Skessuhorn - 12.12.2018, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 50. tbl. 21. árg. 12. desember 2018 - kr. 750 í lausasölu
arionbanki.is
Gjafakort Arion banka er alltaf rétta jólagjöfin
Þú velur fjárhæðina, þiggjandinn velur gjöfina.
Gjafakort Arion banka er hægt að nota hvar sem
er og fæst í öllum útibúum okkar.
Gjöf sem
gleður alla
gleður alla
Nýtt!
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
Landnámssetur
í desember
sími 437-1600
Upplestur úr bókum
laugardaginn
15. desember kl. 15:00
Gunnar Sæmundsson
frá Hrútatungu
Lilja Magnúsdóttir frá
Hraunsnefi í Borgarfirði
Bjarni Harðarson bóksali á Selfossi
Halldóra Thoroddsen
rithöfundur í Reykjavík
Tilboð á heitu súkkulaði með
rjóma & piparkökum
SKATA SKATA SKATA
Þorláksmessuskata 23. desember
Nauðsynlegt er að panta borð
Nánar um dagskrá á
landnam.is/vidburdir
Í blíðskaparveðri síðastliðinn laugardag var mannvirkið Guðlaug vígt við Langasand á Akranesi. Guðlaug var byggð í grjótvarnargarðinum neðan við stúku Akranes-
hallar og Aggapall og samanstendur af útsýnispalli og laugum á tveimur hæðum. Í neðri laugina rennur úr þeirri efri en þegar stórstreymt er nær sjór auk þess að flæða
í hana. Það er Akraneskaupstaðar sem á og rekur mannvirkið, en það var byggt með styrkjum sem fengust annars vegar úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða og
hins vegar úr minningarsjóði hjónanna frá Bræðraparti. Á meðfylgjandi mynd njóta íbúar þess að vera í lauginni. Myndin var tekin á sunnudaginn að afloknu sjósundi.
Ljósm. Guðni Hannesson. Sjá nánar bls. 10.
Það sem af er þessu ári hefur
Slökkvilið Akraness og Hvalfjarð-
arsveitar farið í 38 útköll af ýmsu
tagi. Flest útköllin hafa verið vegna
elds í byggingum, eða ellefu talsins
á jafn mörgum mánuðum. Með-
al annarra verkefna má nefna að
fimm sinnum fóru slökkviliðsmenn
í vatnsdælingu, jafn oft stóðu þeir
öryggisvaktir, farið var í þrjú útköll
vegna umferðarslysa og gróðureld-
ar voru þrír. Enn önnur verkefni
voru útkall vegna ammoníaksleka,
æfingar og hreinsunarstarf. Tólf
útköll slökkviliðsins voru á hæsta
forgangi, F1, en þá eru taldar líkur
á að mannslíf geti verið í hættu. Tíu
útkallana voru á öðrum forgangi og
átján á þriðja.
Að sögn Þráins Ólafssonar
slökkviliðsstjóra er um töluverða
fjölgun útkalla að ræða á þessu ári
og sérstaklega er þróunin slæm í
fjölda húsbruna. Til samanburðar
voru útköll slökkviliðsins 25 árið
2017 og árið 2016 voru 32 útköll.
Árið 2016 voru fimm útköll vegna
elds í byggingum og tvö árið 2017.
Fjöldi húsbruna hefur því marg-
faldast á þessu ári, sem vissulega er
áhyggjuefni, að sögn Þráins.
Fjórtán sóttu um störf slökkvi-
liðsmanna hjá Slökkviliði Akraness
og Hvalfjarðarsveitar þegar aug-
lýst var í haust. „Það voru allir sem
sóttu um teknir í fornám og nú er
verið að velja úr hópnum. Við vilj-
um geta tryggt að fjöldi slökkviliðs-
manna hjá okkur fari í 30, en þeir
eru 23 í dag. En það er að fleiru að
hyggja. Í reglugerð sem gefin var út
1. ágúst síðastliðinn er bundið í lög
að þegar íbúafjöldi er yfir 5000 á
starfssvæði slökkviliðs skuli það vera
mannað fjórum starfandi slökkvi-
liðsmönnum á stöð á dagvinnutíma
og fast skipulag utan þess. Nú er
íbúafjöldinn á okkar starfssvæði um
átta þúsund. Slökkviliðsstjóri er enn
sem komið er eini fasti starfsmaður
slökkviliðsins og þarf auk þess að
sinna brunavarnaeftirliti sem skil-
greint er 160% starfshlutfall á okk-
ar svæði. Það sjá því allir að sveit-
arfélögin verða að gefa verulega í
hvað þennan mikilvæga málaflokk
snertir. Það er einfaldlega ekki verj-
andi að þurfa að treysta á að nægur
mannskapur sé alltaf tiltækur til út-
kalls og slökkvistarfa með óbreyttu
skipulagi,“ segir Þráinn í samtali við
Skessuhorn. Hann bætir því við að
nú sé á lokametrunum gerð bruna-
varnaáætlunar. Í henni sé tekið mið
af þeim kröfum sem gerðar voru í
reglugerðinni fyrr á þessu ári. „Ég
er því vongóður um að aukið fjár-
magn fáist í málaflokkinn,“ segir
Þráinn.
mm
Að jafnaði einn húsbruni í mánuði
Frá einu af ellefu útköllum vegna elds í byggingum á árinu.
20 ÁR