa-
firði í fyrstu umferð 1. deildar karla
í körfuknattleik á föstudagskvöld.
Snæfellingar skoruðu fyrstu stig
leiksins, sem fór rólega af stað, en
ekki leið á löngu þar til heimamenn
í Vestra náðu undirtökunum og
leiddu með sex stigum að loknum
fyrsta leikhluta, 14-8. Snæfellingar
héldu í við Vestra framan af öðr-
um fjórðungi og um hann miðjan
var staðan 24-18. Þá náðu heima-
menn góðum kafla á meðan hvorki
gekk né rak hjá Snæfelli. Fyrir vikið
leiddi Vestri með 17 stigum í hálf-
leik, 37-20.
Snæfellingar náðu ekki að koma
til baka í síðari hálfleik. Heima-
menn héldu uppteknum hætti í
þriðja leikhluta og framan af þeim
fjórða. Á lokakafla leiksins bættu
Vestramenn svo enn við forskot
sitt og unnu að lokum stórsigur,
80-47.
Dominykas Zupkauskas var
stigahæstur í liði Snæfells með 17
stig og sex fráköst að auki. Darrell
Flake skoraði tíu stig og tók sex frá-
köst en aðrir höfðu minna.
Nebosja Knazevic var atkvæða-
mestur í liði Vestra með 26 stig,
tíu fráköst og níu stoðsendingar.
Nemanja Knazevic skoraði 18 stig
og reif niður 18 fráköst.
Næst leikur Snæfell föstudag-
inn 12. október næstkomandi þeg-
ar liðið tekur á móti Hetti í fyrsta
heimaleik vetrarins.
kgk/ Ljósm. Vestri.
Snæfell steinlá gegn Vestra
Skallagrímur varð að játa sig sigr-
aðan gegn Íslandsmeisturum KR
í fyrstu umferð Domino‘s deildar
karla sl. fimmtudag. Borgnesing-
ar voru sterkir framan af fyrri hálf-
leik og höfðu yfirhöndina á löngum
köflum. En heimamenn í KR náðu
að snúa dæminu við í þeim síðari og
sigruðu að lokum með 109 stigum
gegn 93.
Skallagrímsmenn voru ákveðn-
ir í upphafi leiks. Þeir leiddu með
tveimur til þremur stigum en KR
fylgdi þeim hvert fótmál. Heima-
menn leiddu reyndar eftir fyrsta
leikhluta, 28-26, en Borgnesingar
tóku forystuna strax aftur í upphafi
annars fjórðungs og leiddu þar til
undir lok fyrri hálfleiks. Þá náði KR
smá rispu, tók forystuna og hafði
sex stiga forskot í hálfleik, 58-52.
KR-ingar þéttu varnarleikinn
eftir hléið og gerðu Skallagríms-
mönnum erfitt fyrir. Borgnesingar
náðu bara að skora fjögur stig fyrstu
fimm mínútur síðari hálfleiksins
og heimamenn náðu 14 stiga for-
ystu, 70-56. Skallagrímsmenn náðu
ekki að svara fyrir sig og KR-ing-
ar leiddu með ellefu stigum fyrir
lokafjórðunginn, 86-75. Aftur fóru
Borgnesingar hægt af stað í þeim
leikhluta og voru stigalausir fyrstu
fjórar mínúturnar. Þá var staðan
orðin 94-75 og brekkan orðin æði
brött fyrir leikmenn Skallagríms.
Það sem eftir lifði leiksins stjórn-
uðu KR-ingar ferðinni og sigruðu
að lokum með 16 stigum, 109-93.
Matej Buovac var stigahæstur
leikmanna Skallagríms með 25 stig
og fimm fráköst að auki. Aundre
Jackson skoraði 23 stig og tók fimm
fráköst, Eyjólfur Ásberg Halldórs-
son var með 20 stig, fimm fráköst
og átta stoðsendingar, Björgvin
Hafþór Ríkharðsson skoraði tíu stig
og tók fimm fráköst og Bjarni Guð-
mann Jónsson var með tíu stig.
Julian Boyd fór mikinn í liði KR-
inga með 37 stig og tólf fráköst. Jón
Arnór Stefánsson var með 15 stig
og sex stoðsendingar, Orri Hilm-
arsson skoraði tólf stig, Sigurður
Þorvaldsson var með ellefu stig og
sex fráköst og Emil Barja tíu stig,
átta fráköst og sjö stoðsendingar.
Næsti leikur Skallagríms er jafn-
framt fyrsti heimaleikur liðsins í
vetur. Sá fer fram í Borgarnesi ann-
að kvöld, fimmtudaginn 11. októ-
ber, þegar Borgnesingar fá Grind-
víkinga í heimsókn. kgk
Eyjólfur Ásberg
Halldórsson átti
góðan leik gegn KR.
Ljósm. úr safni/ kgk.
Skallagrímur varð að lúta í
gras gegn Íslandsmeisturunum