Skessuhorn - 28.11.2018, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 201810
Einbýlishús á Akranesi
óskast til leigu
Rúmgott einbýlishús óskast til ótíma-
bundinnar leigu á Akranesi og nágrenni.
Skilvirkum greiðslum lofað.
Áhugasamir hafi samband
við Arnór Skúlason
verkefnastjóra fasteignasviðs
Kirkjumálasjóðs í síma
856 1510 eða á netfangið
arnor@biskup.is.
www.kirkjan.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
20%
jólaafsláttur af
þessum frábæru
hleðslutækjum
Fólk á aldrinum 25-34 ára stend-
ur öðrum langt að baki þegar kem-
ur að eldvörnum á heimilinu. Þetta
er niðurstaða könnunar sem Gal-
lup hefur unnið fyrir Landssam-
band slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamanna og Eldvarnabandalagið.
„Hvort sem litið er til fjölda reyk-
skynjara eða slökkvibúnaðar stend-
ur þessi aldurshópur mun lakar að
vígi en aðrir. Kannanir sem Gal-
lup hefur gert reglulega á undan-
förnum árum sýna þó að heimilin
efla almennt eldvarnir og eru þann-
ig betur búin undir að bregðast við
eldsvoða. Um helmingur heimila
hefur nú þann eldvarnabúnað sem
mælt er með, það er reykskynjara,
slökkvitæki og eldvarnateppi,“ seg-
ir í tilkynningu.
Sláandi upplýsingar
„Það er vissulega sláandi að ungt
fólk, sem er líklegt til að hafa
ung börn á heimilinu, er sinnu-
laust gagnvart nauðsynlegum eld-
vörnum. Það er umhugsunarefni
nú þegar við erum að hefja árlegt
Eldvarnaátak slökkviliðsmanna í
grunnskólum um allt land. Hins
vegar sýna kannanir Gallup okkur
að fræðsla um eldvarnir skilar sér
hægt og bítandi þegar á heildina
er litið og ljóst er að stór hluti al-
mennings er mjög meðvitaður um
mikilvægi eldvarna á heimilinu,“
segir Hermann Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri LSS.
Eldvarnir lakastar
hjá 25-34 ára
Tíu prósent svarenda á aldrinum
25-34 ára hafa engan reykskynjara
og önnur 24% aðeins einn, sam-
kvæmt könnun Gallup, en hlutfall
þeirra sem hafa engan reykskynj-
ara er mun lægra í öðrum aldurs-
hópum, allt niður í 3%. Sömu sögu
er að segja þegar litið er til slökkvi-
tækja og eldvarnateppa á heimilum.
Fólk á aldrinum 25-34 ára er mun
ólíklegra til að hafa slíkan búnað á
heimilinu en aðrir. Þannig segjast
aðeins 49% unga fólksins eiga eld-
varnateppi en þetta hlutfall er allt
að 66% í öðrum aldurshópum og
yfir 60 prósent að meðaltali.
Eldvarnaátak hófst 22. nóvember
og stendur fram í byrjun aðventu.
Slökkviliðsmenn heimsækja þá
nemendur í 3. bekk grunnskóla um
allt land og fræða þá um eldvarnir.
mm
Ungt fólk býr við mun
lakari eldvarnir en aðrir
Hjá Vegagerðinni voru í síðustu
viku opnuð tilboð í endurbygg-
ingu 4,8 kílómetra kafla á Fróð-
árheiði á Snæfellsnesi. Með lagn-
ingu nýs vegar frá Valavatni niður
að vegamótum Útnesvegar Ólafs-
víkurmegin lýkur síðasta hluta
endurgerðar vegarins yfir heiðina.
Þar með sér fyrir endann á lang-
þráðu verkefni sem í raun hef-
ur tekið áratugi. Fjögur fyrirtæki
buðu í verkið og reyndist lægsta
tilboðið frá Borgarverki ehf. í
Borgarnesi upp á 385,8 milljón-
ir króna. Það jafngildir 93,7% af
kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar
sem hljóðaði upp á 411 milljónir.
Næstlægsta tilboðið átti Þróttur
á Akranesi, Suðurverk þar á eftir
en hæsta tilboðið kom frá Munch
í Kópavogi upp á 681,3 milljónir
króna. Samkvæmt skilmálum í út-
boðinu skal verkinu að fullu lokið
1. ágúst 2020. mm
Borgarverk bauð lægst í
framkvæmdir á Fróðárheiði
Frá framkvæmdum við næststíðasta áfanga uppbyggingar vegarins yfir
Fróðárheiði. Þá var verktakinn KNH frá Ísafirði. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Guðjón Sigmundsson, staðarhald-
ari á Hernámssetrinu Hlöðum í
Hvalfjarðarsveit, og Linda Björk
Pálsdóttir sveitarstjóri skrifuðu á
fimmtudaginn undir leigusamn-
ing til átta ára fyrir félagsheimilið
og tjaldvæðið að Hlöðum. Áður en
skrifað var undir samninginn þakk-
aði Linda Gauja fyrir að halda til
haga öllum þessum munum og sögu
sem tengist hernáminu í Hvalfirði
og landinu öllu. Hún sagðist upp-
numin að ganga um safnið og sjá
alla munina sem þar eru og sagði
starf Gauja að Hlöðum dýrmætt
fyrir alla í sveitarfélaginu. Þá þakk-
aði Gaui Lindu og sveitarstjórn fyr-
ir samninginn sem hann sagði mik-
ilvægan fyrir áframhaldandi starf-
semi Hernámssetursins.
arg
Hvalfjarðarsveit og Hernáms-
setrið gera leigusamning