Skessuhorn - 28.11.2018, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 48. tbl. 21. árg. 28. nóvember 2018 - kr. 750 í lausasölu
arionbanki.is
Það tekur aðeins örfáar mínútur
að skrá sig í viðskipti hjá Arion banka.
Af því að okkar lausnir snúast um
tíma og þægindi.
Þægilegri
bankaþjónusta
gefur þér tíma
Nýtt!
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
20 ÁR
Landnámssetur
í desember
sími 437-1600
Sunnudagur 2. desember kl. 15:00
Systurnar Ásrún & Sigríður lesa
upp úr og árita nýútkomna bók sína
Korkusögur á Sögulofti
Tilboð á heitu súkkulaði og
piparkökum í veitingahúsi
Laugardagur 8. desember kl. 20:00
Kyrrlát jól með KK og Ellen
á Sögulofti
Miðasala á tix.is
Þorláksmessuskata 23. desember
Nauðsynlegt að panta borð í tíma
Nánar um dagskrá á
landnam.is/vidburdir
Nýsköpunardagur Vesturlands var haldinn síðastliðinn fimmtudag og boðið til athafnar í Tónbergi á Akranesi. Nýsköpunarverðlaun ársins féllu í hlut Guðmundar
Runólfssonar hf. í Grundarfirði fyrir afar myndarlega uppbyggingu nýs bolfisksvinnsluhúss. Þá hlutu 18 fyrirtæki og einstaklingar styrki til nýsköpunarverkefna en þau
dreifast um allan landshlutann. Ítarlega er fjallað um nýsköpunardaginn á bls. 18-19.
Kvikmyndafyrirtækið Sagafilm hef-
ur í hyggju að taka upp átta þátta
sjónvarpsþáttaröð í Stykkishólmi,
í samvinnu við sænskt framleiðslu-
fyrirtæki. Samkvæmt heimildum
Skessuhorns munu tökur hefjast
í janúar og standa yfir um þriggja
mánaða skeið, víðs vegar um bæinn.
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar sam-
þykkti á fundi sínum sl. fimmtudag
beiðni Sagafilm um töku á seríunni
í Stykkishólmi og breytingu á útliti
opinberra mannvirkja í tengslum við
verkefnið.
Nokkur leynd hvílir yfir verk-
efninu eins og oft þegar um tökur
á kvikmyndum og sjónvarpsþáttum
er að ræða. RÚV greindi frá því að
höfundar sjónvarpsþáttaraðarinnar
væru þeir Jónas Margeir Ingólfsson,
Jóhann Ævar Grímsson og Birkir
Blær Ingólfsson. Þar kemur einnig
fram að þættirnir taki meðal annars
á þeirri stöðu sem blasir við á norð-
urheimskautinu og ætlunin væri að
draga upp mynd af samfélagi sem
standi á áhugaverðum stað á heims-
sviðinu. Tökur munu fara fram bæði
í Stykkishólmi og á Grænlandi.
„Lýsir upp
á skammdegið“
Að sögn Jakobs Björgvins Jakobsson-
ar, bæjarstjóra í Stykkishólmi, felast
breytingar á opinberum mannvirkj-
um einfaldlega í því að hús verði mál-
uð á meðan tökur standa yfir. Þeim
verður síðan skilað eins og þau voru
áður að tökum loknum. Aðspurður
segir hann að verkefnið leggist vel í
Hólmara. „Þetta er spennandi verk-
efni sem lífgar upp á bæinn og lýs-
ir upp skammdegið,“ segir Jakob í
samtali við Skessuhorn. „Þá kem-
ur þetta til með að verða góð inn-
spýting í ferðaþjónustuna því marg-
ir munu koma í bæinn yfir þennan
tíma sem tökur standa yfir,“ bætir
hann við.
Jakob segir íbúa ekki óvana því að
kvikmyndatökur standi yfir í bæn-
um. Stórmyndin The Secret Life of
Walter Mitty var að hluta til tekin
upp í Stykkishólmi, einmitt í næsta
nágrenni við bæjarskrifstofurnar. Sú
mynd hefur borið hróður bæjarins
víða. „Frá því ég tók við starfi bæjar-
stjóra í sumar hef ég á hverjum degi
séð fólk fyrir utan skrifstofuna hjá
mér að leika eftir atriði úr myndinni
og taka myndir af því,“ segir Jakob
að endingu.
kgk
Ný sjónvarpsþáttaröð tekin upp í Stykkishólmi
Frá Stykkishólmi við upptökur á kvikmyndinni The Secret Life of Walter Mitty, sem
frumsýnd var árið 2013. Nú er sama umgjörð að hluta til notuð í sjónvarpsþáttum
sem byrjað verður að taka upp eftir áramótin.