Skessuhorn - 12.12.2018, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMbER 20188
Gripinn tvisvar í
sömu vikunni
VESTURLAND: Tvisvar sinn-
um í vikunni sem leið hafði Lög-
reglan á Vesturlandi afskipti af
ökumanni vegna gruns um akst-
ur undir áhrifum ávana- og fíkni-
efna í nágrenni Akraness. Reynd-
ist sami maðurinn vera á ferðinni
í bæði skiptin. Var hann stöðvaður
með fjögurra daga millibili. Auk
þess að vera grunaður um akst-
ur undir áhrifum reyndist öku-
maðurinn vera réttindalaus. Ekki
voru fleiri teknir við akstur undir
áhrifum í umdæminu í liðinni viku
en allt of margir óku of hratt, að
sögn lögreglu. Lögregla tók skurk
í stöðubrotum í borgarnesi í vik-
unni sem leið. Alls voru tólf öku-
menn sektaðir fyrir að leggja bif-
reiðum sínum ólöglega. -kgk
Týndi kókaíninu
sínu
AKRANES: Poki fannst inni á
gangi í fjölbýlishúsi á Akranesi í
liðinni viku. Þeim sem fann pok-
ann þótti hann eitthvað dularfullur
og gerði því Lögreglunni á Vest-
urlandi viðvart. Reyndist pokinn
innihalda kókaín og virðist sem
eigandinn hafi einfaldlega týnt
efninu. Enginn hefur haft sam-
band og gefið sig fram sem eiganda
kókaínsins, að sögn lögreglu. Síð-
astliðinn föstudag fór lögregla inn
í hús í nágrenni Akraness og lagði
þar hald á kannabisefni og búnað
til ræktunar. Auk þess var lagt hald
á landa og gambra, auk búnaðar til
landaframleiðslu. Er þetta í annað
sinn á stuttum tíma sem Lögregl-
an á Vesturlandi stöðvar ólöglegt
brugg í heimahúsi. -kgk
Fasteigna-
viðskipti í
nóvember
VESTURLAND: Alls var 36
kaupsamningum um fasteignir
á Vesturlandi þinglýst í nóvem-
ber. Þar af voru 12 samningar um
eignir í fjölbýli, 18 samningar um
eignir í sérbýli og sex samningar
um annars konar eignir. Heildar-
veltan var 1.143 milljónir króna
í þessum viðskiptum og meðal-
upphæð á samning því 31,8 millj-
ón króna. Af þessum 36 voru 14
samningar um eignir á Akranesi.
Þar af voru tíu samningar um
eignir í fjölbýli og fjórir samn-
ingar um eignir í sérbýli. Heild-
arveltan var 543 milljónir króna
og meðalupphæð á samning 38,8
milljónir króna. -mm
Veruleg ásókn í
óverðtryggð lán
LANDIÐ: Ásókn í bæði óverð-
tryggð lán og fasta vexti hef-
ur aukist verulega á undanförn-
um misserum. Í samantekt Við-
skiptablaðsins kemur fram að
taka nýrra óverðtryggðra lána
umfram uppgreiðslur hjá bönk-
unum hefur vaxið um 280% á
fyrstu tíu mánuðum ársins miðað
við sama tímabil fyrir ári. Þá hafa
ný íbúðalán með óverðtryggðum
föstum vöxtum numið 31,8 millj-
örðum króna fyrstu tíu mánuði
ársins miðað við um 6,7 milljarða
króna á sama tímabili í fyrra, sem
samsvarar 370% vexti milli ára.
Þá hefur dregið úr nýjum verð-
tryggðum lánum að frádregnum
uppgreiðslum hjá bönkunum um
36% á fyrstu tíu mánuðum árs-
ins. -mm
Skylt að taka
sýni
BÚ: Matvælastofnun vill
minna sauðfjáreigendur
á að láta taka sýni úr full-
orðnu fé til riðuskimun-
ar. „Ef afföll verða á kind-
um þá er mikilvægt að hafa
samband við héraðsdýra-
lækni sem mun sjá til þess
að sýnin séu tekin eða hann
leiðbeinir við að senda
hausa beint á Keldur. Sýna-
tökurnar og sendingar-
kostnaður í þessu samhengi
er bændum að kostnaðar-
lausu,“ segir í tilkynningu.
„Sýni úr öllu fullorðnu fé
sem drepst eða er fellt af
öðrum ástæðum en elli
eða til fækkunar eru afar
mikilvæg sýni til að reyna
eins og kostur er að ná ár-
angri í að útrýma riðu hér
á landi. Aðgerðir til útrým-
ingar riðu hófust árið 1986
og hefur náðst verulegur
árangur fram til þessa. Ef
kind sýnir einkenni riðu-
veiki er eigendum og um-
ráðamönnum sauðfjár skylt
að tilkynna það héraðs-
dýralækni. Á sýktum svæð-
um skal ekki hýsa aðko-
mufé né fóðra eða brynna
því með heimafé, hvorki
við fjárrag að hausti eða
að vori né á öðrum tímum
ársins. Ef hýsingin er óum-
flýjanleg með tilliti til vel-
ferðar fjárins skal ekki nota
til þess fjárhús, hlöður eða
fjós, heldur skal nota annan
húsakost.“ -mm
Kvenfélag Álftaneshrepps á Mýr-
um færði nýverið brákarhlíð og
Hollvinasamtökum heimilisins tvö
hundruð þúsund króna peninga-
gjöf. Gjöfin er framlag til byggingar
gróðurhúss í garði við brákarhlíð.
„Þetta er fyrsta gjöfin sem berst til
þessa verkefnis í kjölfar umfjöllunar
í Skessuhorni í haust þar sem þenn-
an draum okkar um gróðurhús bar
á góma. Þessir fjármunir sem um
ræðir eru ágóði af jólabingói Kven-
félagsins á síðasta ári,“ segir björn
bjarki Þorsteinsson framkvæmda-
stjóri brákarhlíðar.
Framundan er næsta bingó Kven-
félags Álftaneshrepps og verður það
í Lyngbrekku sunnudaginn 16. des-
ember klukkan 16:00.
mm
Fyrsta gjöfin í sjóð til byggingar
gróðurhúss í Brákarhlíð
Frá afhendingu gjafarinnar. F.v. Björn Bjarki Þorsteinsson, Svanhildur Björk
Svansdóttir, formaður Kvenfélags Álftaneshrepps, Svandís Bára Steingrímsdóttir
gjaldkeri og Halla Magnúsdóttir, forstöðumaður þjónustusviðs í Brákarhlíð.
Nemendur í tíunda bekk
Grunnskóla Grundar-
fjarðar gerðu víðreist í
liðinni viku. brugðu sér
í skólaferðalag til Kóngs-
ins Kaupmannahafnar.
Haldið var utan síðast-
liðinn föstudag og komið
heim í gær, þriðjudag. Í
hópnum voru ellefu nem-
endur og fimm foreldrar.
Meðal dagskrárliða var
heimsókn í Jónshús. Á
meðfylgjandi mynd eru
ungmennin við skrif-
borð Jóns Sigurðsson-
ar. Á söfnum hér á landi
eru varðveitt um sex þús-
und sendibréf og svör við
erindum sem bárust Jóni.
Mörg þeirra voru skrifuð
við þetta borð. Heimili
Ingibjargar Einarsdóttur
og Jóns Sigurðssonar er við Øster
Voldgade 12. Það var miðstöð Ís-
lendinga í Kaupmannahöfn allt frá
1852 til 1879. Húsið hefur verið í
eigu Alþingis Íslendinga frá árinu
1967 þegar Carl Sæmundsen stór-
kaupmaður gaf það í minningu
Jóns og Ingibjargar.
Daginn áður en grundfirski
hópurinn kom í Jónshús var opn-
uð sýningin Heimili Ingibjargar
Einarsdóttur og Jóns Sigurðsson-
ar, en húsið hefur nú verið endur-
gert á grundvelli heimilda um líf
þeirra hjóna í Kaupmannahöfn,
byggingasögulegra rannsókna á
íbúðinni sjálfri auk sagnfræðilegra
rannsókna á heimilislífi um mið-
bik 19. aldar í Kaupmannahöfn.
mm/ Ljósm. Björg Ágústsdóttir
Settust við skrifborð Jóns forseta