Skessuhorn - 21.11.2018, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018 21
Barnalán
Arnór og Auður eignuðust fimm
börn. „Elísa Anna er elst en hún er
bókasafnsvörður og maður hennar
er Hermann Jóhannesson kennari
en þau búa í Kópavogi og eiga þrjá
syni. Næstur er Óskar en hann er
yfirvélstjóri hjá HB Granda og er
giftur Rannveigu Þórisdóttur. Þau
eiga fjóra syni og búa á Akranesi.
Þá er það Sveinn en hann er vöru-
flutningabílstjóri og býr í Grund-
arfirði. Næst er það Guðrún Lilja
en hún er gift Bjarna Sigurbjörns-
syni en þau voru landverðir í Viðey
í tíu ár en vildu að því loknu skipta
um starfsvettvang. Við fengum þau
til að taka við búskapnum og jörð-
inni á Eiði þar sem þau eru bænd-
ur nú og eiga þau tvö börn. Yngst-
ur er svo Kári en hans kona er Ólöf
Ólafsdóttir. Hann er húsasmíða-
meistari og eiga þau þrjá syni og
búa í Grafarvogi.“ Þannig mælist
Arnóri þegar hann fer yfir barna-
fjöldann.
Fjöldi trúnaðarstarfa
Í gegnum tíðina hefur Arnór gegnt
ýmsum trúnaðarstörfum, en hann
var m.a. landpóstur frá pósthús-
inu í Grundarfirði í þrjátíu ár. „Já,
ég gegndi því starfi allt þar til að
pósthúsið var lagt niður,“ rifjar
hann upp. „Einnig hlóðust á mig
hin ýmsu félagsstörf á lífsleiðinni.
Til dæmis var ég í stjórn Búnaðar-
og ræktunarsambands Snæfellinga,
Búnaðarfélagsins Búa, sauðfjárrækt-
arfélagsins, Skógræktarfélags Eyrar-
sveitar og Mjólkursamlagsins í Búð-
ardal. Einnig var ég í sóknarnefnd í
mörg ár og í fjörutíu ár var ég um-
sjónarmaður kirkjugarðsins á Set-
bergi þar sem ég sá um grafartök-
ur og frágang leiða eftir athafnir,“
rifjar Arnór upp. En þetta voru ekki
einu félagsstörfin þar sem Arnór lét
að sér kveða. „Viðamesta félags-
starfið sem ég sinnti var stofnun og
uppbygging Dvalar- og hjúkrunar-
heimilisins Fellaskjóls en ég gegndi
formennsku í stjórn dvalaheimil-
isins í rúm tuttugu ár,“ segir Arn-
ór en hann var nánast sjálfkjörinn
til að taka fyrstu skóflustunguna að
stækkun dvalarheimilisins á síðasta
ári. „Eftir að börnin fóru að heim-
an vorum við bara tvö í heimili og
þegar ég var á fullu í öllum þessum
félagsstörfum hvíldu bústörfin mikið
á herðum Auðar og sinnti hún þeim
af stakri prýði. Markmið okkar var
alltaf ræktun bústofnsins og jarðar-
innar,” bætir hann við en óhætt er
að segja að vel hafi til tekist þegar
litið er yfir farinn veg.
Eins og fyrr segir tóku Guðrún
Lilja, dóttir þeirra hjóna og Bjarni
Sigurbjörnsson við búinu á Eiði
upp úr aldamótum. Hafa þau hald-
ið áfram uppbyggingu jarðarinn-
ar. „Við drógum okkur í hlé þegar
Guðrún og Bjarni tóku við og héldu
ævistarfi okkar áfram,“ segir Arn-
ór að lokum en bjart er yfir þessum
heiðurshjónum þegar þau rifja upp í
stuttu máli langt og farsælt ævihlaup
sitt.
tfk
Laugardaginn 24. nóvember næst-
komandi klukkan 13 flytur dr. Jón
Karl Helgason fyrirlestur í hátíðar-
sal Snorrastofu í héraðsskólahúsinu
í Reykholti. Kallast fyrirlesturinn:
„Eigi skal höggva: Jeg er ligeglad“
og eru á ferðinni lausbeislaðar hug-
leiðingar um fullveldið og karlveld-
ið. Árið 1241 var Snorri Sturluson
tekinn af lífi á heimili sínu, Reyk-
holti í Borgarfirði og herma sagnir
að andlátsorð hans hafi verið „Eigi
skal höggva“. Um sjö hundruð
árum síðar var Guðmundur Kamb-
an tekinn af lífi í matsal hótelsins
þar sem hann bjó í Kaupmanna-
höfn og sagan segir að andlátsorð
hans hafi verið: „Saa skyd. Jeg er
ligeglad“. Í erindi sínu gerir Jón
Karl Helgason tilraun til að tengja
saman dauða skáldanna og virðir
um leið fyrir sér hugsanleg tengsl
þeirra við ártalið 1918 og skrif Sig-
urðar Nordals. Fyrirlesturinn er
öllum opinn en er um leið nokk-
urs konar upptaktur að vinnustofu
sérfræðinga víða að úr heiminum,
sem fást við rannsóknir á verkum
Snorra Sturlusonar og viðtökum
þeirra í gegnum tíðina. Það var Af-
mælisnefnd aldarafmælis fullveldis
Íslands, sem styrkti þetta framtak
á sama hátt og sögusýninguna um
árið 1918 í Borgarfirði, sem opnuð
var 3. nóvember sl. og nú myndar
skemmtilega umgjörð um fyrirlest-
ur Jóns og vinnustofu sérfræðing-
anna.
Jón Karl er prófessor við Íslensku
og menningardeild Háskóla Íslands.
Hann er með doktorspróf í saman-
burðarbókmenntum frá The Uni-
versity of Massachusetts og hefur á
liðnum árum unnið að rannsóknum
á þjóðardýrlingum, menningarsögu
20. aldar og viðtökum íslenskra
fornbókmennta. Meðal verka hans
eru bækurnar Hetjan og höfundur-
inn (1998), Ferðalok (2003), Mynd
af Ragnari í Smára (2009) og Echo-
es of Valhalla (2017). Eins og áður
segir er fyrirlesturinn öllum opinn
og boðið verður til kaffiveitinga
og umræðna og aðgangseyrir er kr.
500.
-fréttatilkynning
„Eigi skal höggva:
Jeg er ligeglad“
Dr. Jón Karl Helgason.
Húsfyllir var í Reykholtskirkju á
föstudagskvöldið síðasta þegar blás-
ið var til fjáröflunartónleika Minn-
ingarsjóðs Heimis Klemenzson-
ar frá Dýrastöðum. Sjóðurinn var
nýverið stofnaður og vilja vinir og
samverkamenn Heimis halda minn-
ingu hans á lofti og minnast sér-
staklega elju hans og fagmennsku á
tónlistarsviðinu. Afköstin voru mik-
il þó árin væru ekki mörg og eftir
Heimi liggur ótrúlega mikið af tón-
list, bæði útgefnu og óútgefnu efni.
Þá eru ótaldir þeir fjölmörgu tón-
listarviðburðir sem hann átti þátt í
eða stóð fyrir. Hlutverk minningar-
sjóðsins verður að standa við bakið
á ungu og efnilegu tónlistarfólki í
Borgarfirði og heiðra þannig minn-
ingu Heimis.
Dagskrá tónleikanna var mynd-
arleg í meira lagi og allir tónlistar-
menn sem fram komu gerðu það
góðfúslega án endurgjalds. Auk
þess var Reykholtskirkja lánuð
undir viðburðinn án endurgjalds.
Fram komu; Soffía Björg, Emma
Eyþórsdóttir, Agnes Björgvins-
dóttir, Heiðmar og Jakob, Borg-
arfjarðardætur, Halli Reynis, Ey-
rún og Tinna, Viðar og Barbara,
Ásta Marý, Uppsveitin og Jónína
Erna. Síðast en ekki síst sungu fé-
lagar í Karlakórnum Söngbræðrum
bæði í upphafi tónleikanna og í lok
þeirra.
kgk
Húsfyllir í Reykholtskirkju
Karlakórinn Söngbræður söng síðasta tóninn og að því búnu voru allir sem komu fram kallaðir upp.
Tónlistarhópurinn Uppsveitin, skipaður tónlistarfólki úr uppsveitum Borgar-
fjarðar.
Soffía Björg lék tvö frumsamin lög.
Heiðmar Eyjólfsson syngur og Jakob Grétar Sigurðsson leikur undir, en þetta var í
fyrsta skipti sem Jakob leikur opinberlega á píanó.
Þegar skóflustunga að stækkun Fellaskjóls var tekin var Arnór fenginn til að vinna verkið, enda var hann í rúma tvo áratugi
formaður stjórnar heimilisins. Ljósm. tfk.