Skessuhorn


Skessuhorn - 28.11.2018, Side 12

Skessuhorn - 28.11.2018, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 201812 Hið árlega jólabingó Kvenfélags- ins 19. júní fer fram í sal Landbún- aðarháskóla Íslands á Hvanneyri föstudaginn 30. nóvember klukkan 20. Þessi viðburður hefur nú verið haldinn árlega í tæp fimmtíu ár en Kvenfélagið 19. júní á einmitt 80 ára afmæli á þessu ári. Margir nýir meðlimir hafa gengið í félagið síð- ustu misserin sem er nú fjölmenn- asta kvenfélag Borgarfjarðar en í því eru 55 konur á öllum aldri. Í ár verður bingóið hið allra glæsilegasta en fjölmargir góðir vinningar hafa borist kvenfélags- konum og vilja þær færa öllum sem hönd hafa lagt á plóg kærar þakkir fyrir. Meðal vinninga verða t.d. um tíu hótelgistingar, skartgripir, gjafa- bréf í ýmsa afþreyingu, vöruúttekt- ir, matarkörfur, leikföng, bækur, jólavörur og ýmislegt fleira. Allur ágóði bingósins í ár mun renna til kaupa á endurhæfinga- tæki, svokallaðan Nustep fjölþjálfa, fyrir hjúkrunar- og dvalarheimilið Brákarhlíð í Borgarnesi. Kvenfé- lagið 19. júní gaf samskonar tæki í sjúkraþjálfunarmiðstöð Halldóru í Borgarnesi á síðasta ári og hefur það reynst afskaplega vel. Fjölþjálf- inn gagnast afar fjölbreyttum hópi, m.a. fólki sem er lamað fyrir neðan mitti, í annarri hliðinni eða glímir við annars konar skort á hreyfifærni vegna erfðasjúkdóma, veikinda, aldurs eða slysa. Tækið verður því kærkomin viðbót inn á Brákarhlíð og gæti það auðveldað heimilisfólki sem á jafnvel erfitt með gang að sækja sér hreyfingu og liðkun sem stuðlar að bættri andlegri og líkam- legri heilsu. Í hléi verður hægt að kaupa veit- ingar að hætti kvenfélagskvenna, kaffi, sælgæti og drykkjarföng. Að endingu er gott að minnast á það að ekki verður posi á staðnum og því eingöngu hægt að greiða með reiðufé. -fréttatilkynning Jólabingó Kvenfélagsins 19. júní á föstudag Safnað fyrir endurhæfingartæki á Brákarhlíð Landsréttur staðfesti á miðviku- dag gæsluvarðhaldsúrskurð Hér- aðsdóms Vesturlands yfir konu sem grunuð er um tilraun til manndráps á Akranesi. Konunni er gefið að sök að hafa stungið tengdason sinn með hnífi í brjóstkassann aðfararnótt 10. nóvember sl. Þegar lögregla kom á vettvang var maðurinn alvarlega sár, þar sem mik- ið blæddi úr honum. Lögregla spurði hvað hefði gerst og þá sagðist kon- an hafa stungið manninn. Blóðugur hnífur fannst á vettvangi og konan var handtekin. Maðurinn var flutt- ur á sjúkrahús þar sem hann gekkst undir aðgerð og var ekki í lífshættu. Það varð honum til happs að hnífur- inn virðist hafa runnið á rifjum hans, framhjá brjóstkassanum þar sem hann gekk að minnsta kosti 15 til 20 cm inn, rétt utan við rifbeinin og inn í síðu og bakvöðva. Hafi það valdið mikilli blæðingu. Í úrskurði Lands- réttar kemur fram að árásin hafi verið lífshættuleg. Aðeins hafi verið heppni að hnífurinn gekk niður á rif og rann eftir þeim utan við brjóstholið. Hann hefði hæglega geta stungist á milli rifjanna og inn í brjósthol mannsins með mun alvarlegri afleiðingum. Kvartaði yfir ölvun konunnar fyrr um kvöldið Fram kemur í úrskurði Landrétt- ar að sambýliskona mannsins, dótt- ir ákærðu, hafi verið erlendis þegar árásin átti sér stað. Konan hafi því verið fengin til að gæta ömmubarns síns, sem er dóttir mannsins og sam- býliskonu hann. Maðurinn hafði gef- ið skýrslu hjá lögreglu og greint frá því að þegar hún hefði komið heim um kl. 18:00 hafi hún verið mjög ölv- uð og við drykkju. Maðurinn gerði at- hugasemdir við að hún væri að sinna barninu svo ölvuð. Lögregla hafði fyrr um kvöldið komið að húsinu eft- ir að maðurinn hafði kallað eftir að- stoð. Kvaðst hann hafa gert það eftir að dóttir hans hringdi í sig og kvart- að yfir ölvun ömmu sinnar. Lög- reglumenn tóku eftir ölvunarástandi konunnar í heimsókninni en virtist maðurinn vera í lagi þó hann viður- kenndi að hafa drukkið bjór. Barnið kvaðst ekki vera hrætt vegna þess að faðir þess væri kominn heim. Við svo búið yfirgaf lögregla heimilið, að því er fram kemur í úrskurðinum. Eftir það segir maðurinn að tengdamóðir sín hafi ásakað sig um að hringja í lögregluna og að kvarta yfir ölvun hennar, en að lokum sofn- að í stofunni. Sjálfur kveðst hann hafa lagst til svefns um tíuleytið og þá hafi barnið þegar verið sofn- að. Hann hafi síðan vaknað við að tengdamóðir hans væri komin inn í herbergið og búin að kveikja ljósið. Hún hafi þá öskrað á hann að lög- regluheimsóknin fyrr um kvöldið væri honum að kenna. Maðurinn kveðst þá hafa gengið að henni og ætlað að færa hana út úr herberg- inu, en fundið stungu og byrjað að blæða. Konan hafi þá gengið á brott. Hann segist hafa ætlað að hringja í sambýliskonu sína en ekki fundi far- símann sinn fyrr en hann hringdi í hann úr heimasímanum. Farsímann hafi hann þá fundið, ásamt spjald- tölvu, undir stofusófanum. Fullyrðir maðurinn að konan hafi farið inn í herbergið meðan hann svaf og fjar- lægt bæði símann og spjaldtölvuna. Í framhaldinu segist hann hafa hringt í sambýliskonu sína, en á meðan hafi tengdamóðir hans ógnað honum með svörtum hnífi og öskrað á hann að þetta væri allt honum að kenna. Segir hann sambýliskonuna hafa hringt í móður sína, en farið sjálfur inn í svefnherbergi og lokað sig af. Hann hafi svo hringt aftur í sam- býliskonu sína sem hafi látið hringja eftir lögregluaðstoð. Byrjuð að hreinsa vettvanginn Fram kemur í úrskurði Landsdóms að rannsókn lögreglu á símtölum í og úr farsíma mannsins styðji fram- burð hans um þessa atburðarrás. Skýrsla sem tekin var af sambýlis- konu mannsins staðfesti jafnframt frásögn brotaþola. Kærða hafi tvisv- ar gefið lögreglu skýrslu og sagt frá á svipaðan hátt í bæði skiptin. Fram kemur að hún neiti sök, en frásögn hennar sé óljós og ófullkomin, auk þess sem framburður hennar stangist verulega á við annað sem fram hef- ur komið við rannsókn málsins. Lög- regla segir sterkan grun uppi um að konan hafi ætlað að hindra brotaþola í að komast af vettvangi. Ógnandi hegðun hafi orðið til þess að maður- inn lokaði sig af inni í herbergi. Þá hafi hún skorið á hjólbarða bifreið- ar mannsins og þannig komið í veg fyrir að hún yrði notuð. Einnig seg- ir í úrskurðinum að sterkur grun- ur leiki á að hún hafi verið byrjuð að hreinsa vettvanginn eða koma sönn- unargögnum undan áður en lögregla var kölluð á vettvang. Til marks um það fundust hnífurinn og blóðug föt í bifreið fyrir utan húsið. Mat lögreglu er að með tilliti til almannahagsmuna sé ekki forsvaran- legt að kærða gangi laus. Rannsókn málsins sé vel á veg komin. Lands- réttur féllst á kröfu lögreglu um að úrskurða konuna í gæsluvarðhald til 14. desember næstkomandi. kgk Grunuð um að stinga tengdason sinn Talin hafa reynt að afmá vegsummerki „Starfsfólk OR hefur fengið nóg af rangtúlkunum og ósanngirni sem stjórnmálamenn og fjölmiðlar setja á borð fyrir almenning,“ segir í yfirlýsingu sem starfsmannafélag Orkuveitu Reykjavíkur sendi frá sér síðastliðinn föstudag. „Það sær- ir okkur hvernig stjórnmálamenn og fjölmiðlar tjá sig um vinnustað- inn sem þeir virðast ekki þekkja en leggja sig fram um að gera tor- tryggilegan, rangtúlka niðurstöð- ur vinnustaðagreiningar og skýrslu Innri endurskoðunar með það að markmiði að því er virðist að grafa undan trausti gagnvart fyrirtækinu og þar með því fólki sem þar starf- ar.“ Þá segir að fullyrðingar um að vinnustaðurinn sé rotinn og að þar ríki þöggun séu rangar. „Við hvetj- um ykkur til að kynna ykkur meg- inniðurstöðu þeirrar skýrslu sem nú liggur fyrir og unnin var af sér- fræðingum, sem við sem hjá fyrir- tækinu störfum höfðum ekkert með að gera hver vann. Við minnum á að í landinu gilda lög um persónu- vernd og að starfsfólk sem tjáði sig við gagnaöflun gerði það í trúnaði. Við óskum þess að þið séuð heil í því sem þið tjáið ykkur um og segið satt og rétt frá en dragið ekki upp myndir sem ekki eru til en við höf- um á tilfinningunni að þið vilduð frekar mála. Nú er mál að linni,“ segir í yfirlýsingunni. mm Hafa fengið nóg af rang- túlkunum og ósanngirni Íslenska kokkalandsliðið vann til gullverðlauna fyrir frammistöðu sína á heimsmeistaramótinu í Lúx- emborg sem fram fór um síðustu helgi. Eldaði liðið heita máltíð fyrir tíu manna dómnefnd og 110 gesti í sal. Uppskar það 9,1 í einkunn af tíu mögulegum sem tryggði því gull- medalíu. Mótið fer fram á fjögurra ára fresti og er nú ljóst að íslenska landsliðið verður í fremstu röð sam- fellt í þrjátíu ár. „Við erum gríðar- lega ánægð með þennan árangur enda búið að vinna að undirbúningi í 18 mánuði og þrátt fyrir nokkrar óvæntar uppákomur þá höfum við sýnt það og sannað hér í dag að ís- lenska kokkalandsliðsins er eitt það besta í heimi,“ sagði Björn Bragi Bragason forseti klúbbs matreiðslu- meistara þegar niðurstaðan lá fyrir. Verndari landsliðiðsins er Eliza Reid forsetafrú sem er í Lúxemborg til að fylgja liðinu og hvetja það áfram. Mikill áhugi var á íslenska keppniseldhúsinu en gestir á sýn- ingunni gátu fylgst með framvindu mála í eldhúsinu í gegnum glugga inn í vinnueldhúsið. mm Kokkalandsliðið vann til gullverðlauna í Luxemborg Íslenska kokkalandsliðið eftir að úrslit lágu fyrir. Hægt var að fylgjast með keppendum að störfum.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.