Skessuhorn - 28.11.2018, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 201814
Alþýðusamband Íslands sendi í síð-
ustu viku frá sér leiðbeiningar til al-
mennings hvernig spara má ýmsan
banka- og umsýslukostnað í dag-
legu lífi. „Flest viljum við kom-
ast hjá óþarfa kostnaði ef hægt er.
Gjöld bankanna hafa hækkað töl-
vert undanfarin ár eins og kom fram
í úttekt verðlagseftirlits ASÍ nýver-
ið og ýmsar aðgerðir hjá bönkun-
um eru orðnar mjög dýrar. Við get-
um hins vegar gert ýmislegt sjálf til
að lækka bankakostnaðinn okkar en
þessi grein fjallar um helstu leið-
ir til þess,“ segir í upphafi, en eft-
irfarandi leiðbeiningar eru birtar að
beiðni ASÍ:
Lækkaðu
færslukostnaðinn
Lækkaðu kostnaðinn við færslur
hérlendis og notaðu kreditkort í
stað debetkorts eða taktu út pen-
ing. Hver færsla á debetkorti kost-
ar 18-19 kr. en færslugjöld af kred-
itkortum eru engin. Ef þú ert ekki
með kreditkort geturðu tekið út
reiðufé í hraðbanka með debetkorti
en það kostar ekkert svo lengi sem
þú passar að fara í hraðbanka sem er
merktur bankanum þínum.
Hraðbankar
Úttekt reiðufjár
Ef þú þarft að taka út reiðufé borg-
ar sig að taka út af debetkorti í hrað-
banka hjá þínum banka en það kost-
ar ekkert. Úttekt með kreditkorti
ber hins vegar með sér þóknun til
bankans upp á 2,2% auk úttektar-
gjalds upp á 115-130 kr.
Innlögn reiðufjár
Þarft þú að leggja reiðufé inn á
reikning í öðrum banka eða inn á
þinn eiginn reikning? Ef þú þarft að
leggja reiðufé inn á reikning í öðr-
um banka kostar það 495 kr. í útibú-
um Arion banka, 375 kr. í útibúum
Íslandsbanka og 100 kr. í útibúum
Landsbankans. Það er mun hagstæð-
ara að nota hraðbanka til að leggja
reiðufé inn á reikning í öðrum banka
en hjá Landsbankanum og Íslands-
banka kostar það ekkert en í Arion
banka kostar það 175 kr.
Ekkert kostar fyrir viðskiptavini að
leggja reiðufé inn á sinn eigin reikn-
ing í útibúum Landsbankans og Ís-
landsbanka en það kostar 195 kr. hjá
Arion banka.
Lækkaðu tilkynninga- og
greiðslugjöld
Tilkynninga- og greiðslugjöld hafa
hækkað um tugi prósenta hjá öll-
um bönkunum. Þú getur sparað þér
pening með því að láta alla reikn-
inga skuldfærast sjálfkrafa rafrænt en
slík skuldfærsla kostar 120-130 kr.
hjá bönkunum. Það kostar hinsvegar
420- 470 kr. að fá greiðsluseðil heim
og rafrænn greiðsluseðill sem er ekki
í skuldfærslu kostar 300-310 kr.
Athugaðu einnig hvort þú ert að fá
heimsenda reikninga frá þeim fyrir-
tækjum sem þú ert að eiga viðskipti
við. Með því að fá rafræna greiðslu-
seðla í stað heimsendra reikninga
getur þú sparað þér töluverðar upp-
hæðir í hverjum mánuði.
Ert þú að fara til
útlanda?
Kredit eða debet kort: Notaðu kred-
itkort í stað debetkorts ef þú ert að
greiða hjá þjónustu- eða söluaðila.
Kreditkortafærslur í útlöndum kosta
ekkert en hins vegar borgarðu 1%
af öllum greiðslum í kostnað ef þú
notar debetkort.
Reiðufé
Ef þú vilt vera með pening í lausu er-
lendis er hagstæðast að taka út gjald-
eyri áður en farið er út en útborgun
í hraðbanka erlendis með debetkorti
kostar 2% og 2,75% með kreditkorti
(lágmarks þóknun vegna úttektar
með kreditkorti í hraðbanka kostar
690 - 820 kr.). Líklegt er að bank-
inn sem þú tekur út hjá leggi einnig
gjald á úttektina og er upphæðin þá
enn hærri. Í einhverjum tilfellum er
hægt að panta gjaldeyri á netinu hjá
bönkunum og sækja í útibú en einn-
ig er hægt að taka gjaldeyri út úr ein-
hverjum hraðbönkum. Það er dýrara
að taka gjaldeyri út á flugvellinum
þannig það er betra að gera það áður
en þú leggur af stað í ferðina.
Passaðu þig að taka ekki út of
mikið svo þú sitjir ekki uppi með
gjaldeyri eftir ferðina og þá er ekki
gott að vera of mikið af lausafé á sér
ef eitthvað kemur upp á.
Greiða með greiðslukorti í
sínum eigin gjaldmiðli?
Þegar fólk verslar í útlöndum er
það stundum spurt hvort það vilji
greiða með greiðslukorti í sínum
eigin gjaldmiðli í stað gjaldmiðli
viðkomandi lands. Í flestum tilfell-
um bætir þjónustuaðilinn yfirleitt
álagsgreiðslu ofan á kaupverðið og
í sumum tilfellum bætist einnig við
þóknun. Ef maður vill komast hjá
aukalegum kostnaði er því betra
að borga í gjaldmiðli viðkomandi
lands.
Netbanki og app í stað
þjónustu í útibúi
Notaðu netbankann eins og þú get-
ur í stað þess að fara í útibúin. Í net-
banka eða appi greiðirðu lítið eða
ekkert fyrir flesta þjónustu á með-
an flestar aðgerðir kosta pening í
útibúunum og geta upphæðirnar
numið töluverðum fjárhæðum.
Ekki láta hanka þig á
FIT kostnaði
FIT kostnaður er sá kostnaður
sem þú borgar ef þú ferð fram yfir
á debet kortinu þínu. Kostnaður-
inn sem fylgir þessu er gífurlega
hár en fyrir hverja umfram úttekt
af kortinu sem nemur 5.000 kr. eða
minna borgarðu frá 895– 950 kr.
fyrir, eftir því hjá hvaða banka þú
ert. Þetta er hlutfallslega mjög hár
kostnaður sem hægt er að koma í
veg fyrir með því að fylgjast með
stöðunni á kortinu þínu.
Ef þetta er eitthvað sem þú hef-
ur oft lent í eða þú telur að sé lík-
legt að þú munir lenda í gæti borg-
að sig fyrir þig að vera með lítinn
yfirdrátt á kortinu, 10-20 þúsund
króna yfirdrátt sem nýtist þá ef að
þú ert búinn með innistæðuna á
kortinu í stað þess að borga FIT
kostnað. Vextir af svo litlum yfir-
drætti í nokkra daga eru í mesta
lagi nokkrir tíkallar sem er mun
minna en um 900 kr. Til að þetta
borgi sig er ekki sniðugt að nýta
yfirdráttinn nema í algjörri neyð.
Þarft þú að fara í
greiðslumat vegna
íbúðaláns?
Það gæti verið hagstæðara fyrir þig
að fara í gegnum rafrænt greiðslu-
mat en í greiðslumat í útibúi. Hjá
Arion banka og Íslandsbanka er
um 80% eða yfir 4.000 króna verð-
munur á rafrænu greiðslumati og
greiðslumati í útibúi fyrir einstak-
linga. Verðmunurinn á greiðslu-
mati fyrir hjón eða sambúðar-
fólk eftir því hvort farið er í útibú
eða greiðslumatið er framkvæmt
rafrænt er yfir 5.000 hjá báðum
bönkunum. Farðu í þinn banka í
greiðslumat, allir bankarnir rukka
mun hærra gjald fyrir greiðslu-
mat ef þú ert ekki viðskiptavinur.
Enginn verðmunur er á rafrænu
greiðslumati eða greiðslumati í
útibúi hjá Landsbankanum.
Tilkynning með
töluvpósti
Ef þú ert hjá Íslandsbanka borgar
þú 205 kr. fyrir hverja senda kvitt-
un með tölvupósti eftir millifærslu
í netbanka eða appi. Þá kostar hver
innskráning í netbanka eða appi
10. kr. Sparaðu þér þennan kostn-
að ef þú mögulega getur með því
að sleppa kvittuninni eða fá hana
senda með sms-i sem kostar 10
kr. og skráðu þig inn í netbankann
með rafrænum skilríkjum eða not-
endanafni og lykilorði.
mm
Mikið sem má spara við meðferð fjármuna
ASÍ leiðbeinir hvernig spara má bankakostnað og í ferðlögum erlendis
Fimm hefur verið úthlutað verð-
laununum „Icelandic lamb Award of
Excellence 2018,“ eða viðurkenn-
ingu til framúrskarandi samstarfs-
aðila Icelandic Lamb í flokki hand-
verks og hönnunar. Það eru: Anna
Þóra Karlsdóttir listakona, Guð-
rún Bjarnadóttir hjá Hespuhúsinu
í Andakíl, Hulda Brynjólfsdóttir
og Tyrfingur Sveinsson fyrir Upp-
spuna, Philippe Ricart handverks-
maður á Akranesi og Erla Svava Sig-
urðardóttir fyrir YARM.
Verðlaunin afhentu Icelandic
Lamb við hátíðlega athöfn í lista-
miðstöðinni Mengi. Tilgangur við-
urkenningarnar er að stuðla að aukn-
um skilningi og þekkingu á gæðum
íslensku ullarinnar og annarra sauð-
fjárafurða sem handverksfólk, lista-
menn og hönnuðir nýta sem hráefni
í sköpun sína. Hún er hugsuð sem
hvatning til frekari verðmætasköp-
unar, nýsköpunar og vöruþróunar
úr íslenskum sauðfjárafurðum.
Icelandic lamb stóð að verðlaun-
unum en markaðsstofan er í sam-
starfi við yfir 200 innlenda aðila;
veitingastaði, verslanir, framleið-
endur, afurðastöðvar, listamenn,
hönnuði og fleiri. Tilgangur sam-
starfsins er að kynna íslenska sauð-
fjárafurðir, mat, handverk og hönn-
un fyrir erlendum ferðamönnum.
Merki Icelandic Lamb er ætlað að
undirstrika sérstöku íslenskra sauð-
fjárafurða með tilvísun til uppruna,
hreinleika og gæða.
Tvö af Vesturlandi
Tveir af verðlaunahöfum eru búsettir
á Vesturlandi og bæði meðlimir í Ull-
arselinu á Hvanneyri. Í rökstuðningi
dómara um þau segir meðal annars:
„Guðrún Bjarnadóttir hjá Hespu-
húsinu hefur verið mjög ötul við að
dreifa boðskap íslensku ullarinnar
og tekið á móti mörgum hópum á
vinnustofu sinni, enda er fólk mjög
áhugasamt að fræðast meira um lit-
unina á ullarbandinu og kíkja í pott-
ana. Guðrún miðlar virkilega vel
þekkingu sinni á hráefninu ásamt
gæðum þess og möguleikum með
náttúrulegri litun. Framsetning á
efninu er fagleg og skemmtileg, og
nýtir vel vefmiðla.“
Um listamanninn Philippe Rich-
ard segir m.a.: „Philippe er einn af
okkar fremstu listhandverksmönn-
um og hefur starfað á Íslandi í ára-
tugi, en er nú búsettur á Akranesi.
Philippe er búfræðingur að mennt
og hefur alltaf haft mikinn áhuga á
handverki og listiðnaði. Framleiðsla
vefstofunnar var þekkt um allt land
og einnig erlendis. Philippe er mik-
ilsvirtur listhandverksmaður og
hefur einnig kennt á námskeiðum
í mörg ár. Hann er mjög fjölhæf-
ur, vinnur sín verk mest úr íslensku
hráefni og þá helst úr íslensku ull-
inni. Hann vinnur handofnar værð-
arvoðir, sjöl og trefla úr íslensku
bandi, með fjölbreyttum aðferðum,
t.d. saluns-vefnaði og vaðmálsáferð,
bæði fléttað vaðmál og víxlað vað-
mál. Hönnun hans, aðferðir og til-
finning fyrir hráefninu þ.e. íslensku
ullinni er einstaklega góð. Hann
leggur mikla áherslu á að viðhalda
gömlu íslensku handverki.“
mm
Viðurkenningar fyrir samstarf
á sviði hönnunar úr ull
Verðlaunahafarnir.