Fréttablaðið - 16.11.2019, Qupperneq 4
Fáðu fréttablað dagsins í
tölvupósti kl. 3.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Þorsteinn Már
Baldvinsson
forstjóri
Samherja
vék tímabundið
úr starfi sínu
vegna uppljóstr-
ana um meintar
mútugreiðslur í Nami-
bíu. „Ég er dapur yfir þessum
kringumstæðum,“ sagði í yfir-
lýsingu frá Björgólfi Jóhannssyni,
sem tók við forstjórakef linu.
Dovelyn
Rannveig Mendoza
sérfræðingur á
sviði fólksf lutninga
f lutti til Íslands frá Filippseyjum
er hún var sextán
ára eftir langan
aðskilnað frá
mömmu sinni.
„Ákvörðun
mömmu að
f lytja til Íslands
og fara að vinna í
verksmiðju bjargaði
okkur frá miklum erfiðleikum.“
Aðalheiður Borg-
þórsdóttir
bæjarstjóri
á Seyðisfirði
neitar að greiða
reikning frá
Matvælastofnun
sem réð björg-
unarsveit til að ná
kindum úr fjalli. „Það þótti ekki
forsvaranlegt að fara eftir fénu á
þeim tímapunkti,“ sagði hún.
Þrjú í fréttum
Dapurleiki,
bjargræði
og björgun
TÖLUR VIKUNNAR 10.11.2019 TIL 16.11.2019
10
prósent Íslendinga sinna umönn-
un óvinnufærra fjölskyldumeð-
lima og er það mun hærra hlutfall
en í öðrum löndum Evrópu.
100
milljónum króna
var á lokametrum
gerðar fjárlaga-
frumvarps bætt
við til að halda
megi gamla Herj-
ólfi haffærum.
12
milljónir króna er upphæð miska-
bótakröfu dóttur Kanadamanns
sem lést í flugslysi í Barkárdal í
Eyjafirði sumarið 2015.
11
skoruð mörk urðu
niðurstaðan hjá
Tjörva Þorgeirs-
syni, leikmanni
Hauka, er lið hans
lék gegn Íslands-
meisturum Selfoss.
54,4
megavattstundir af rafmagni er
orkunotkun á Íslandi reiknuð á
hvern íbúa. Íslendingar nota mesta
orku af þjóðum heimsins.
jeep.is
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
JEEP® RENEGADE LIMITED - Verð á sýningarbíl: 4.990.000 kr.
JEEP® RENEGADE TRAILHAWK - Verð á sýningarbíl: 5.490.000 kr.
JEEP® CHEROKEE LONGITUDE LUXURY - Verð á sýningarbíl: 7.490.000 kr.
JEEP® CHEROKEE LONGITUDE LUXURY - Verð á sýningarbíl: 7.990.000 kr.
JEEP® CHEROKEE LIMITED - Verð á sýningarbíl: 8.790.000 kr.
ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
ÖRFÁIR
SÝNINGARBÍLAR
Á FRÁBÆRU
VERÐI
SAMGÖNGUMÁL „Þetta er unnið
á grundvelli gildandi samgöngu-
áætlunar þar sem var samþykkt
að skoða fjölbreyttar leiðir við
fjármögnun stórra framkvæmda,“
segir Sigurður Ingi Jóhannsson,
samgöngu- og sveitarstjórnarráð-
herra, um drög að frumvarpi um
samvinnuverkefni um vegafram-
kvæmdir.
Frumvarpið hefur nú verið kynnt
í samráðsgátt stjórnvalda en sam-
kvæmt því fær Vegagerðin heimild
til að ganga til samninga við einka-
aðila um samvinnuverkefni vegna
sex tiltekinna vegaframkvæmda.
Þau verkefni sem um ræðir eru
hringvegur norðaustan Selfoss
og brú á Ölfusá, hringvegur um
Hornafjarðarfljót, Axarvegur, tvö-
földun Hvalfjarðarganga, hring-
vegur um Mýrdal og jarðgöng í
Reynisfjalli og Sundabraut.
Samkvæmt samgönguáætlun er
gert ráð fyrir að veggjöld standi
undir helmingi fjármögnunar vegar
um Hornafjarðarfljót og Axarveg.
Hinar fjórar framkvæmdirnar yrðu
hins vegar fjármagnaðar að fullu
með veggjöldum.
Skal gjaldtaka ekki hefjast fyrr
en opnað hefur verið fyrir umferð
um viðkomandi umferðarmann-
virki. Þá skal gjaldtakan ekki
standa lengur en í 30 ár.
Sigurður Ingi segir að þau verk-
efni sem um ræðir séu valin út frá
þeim skilyrðum að önnur leið sé í
boði, þau séu skýr og afmörkuð og
það sé þrýstingur um að þeim sé
f lýtt þótt þeim hafi ekki verið for-
gangsraðað í samgönguáætlun.
„Ein af forsendunum fyrir svona
gjaldtöku er að það sé raunveru-
legur ávinningur í því að fara stytt-
inguna eða nýju leiðina. Þú fáir
fjárhagslegan ávinning þó svo þú
greiðir.“ Of snemmt sé hins vegar að
segja til um fjárhæð veggjaldanna.
Sigurður Ingi segir að auðvitað
hefði verið hægt að fara þá leið að
smíða almennt frumvarp um sam-
vinnuverkefni þar sem engin verk-
Veggjöld nýtt til framkvæmda
Sex samgönguverkefni eru tilgreind í frumvarpsdrögum um vegaframkvæmdir. Sundabraut og tvö-
földun Hvalfjarðarganga eru þar á meðal en ráðgert er að gjaldtakan standi ekki lengur en í 30 ár.
5
6 4
3
2
1
efni væru tilgreind. „Þá værum
við hins vegar komin í þá stöðu að
það væri verið að taka mjög stórar
ákvarðanir án aðkomu Alþingis.
Þessi leið er lýðræðislegri og þingið
getur auðvitað bætt við fram-
kvæmdum eða fækkað þeim.“
Þá þurfi að huga vel að tíma-
setningu verkefnanna, sérstaklega
í tengslum við samgöngusáttmála
höfuðborgarsvæðisins. „En það
góða við þessi sex verkefni er að
þau spanna svolítið stóran hluta
af landinu. Dreifingin gæti þannig
orðið ágæt og þau eru líka af mis-
munandi stærðargráðu.“
Aðspu rðu r seg ist Sig u rðu r
Ingi bjartsýnn á að áhugasamir
fjárfestar finnist til að koma að
umræddum framkvæmdum. „Það
hafa margir komið niður í ráðu-
neyti alveg frá því við fórum að
viðra svona hugmyndir og lýst yfir
áhuga sínum.“
Frumvarpsdrögin verða nú í
umsagnarferli til 28. nóvember.
Sigurður Ingi segist reikna með því
að unnið verði hratt og vel úr þeim
og málið komist inn á þingið fyrir
jól. sighvatur@frettabladid.is
✿ Veggjöld koma við sögu í fjármögnun sex verkefna
1. Axarvegur
Kostnaðarmat:
4 milljarðar
Núverandi umferð:
220 bílar á dag
2. Hringvegur um
Hornafjarðarfljót
Kostnaðarmat:
4,9 milljarðar
Áætluð umferð
við opnun:
1.200 bílar á dag
3. Hringvegur um
Mýrdal og jarðgöng
í Reynisfjalli
Kostnaðarmat:
6,5-7,9 milljarðar
Núverandi umferð:
2.600 bílar á dag
4. Hringvegur
norðaustan Selfoss,
brú á Ölfusá
Kostnaðarmat:
6,1 milljarður
Áætluð umferð
við opnun:
5.500 bílar á dag
5. Tvöföldun
Hvalfjarðarganga
Kostnaðarmat:
21,8 milljarðar
Núverandi umferð:
7.300 bílar á dag
6. Sundabraut
Kostnaðarmat:
60-74 milljarðar
Áætluð umferð
við opnun (2030):
11.400 yfir Kollafjörð,
32.300 yfir Elliðaárvog
1 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:3
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
3
F
-D
A
5
4
2
4
3
F
-D
9
1
8
2
4
3
F
-D
7
D
C
2
4
3
F
-D
6
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K