Skessuhorn


Skessuhorn - 12.12.2018, Qupperneq 31

Skessuhorn - 12.12.2018, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMbER 2018 31 Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Ísak bergmann Jóhannesson og Oliver Stefánsson hafa gengið til liðs við sænska liðið IFK Norrköp- ing frá ÍA. Greint er frá félagskipt- unum á heimasíðu Knattspyrnu- félags ÍA. Ísak er 15 ára gamall og hefur spilað einn leik með meistaraflokki ÍA í 1. deild karla. Hann á að baki sjö leiki fyrir U17 ára landslið Ís- lands þar sem hann hefur skorað sjö mörk. Þá hefur hann einnig spilað sjö leiki fyrir U16 ára landsliðið og skorað í þeim tvö mörk. Oliver er 16 ára gamall og hef- ur sömuleiðis leikið einn leik með meistaraflokki í 1. deildinni. Hann hefur leikið einn leik með U18 ára landsliðinu, sjö leiki og eitt mark með U17 og þrjá leiki með U16. báðir voru þeir lykilmenn í liði 2. flokks karla sem fagnaði Íslands- meistaratitlinum síðastliðið sum- ar, í fyrsta sinn í 13 ár. báðir eiga þeir stutt að sækja knattspyrnugen- in. Ísak er sonur Jóhannesar Karls Guðjónssonar, fyrrum atvinnu- manns og núverandi þjálfara meist- araflokks karla og Oliver er sonur Stefáns Þórs Þórðarsonar, fyrrver- andi atvinnumanns í knattspyrnu. kgk Tveir ungir Skaga- menn til Norrköping Oliver Stefánsson og Ísak Bergmann Jóhannesson. Ljósm. KFÍA. Um síðustu helgi fór Íslansmót (h)eldri spilara í bridds fram í Reykjavík. Íslandsmeistarar 2018 eru hjónin björk Jónsdóttir og Jón Sigurbjörnsson. Í öðru sæti voru Aðalsteinn Jörgensen og Sig- urður Sverrisson, en þriðja sæt- ið tóku Hvanneyringarnir Lárus Pétursson og Sveinbjörn Eyjólfs- son. Forysta hjónanna var nokkuð afgerandi en athygli vakti að ein- ungis munaði 0,1 stigi á öðru og þriðja sæti. mm/ Ljósm. bí. Íslandsmót eldri spilara Skallagrímur og Valur áttust við í Domino‘s deild karla í körfuknatt- leik á mánudagskvöld. Leikið var í borgarnesi og var góð stemning á pöllunum að vanda. Leikurinn var jafn og spennandi en í lokafjórð- ungnum sigu gestirnir fram úr og tryggðu sér að lokum níu stiga sig- ur, 96-105. Leikurinn hófst á mikilli þriggja stiga skotsýningu beggja liða, sem hittu þó misvel. Leikurinn var hrað- ur og líflegur, Skallagrímsmenn höfðu heldur yfirhöndina framan af en Valsmenn áttu lokaorðið í fyrsta leikhluta og leiddu með einu stigi að honum loknum, 21-22. Gestirn- ir byrjuðu betur í öðrum fjórðungi en heimamenn náðu að vinna sig inn í leikinn aftur og aðeins mun- aði tveimur stigum í hléinu. Valur leiddi, 48-50. Skallagrímsmenn mættu ákveðn- ir til síðari hálfleiks og jöfnuðu met- in. Liðin fylgdust að næstu mínút- urnar þar til Valur náði yfirhönd- inni á ný og leiddi með fimm stig- um fyrir lokafjórðunginn, 71-76. Í fjórða leikhluta náði Valur að slíta sig aðeins frá Skallagrími. Gestirnir komust þrettán stigum yfir snemma í leikhlutanum og lögðu þar grunn að sigrinum. borgnesingar náðu ekki að koma til baka og lokatölur urðu 96-105, Valsmönnum í vil. Aundre Jackson var atkvæða- mestur í liði Skallagríms með 28 stig og tíu fráköst. Domagoj Samac skoraði 24 stig og tók fimm fráköst og bjarni Guðmann Jónsson var með 17 stig og sjö fráköst. Kendall Lamont Anthony átti stórleik fyrir Val og var að öðrum ólöstuðum besti maður vallarins. Hann skoraði 48 stig, tók fimm frá- köst og gaf sjö stoðsendingar. Aleks Simeonov skoraði 13 stig og tók tólf fráköst og þeir benedikt Grön- dal og Austin Magnús bracey skor- uðu ellefu stig hvor. Skallagrímur situr í ellefta sæti deildarinnar með fjögur stig eft- ir níu leiki, tveimur stigum á und- an botnliði breiðabliks en tveim- ur stigum á eftir næstu liðum fyrir ofan. Næsti andstæðingur Skalla- gríms er topplið Tindastóls. Liðin mætast norður á Sauðárkróki ann- að kvöld, fimmtudaginn 13. des- ember. kgk Misstu gestina fram úr sér á lokasprettinum Bjarni Guðmann Jónsson og félagar hans í Skallagrími máttu játa sig sigraða gegn Val. Ljósm. Skallagrímur. Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar eftir hörkuleik gegn Stjörnunni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Garðabæ á laugardag og lokatölur urðu 73-62, heimakonum í vil. Skallagrímskonur höfðu yfir- höndina í upphafi leiks og leiddu 4-8 þegar fyrsti leikhluti var hálfn- aður. Þá tók Stjarnan forystuna og leiddi 16-14 eftir upphafsfjórðung- inn. Mikið jafnræði var með liðun- um í öðrum leikhluta og munaði ekki nema örfáum stigum lengst framan af. Þegar dró nær hálf- leik tók Stjarnan þó að síga örlítið lengra fram úr og hafði átta stiga forskot í hléinu, 41-33. Stjarnan hélt fast um forystuna í þriðja leikhluta en Skallagrímskon- ur voru aldrei langt undan. Næst komust þær fimm stigum frá þeim seint í leikhlutanum en Stjarnan átti lokaorðið og fór með sjö stiga for- skot inn í lokafjórðunginn. Hann fór rólega af stað þar sem hvor- ugt lið skoraði fyrstu mínúturnar. Eftir það voru Skallagrímskonur heldur öflugri og færðust hægt en örugglega nær Stjörnunni. Stöð- ugt meiri spenna færðist í leikinn og þegar tvær mínútur voru eftir höfðu Skallagrímskonur minnkað muninn í tvö stig, 62-60 og leik- urinn galopinn. En þá tók Stjarnan ótrúlegan endasprett þar sem liðið skoraði ellefu stig gegn tveimur og tryggði sér sigurinn, 73-62. Shequila Joseph skoraði 20 stig og tók 14 fráköst í liði Skallagríms. bryesha blair var með 20 stig einn- ig, sex fráköst og sjö stoðsending- ar. Danielle Rodriguez átti stórleik fyrir heimaliðið, skoraði 23 stig, tók 13 fráköst, gaf átta stoðsend- ingar, stal fjórum boltum og varði fimm skot. bríet Sif Hinriksdóttir var með 15 stig og Maria Florencia Palacios skoraði tólf. Skallagrímur situr í sjötta sæti deildarinnar með sex stig eftir ell- efu leiki, jafn mörg og Haukar í sætinu fyrir neðan en fjórum stig- um á eftir Val í sætinu fyrir ofan. Næst leikur Skallagrímur í kvöld, miðvikudaginn 12. desember, þeg- ar liðið mætir Snæfelli í Vestur- landsslag í borgarnesi. kgk/ Ljósm. úr safni/ Skallagrímur. Skallagrímskonur töpuðu gegn Stjörnunni Snæfell sigraði KR örugglega, 64-46, í toppslag Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi á laugardag. Snæfell byrjaði leikinn mun betur og hélt KR í aðeins einu stigi fyrstu sex mínútur leiksins. Eftir það náðu gestirnir góðum spretti og minnk- uðu muninn í 14-12 en Snæfells- konur leiddu 18-14 að fyrsta leik- hluta loknum. Annar leikhluti var frekar skrítinn. Hann fór hægt af stað, en það var aðeins lognið á undan storminum. Snæfellskon- ur náðu síðan með frábærum kafla að breyta tveggja stiga forystu í 15 stiga forskot, 33-18. En þá var eins og lok hefði verið sett á körfuna, því þær skoruðu ekki meira síðustu fjórar mínútur fyrri hálfleiks. KR minnkaði muninn á meðan niður í níu stig og Snæfell leiddi í hléinu með 33 stigum gegn 24. Þriðji leikhluti fór hægt af stað og ekkert stig var skorað fyrstu mínút- urnar. Þá tóku Snæfellskonur góða rispu, komust í 39-25 og virtust hafa náð góðum tökum á leiknum. Þær leiddu með tveimur stigum fyr- ir lokafjórðunginn og hleyptu KR- liðinu aldrei nálægt sér aftur. Þvert á móti juku þær forskotið hægt en örugglega allan fjórða leikhluta og sigruðu að lokum stórt, 64-46. Kristen McCarthy var atkvæða- mest í liði Snæfells með 24 stig, 13 fráköst og sex stoðsendingar. Ange- lika Kowalska skoraði 13 stig og tók átta fráköst en aðrar höfðu minna. Vilma Kesanen skoraði 14 stig fyrir KR og var sú eina úr liði gest- anna sem komst í tveggja stafa tölu á stigatöflunni. Með sigrinum lyfta Snæfells- konur sér upp að hlið Keflavíkur á toppi deildarinnar. bæði lið hafa 18 stig eftir ellefu leiki. Næsti leikur Snæfells er Vesturlandsslagur gegn Skallagrími. Sá leikur fer fram í borgarnesi í kvöld, miðvikudaginn 12. desember. kgk Kristen McCarthy fór fyrir liði Snæfells sem sigraði stórt í toppslag helgarin- nar. Ljósm. úr safni. Öruggur sigur Snæfells í toppslagnum

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.