Skessuhorn - 21.11.2018, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018 5
ALLIR VELKOMNIR!
Fræðslukvöld þriðjudaginn 27. nóvember kl. 19:00 í Hjálmakletti
„Sýnum karakter“ er verkefni um þjálfun sálrænnar og
félagslegrar færni barna og ungmenna í íþróttum
• Sabína Steinunn Halldórsdóttir: Innleiðing á ,,Sýnum karakter“
• Auður Inga Þorsteinsdóttir: ,,Út fyrir boxið“
• Pálmar Ragnarsson: Jákvæð samskipti í íþróttaþjálfun ungmenna
• Jóhann Guðmundsson: Kynning á ,,Sportabler“
UMSB innleiðir verkefnið
SÝNUM KARAKTER!
©
ÍB
Ú
IN
N
HB Grandi hf. hefur sagt upp nít-
ján skipverjum á ísfisktogaranum
Helgu Maríu, sem á heimahöfn
á Akranesi. Ástæða uppsagnanna
er óvissa innan útgerðarinnar um
hvað gert verður við skipið, en eins
og kunnugt er hefur HB Grandi
verið að endurnýja ísfisktogara sína
undanfarin ár og er veiðigeta nýju
skipanna, Engeyjar, Akureyjar og
Viðeyjar, það mikil að óvíst er um
hvort þörf er á Helgu Maríu til að
ná að fylla þær veiðiheimildir sem
fyrirtækið ræður yfir. Fimmtán
manns eru í áhöfn skipsins hverju
sinni og hefur alls 21 verið ráð-
inn á skipið með afleysingamönn-
um. Samkvæmt heimildum Skessu-
horns eru þrír í áhöfn skipsins bú-
settir á Akranesi. Helga María er
enn í rekstri og ekki hefur verið
tekin ákvörðun um hvenær skipið
hætti veiðum. Þeir sem fengu upp-
sagnarbréf sín hafa þriggja mánaða
uppsagnarfrest.
mm
Áhöfn Helgu Maríu AK
var sagt upp
Verslunin Gallerí Ozone á Akra-
nesi verður flutt í nýtt húsnæði á
næstu dögum. Verslunin hefur ver-
ið til húsa við Kirkjubraut 12 síðustu
árin en verður nú flutt að Stillholti
23, þar sem verslunin Hljómsýn var
m.a. áður til húsa. „Okkur finnst nú-
verandi húsnæði of stórt og langar að
minnka við okkur,“ segir Maren Rós
Steindórsdóttir, en hún á og rekur
verslunina ásamt Andra Júlíussyni
og Arnóri Smárasyni. „Miðbærinn
er ekki heldur eins og hann var, en
það er að myndast mun stærri kjarni
þarna við Stillholtið,“ segir Maren.
Í Galleríi Ozone hafa verið seld
íþróttaföt, tískufatnaður og leikföng
en þau Maren og Andri ætla að hætta
með sölu leikfanga og leggja meiri
áherslu á fatnað. „Leikfangamarkað-
urinn er ekki skemmtilegur á Íslandi
og núna er hægt að kaupa leikföng
mun ódýrari í Costco en við erum
að kaupa í heildsölum. Þetta er líka
lokaður markaður þar sem ákveðnar
verslanir eru með einkaleyfi á stórum
hluta vinsælustu leikfangamerkj-
anna,“ segir Maren. „Hugmyndin
okkar er að minnkað aðeins við hús-
næðið svo við sjálf getum haft betri
yfirsýn og veitt persónulegri þjón-
ustu. Viðskiptavinir geta þó verið al-
veg rólegir því öll okkar vinsælustu
merki eru ekki að fara neitt,“ bætir
hún við.
arg
Gallerí Ozone í nýtt húsnæði
Gallerí Ozone verður flutt í húsnæðið
þar sem Hljómsýn var áður til húsa á
Stillholti 23 við hlið Dýrabæjar.