Fréttablaðið - 16.11.2019, Síða 6

Fréttablaðið - 16.11.2019, Síða 6
DÓMSMÁL Landsréttur hefur þyngt refsingu yfir Nadeem Maqbool sem dæmdur var í Héraðsdómi Reykja- víkur í lok síðasta árs fyrir að afla sér kennitölu hjá Þjóðskrá með föls- uðu vegabréfi. Nadeem fékk fimm mánaða skilorðsbundinn dóm í hér- aði eftir að hann játaði þau brot sem hann var ákærður fyrir. Þar sem dómurinn var skilorðsbundinn var ekki unnt að draga frá refsingunni tæplega átta vikna gæsluvarðhalds- vist sem hann hafði verið látinn sæta, meðal annars vegna rann- sóknar annarra sakamála sem hann reyndist ekki eiga neinn hlut að. Með dómi Landsréttar í gær var orðið við kröfu ákæruvaldsins og dómi yfir Nadeem breytt í fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi. Er í dómsorði kveðið á um að dagar hans í gæsluvarðhaldi skuli dregnir frá refsingunni. „Óréttlæti venst illa,“ sagði Páll Rúnar M. Kristjánsson verjandi, inntur eftir viðbrögðum við hinum nýfallna dómi en við meðferð málsins í Landsrétti sagði hann það í hróplegu ósamræmi við jafn- ræðisreglu íslensks réttar að skjól- stæðingur hans búi við lakari rétt en aðrir í sambærilegum málum. Hann sagði niðurstöðu nýjustu dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í sambærilegum málum alltaf þá sömu; 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Engum þeirra dóma hefði verið áfrýjað af hálfu ákæruvaldsins en málin ættu það einnig öll sam- merkt að enginn sakborninganna hefði sætt gæsluvarðhaldi. „Mál þetta hófst á einhverjum furðulegum misskilningi þar sem ákærði var ranglega bendlaður við mansalsmál en hinir grunuðu í því máli eru pakistanskir ríkis- borgarar. Þessi grunur átti ekki við rök að styðjast en einhvern veginn sogaðist ákærði inn í það mál, lík- lega fyrir þær sakir að vera frá Pak- istan,“ sagði Páll Rúnar við meðferð málsins í Landsrétti í síðustu viku. Ákvörðun um áfrýjun vakti furðu Páls Rúnars. Ljóst væri að hún hefði þann eina tilgang að bera í bætifláka fyrir gæsluvarðhaldsvist mannsins og freista þess að losa ríkið undan bótaskyldu fyrir ólög- mæta frelsissviptingu. Nadeem kom hingað til lands árið 2017 á sínu eigin vegabréfi og óskaði eftir alþjóðlegri vernd. Hann notaði fyrst fölsuð skilríki eftir að umsókn hans var hafnað en hann óttaðist þá að verða sendur til heimalands síns þar sem hann sé réttdræpur fyrir þær sakir að hafa komið manni til aðstoðar sem ekki er múslimi. Páll Rúnar vék einnig að tíma Nadeem hér á landi. „Hann hefur verið upptekinn við að elda mat og baka brauð. Hann er listakokkur og er menntaður á sínu sviði í hótel- og veitingaskóla. Hann er það hæfileikaríkur að þegar hann var settur í gæsluvarðhald þurfti að taka rétti af matseðli veitinga- hússins sem hann vann á, af því að enginn annar en hann var fær um að elda þá. Þetta er góður drengur sem mætir til vinnu alla daga. Hann hefur eignast vini og er vel liðinn af þeim sem hann þekkja.“ Engar ákærur hafa verið gefnar út í tengslum við mansalsmálið. Meintur höfuðpaur þess máls var úrskurðaður í gæsluvarðhald 9. október í fyrra og sat í gæsluvarð- haldi í þrjá mánuði en er nú frjáls ferða sinna. Í gæsluvarðhaldsúr- skurði yfir manninum 9. janúar var rannsókn lögreglu sögð á loka- metrunum. Þótt liðnir séu tíu mán- uðir frá þeim lokametrum er málið enn í rannsókn samkvæmt svari embættisins við fyrirspurn Frétta- blaðsins. adalheidur@frettabladid.is Hann er það hæfi- leikaríkur að þegar hann var settur í gæsluvarð- hald þurfti að taka rétti af matseðli veitingahússins sem hann vann á. Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður Minjastofnun Íslands úthlutar styrkjum úr Fornminjasjóði. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og rannsóknum á fornminjum, sbr. reglur nr. 578/2014. Úthlutað er styrkjum til eftirfarandi verkefna: • Rannsókna á fornminjum (fornleifum og forngripum) • Miðlunar upplýsinga um fornminjar • Varðveislu og viðhalds fornminja Sjóðnum er jafnframt heimilt að veita styrki til viðhalds annarra menningarminja sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi, t.d. minja sem njóta ekki friðunar á grundvelli aldurs en teljast hafa varðveislugildi, svo sem skipa, báta og annarra samgöngutækja. Við næstu úthlutun verður sérstaklega horft til umsókna er lúta að frágangi og skilum gagnasafna úr fornleifarannsóknum framkvæmdum fyrir gildistöku núgildandi laga um menningarminjar. Umsóknir eru metnar með tilliti til vísindalegs og menningarsögulegs gildis og þeirrar stefnu sem mörkuð hefur verið í minjavernd, ásamt gildi þeirra fyrir varðveislu þjóðararfleifðarinnar. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna á heimasíðu Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is. Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar 2020. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun. Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu unnin í samræmi við lög nr. 80/2012 og reglur stofnunarinnar og í samræmi við innsend umsóknargögn. Suðurgötu 39, 101 Reykjavík Sími: 570 1300 www.minjastofnun.is fornminjasjodur@minjastofnun.is Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Fornminjasjóði fyrir árið 2020 Café AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM Komdu í kaff i Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is Telur dóm Landsréttar brot á jafnræðisreglu Landsréttur breytti dómi fyrir kennitölusvindl úr skilorði í fjögurra mánaða fangelsi. Verjandi segir dóminn í hróplegu ósamræmi við sambærileg mál og telur markmið með áfrýjun að bera í bætifláka fyrir óhóflegt gæsluvarðhald.  Dómur í máli Nadeem var kveðinn upp í Landsrétti í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR STJÓRNSÝSLA Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, mun fjármagna og fylgja eftir verk- efni um áhættumat fyrir Reynis- fjöru ásamt skilgreiningu verkferla. Verkefnið verður í höndum lög- reglunnar á Suðurlandi sem hyggst vinna í samstarfi við Vegagerðina, Veðurstofuna og almannavarna- deild Ríkislögreglustjóra. Áhættumatið mun taka til bæði öldufalls og berghruns. Nokkur banaslys hafa átt sér stað í Reynis- fjöru undanfarin ár. Í vikunni lenti ferðamaður í lífshættu eftir að hann sogaðist út með einni öldunni. Þá lokuðust ferðamenn af inni í helli. „Það er ekki ásættanlegt að það liggi við stórslysi á einum vinsæl- asta áfangastað landsins án þess að gripið sé til viðeigandi ráðstafana. Gerðar hafa verið ákveðnar úrbæt- ur, yfirráðin eru f lókin auk þess sem gestir eiga það til að hundsa tilmæli og hættan getur verið mjög mikil. Þess vegna er hér lagt til að vinna áhættumat og lögreglan geti á grunni þess lokað svæðinu þegar þess þarf en það eru að öllum lík- indum ekki nema um fimm til sjö dagar á ári,“ segir Þórdís Kolbrún. Tilgangurinn er að á grundvelli áhættumatsins hafi yfirvöld laga- heimildir til að loka svæðinu tíma- bundið til að koma í veg fyrir slys. Áætlað er að sú staða geti komið upp í um 5 til 7 daga á ári á tíma- bilinu nóvember til mars. Þessu til viðbótar á eftir að ljúka við að innleiða að fullu ölduspá- og viðvörunarkerfi fyrir Reynisfjöru sem ráðherra ferðamála fól Ferða- málastofu að semja um við Vega- gerðina árið 2017 og var fjármagn- að með fé sem sett var til hliðar af ráðstöfunarfé Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða. Ölduspákerfið hefur þegar verið þróað af Vegagerðinni; það er aðgengilegt á vef Vegagerðarinnar og upplýsingar úr því eru einnig birtar á vef og upplýsingaskjáum SafeTravel-verkefnis Landsbjargar. Kerfið spáir fjóra daga fram í tím- ann og getur þannig nýst við skipu- lagningu ferða. Síðari hluta verkefnisins er hins vegar ólokið, en það er uppsetning á mastri við fjöruna með viðvörun- arljósi til marks um hættuástand. Ástæðan er að ekki hefur fengist leyfi hjá öllum landeigendum á svæðinu, sem eru um 250 talsins, til uppsetningar á því. – ab Fjármagnar áhættumat á Reynisfjöru Það er ekki ásætt- anlegt að það liggi við stórslysi á einum vin- sælasta áfangastað landsins án þess að gripið sé til viðeigandi ráðstafana. Þordís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 1 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 6 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :3 9 F B 0 9 6 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 3 F -E E 1 4 2 4 3 F -E C D 8 2 4 3 F -E B 9 C 2 4 3 F -E A 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 9 6 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.