Skessuhorn - 28.11.2018, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 201830
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvernig jólaskraut fer fyrst upp
á þínu heimili og hvenær?
Spurni g
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Jón Halldórsson
Útijólasería sem ég setti upp um
síðustu helgi.
Kolbrún Rafnsdóttir og Eyrún
Einarsdóttir
Jólaljós í glugga og borðskraut í
lok nóvember.
Anna G Barðadóttir
Aðventuljósin fara fyrst upp
svona í kringum 1. desember.
Anna Soffía Hákonardóttir
Ég set fyrst upp jólastjörnur í
gluggann um miðjan nóvember.
Magnús Ólafsson
Jólakúlur í eldhúsið fara alltaf
fyrst upp. Ég setti þær upp síð-
astliðinn sunnudag.
Skallagrímur mætti Þór Þ. í átt-
undu umferð Domino‘s deildar
karla í körfuknattleik. Leikið var í
Þorlákshöfn á fimmtudagskvöld.
Leikurinn var í járnum í fyrri hálf-
leik en í þeim síðari tóku heima-
menn stjórnina og sigruðu að lok-
um með 87 stigum gegn 74.
Mikið jafnræði var með liðunum
í upphafsfjórðungnum. Þór komst
tvisvar fimm stigum yfir en Borg-
nesingar komu til baka og tóku for-
ystuna undir lok fyrsta leikhluta,
22-24. Heimamenn komust yfir að
nýju snemma í öðrum leikhluta og
leiddu næstu mínúturnar. Skalla-
grímur jafnaði metin í 38-38 þeg-
ar þrjár mínútur voru eftir af fyrri
hálfleik og liðin fylgdust að þar til
hálfleiksflautan gall. Staðan í hléinu
var jöfn, 45 stig á lið.
Heimamenn mættu ákveðnari til
síðari hálfleiks, þéttu varnarleik-
inn mjög og létu Skallagrímsmenn
heldur betur hafa fyrir hlutun-
um. Borgnesingar skoruðu aðeins
13 stig í þriðja leikhluta. Á meðan
sigu heimamenn fram úr, hægt en
örugglega og leiddu með 14 stig-
um fyrir lokafjórðunginn, 72-58.
Skallagrímsmenn áttu ekki svör við
góðum leik heimamanna í fjórða
leikhluta frekar en í þeim þriðja.
Þeim tókst að minnka
muninn í tíu stig um
miðbik fjórðungsins en
nær komust þeir ekki
og Þórsarar sigldu sigr-
inum heim á lokamín-
útunum. Lokatölur sem
fyrr segir 87-74, Þór í
vil.
Aundre Jackson var
stigahæstur í liði Skalla-
gríms með 16 stig og
tók hann sex fráköst að
auki. Eyjólfur Ásberg
Halldórsson skoraði 14
stig og tók tíu fráköst,
Matej Buovac skoraði
13 stig og Domagoj
Samac var með tíu stig
og sex fráköst.
Halldór Garðar Her-
mannsson átti frábæran
leik fyrir heimamenn,
skoraði 27 stig með
53% skotnýtingu og gaf
sex stoðsendingar að auki. Niko-
las Tomsick skoraði 19 stig og gaf
ellefu stoðsendingar, Jaka Brodnik
var með 19 stig og fimm fráköst og
Kinu Rochford skoraði 13 stig og
tók fimm fráköst.
Skallagrímur situr í tíunda sæti
deildarinnar með fjögur stig eft-
ir átta leiki, tveimur stigum á eft-
ir næstu liðum fyrir ofan en með
jafn mörg stig og Valur í sætinu
fyrir neðan. Þessi tvö lið mætast í
næstu umferð. Viðureign Skalla-
gríms og Vals fer fram í Borgarnesi
mánudaginn 10. desember næst-
komandi.
kgk
Misstu dampinn í seinni hálfleik
Aundre Jackson og félagar hans í Skallagrími fundu
ekki fjölina sína í seinni hálfleik. Ljósm.
Skallagrímur.
Skallagrímskonur urðu að játa sig
sigraðar af Breiðabliki í níundu
umferð Domino‘s deildar kvenna
á laugardagskvöld. Leikið var í
Kópavogi og lokatölur urðu 85-79,
þar sem Breiðabliki tókst að stela
sigrinum á lokamínútunum eftir
að Skallagrímur hafði leitt nánast
frá upphafi. Var þetta fyrsti sigur
Kópavogsliðsins í deildinni í vetur.
Breiðablik skoraði fyrstu stig-
in en Skallagrímskonur voru mun
sterkari í fyrsta leikhluta og leiddu
með tíu stigum að honum loknum,
18-28. Þær héldu Blikum í svipaðri
fjarlægð stærstan hluta annars leik-
hluta, en tóku síðan góða rispu und-
ir lok fyrri hálfleiks og höfðu gott
16 stiga forskot í hléinu, 38-54.
Breiðabliksliðið mætti mun
ákveðnara til síðari hálfleiks og hélt
Skallagrími í aðeins tveimur stigum
fyrstu sjö mínúturnar eftir hléið og
minnkuðu muninn í eitt stig, 55-56.
Skallagrímur skoraði aðeins tíu stig
allan leikhlutann en var engu að
síður fimm stigum yfir fyrir loka-
fjórðunginn, 59-64. Fjórði leikhluti
var jafn og spennandi. Skallagríms-
konur leiddu að jafnaði með þrem-
ur til fjórum stigum. Þegar tvær
mínútur lifðu hafði Skallagrímur
tveggja stiga forystu, 76-78. Breiða-
blik lagði allt í sölurnar á lokamín-
útunum, náði að komast yfir og
stela sigrinum á síðustu mínútunni
en Skallagrímskonur sátu eftir með
sárt ennið. Lokatölur urðu 85-79,
Breiðabliki í vil.
Shequila Joseph skoraði 25 stig,
reif niður 17 fráköst og gaf sex
stoðsendingar í liði Skallagríms.
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var
með 17 stig, tíu fráköst og sex stoð-
sendingar og Árnína Lena Rúnars-
dóttir skoraði 15 stig.
Sanja Orazovic átti stórleik fyr-
ir Breiðablik, skoraði 31 stig og
tók tíu fráköst. Kelly Faris var ekki
langt á eftir henni með 28 stig, tíu
fráköst og sex stoðsendingar og
Björk Gunnarsdóttir skoraði 17
stig.
Skallagrímskonur sitja í sjötta
sæti deildarinnar með sex stig eft-
ir níu leiki, tveimur stigum á eftir
Val í sætinu fyrir ofan en jafnframt
tveimur stigum fyrir ofan Hauka.
Næst leika Skallagrímskonur í
kvöld, miðvikudaginn 28. nóvem-
ber, þegar þær mæta Keflvíkingum
í Borgarnesi. kgk
Skallagrímskonur
rændar sigrinum
Góður leikur Sigrúnar Sjafnar Ámundadóttur dugði ekki til gegn Breiðabliki.
Ljósm. Körfuknattleiksdeild Breiðabliks.
Ari Gunnarsson hefur látið af þjálf-
un kvennaliðs Skallagríms í Borg-
arnesi. Leikurinn gegn Breiðabliki
á laugardaginn var því hans síð-
asti við stjórnvölinn. Leit er haf-
in að nýjum þjálfara, að því fram
kemur í tilkynningu á Facebook-
síðu Skallagríms. „Meistaraflokks-
ráð kvenna og Ari Gunnarsson
hafa komist að samkomulagi um
að Ari hætti þjálfun meistaraflokks
kvenna. Meistaraflokksráð þakkar
Ara fyrir störf sín fyrir félagið og
óskar honum velfarnaðar í framtíð-
inni,“ segir í tilkynningunni.
Ari tók við
liði Skalla-
gríms í janú-
ar síðastliðn-
um eftir erfitt
gengi fram-
an af vetri.
Liðið sigraði
sex af síðustu
sjö leikjum
deildarinnar
og tryggði sér
sæti í úrslitakeppninni með góðum
endaspretti en féll þar úr leik gegn
Íslandsmeisturum Hauka. kgk
Ari hættur með Skallagrím
Ari Gunnarsson.
Ljósm. úr safni/ glh.
Skagamenn eru komnir aftur á sig-
urbraut í 2. deild karla í körfuknatt-
leik eftir sigur á Leikni R. í sjöundu
umferð deildarinnar. Leikur ÍA og
Leiknis R. fór fram í Kennarahá-
skólanum í Reykjavík síðastlið-
ið föstudagskvöld. Eftir að Leikn-
ir tók forystuna kom ÍA til baka
og vann að lokum 29 stiga sigur,
94-123 í leik þar sem Chaz Frankl-
in gerði sér lítið fyrir og skoraði
hvorki fleiri né færri en 53 stig fyrir
ÍA, sem mun vera það besta á hans
körfuknattleiksferli.
Eftir sigurinn á föstudagskvöld
situr ÍA í sjötta sæti deildarinn-
ar með sex stig eftir sjö leiki, jafn
mörg og liðin fyrir ofan og neðan.
Næst leikur ÍA á föstudaginn, 30.
nóvember næstkomandi, þegar lið-
ið mætir KV á Akranesi. kgk
Chaz með 53 stig í sigri ÍA
Chaz Franklin var iðinn við kolann og
rúmlega það í sigri ÍA á Leikni.
Ljósm. jho.
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnu-
kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni,
féll úr leik eftir tvo hringi á loka-
móti Evrópumótaraðar kvenna
sem fram fór á Spáni um helgina.
Hún lék bæði fyrsta og annan
hring á 76 höggum, eða á samtals
tíu yfir pari og komst ekki í gegn-
um niðurskurðinn. Til þess hefði
hún þurft að leika á fimm yfir pari
samanlagt.
Úrslit helgarinnar þýða að Val-
dís lýkur keppnistímabilinu í 38.
sæti á stigalista Evrópumótarað-
arinnar. Hún lék í tólf mótum á
tímabilinu og endaði einu sinni
meðal tíu efstu þegar hún hafnaði
í 3. sæti á Australian Ladies Clas-
sic Bonville mótinu í Ástralíu.
kgk
Valdís Þóra í 38. sæti stigalistans
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylf-
ingur frá Akranesi. Ljósm. úr safni.
Snæfellingar steinlágu gegn Sindra
þegar liðin mættust í 2. deild karla
í körfuknattleik á sunnudagskvöld,
92-41. Kvöldið fyrir leik dró til
tíðinda úr herbúðum Snæfells, því
Deandre Mason var sendur heim.
Karfan.is greinir frá að Snæfell-
ingum hafi ekki þótt hann vera að
skila sínu fyrir liðið, sem einbeitir
sér að því að þróa unga leikmenn
sína á þessum vetri. Dominykas
Zupkauskas lá í veikindum og lék
því ekki með liðinu og Darrel Flake
er meiddur. Snæfellingar voru því
fáliðaðir, með aðeins átta menn á
skýrslu og áttu sér ekki viðreisn-
ar von gegn Hornfirðingum, sem
tefldu fram sínu sterkasta liði. Snæ-
fell situr stigalaust á botni deildar-
innar eftir sjö leiki, en á leik til góða
á Sindra í sætinu fyrir ofan. Næst
leikur Snæfell gegn Vestra föstu-
daginn 30. nóvember. kgk
Snæfellingar
burstaðir