Fréttablaðið - 16.11.2019, Síða 12

Fréttablaðið - 16.11.2019, Síða 12
Golf GTE 5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is www.hekla.is/volkswagensalur Jafnvígur á rafmagni & bensíni Volkswagen Golf GTE nýtir rafmagn og bensín sem orkugjafa og þú getur farið allar daglegar ferðir á rafmagni einu saman. Þú getur hitað Golf GTE í gegnum snjalltækið þitt á morgnana og stigið um borð í hlýjan og umhverfisvænan bíl. Verð frá 4.390.000,- Tengiltvinnbíll TÆKNI Tölvuleikjastreymisþjónust- an Google Stadia fer í loftið víða um heim á þriðjudaginn. Ekki liggur þó fyrir hvenær þjónustan verður opnuð hér á landi. Markmiðið er háleitt, að standa við hlið Sony, Microsoft og Nintendo í tölvuleikja- heiminum. Þó að þjónustan sé ekki farin í loftið eru komnar háværar efasemdarraddir um að Stadia standi undir væntingum. Stadia er ekki eiginleg leikjatölva, heldur kaupir notandinn fjarstýr- ingu og spilar leiki í gegnum netið. Hugmyndin er að í gegnum Stadia verði hægt að kaupa leik og spila hann í nánast hvaða tölvu, snjall- síma eða snjallsjónvarpi sem er. Og þegar farið er í ferðalag eða með strætó verði svo hægt að halda áfram með leikinn í snjallsímanum. Búið er að opna fyrir niðurhal á smáforritinu þó það virki ekki fyrr en 19. nóvember. Þá verður opnað fyrir tólf tölvuleiki en þeir hafa þó áður komið út á öðrum leikjatölvum. Helsta áhyggjuefnið er þörfin fyrir öfluga nettengingu, en í tölvu- leikjaheimi nútímans er það afar illa séð ef leikir hiksta vegna slíkra vandamála. Gerir það einnig að verkum að notendur gætu hikað við að greiða fullt gjald fyrir leiki sem þurfa að nota netið til að spila. Tímaritið Verge hefur eftir leikja- framleiðendum að þar á bæ séu menn hikandi við að framleiða leiki aðeins fyrir Stadia. Því ef Stadia slær ekki í gegn þá sé hætta á að Google leggi þjónustuna niður. „Það sem f lestir framleiðendur kvarta yfir er, hvað gerist ef Google ákveður að hætta með það skyndilega,“ hefur vefurinn Games Industry eftir Gwen Frey hjá Kine. Hún telur þær áhyggjur þó ótímabærar. Síðan hafa borist fregnir af innanhússvandamálum. Hisashi Koinuma, forstjóri Koei Tecmo, sem kemur að þróun Stadia, sagði við Wall Street Journal að hann ætti von á ýmsum tæknilegum vanda- málum í byrjun. – ab Titringur vegna Stadia Eina sem þarf til að spila Stadia er fjarstýring. NORDICPHOTOS/GETTY BRETLAND Boris Johnson, forsætis- ráðherra Bretlands, segir engar sann- anir fyrir því að Rússar hafi haft ein- hver áhrif á bresk stjórnmál. Johnson var í beinni útsendingu hjá breska ríkisútvarpinu BBC í gær þar sem hann svaraði innhringjendum. Feng- ust þá svör við ýmsum spurningum. Var hann meðal annars spurður hvers vegna skýrsla leyniþjónustu- nefndar breska þingsins væri ekki birt fyrir þingkosningarnar 12. des- ember næstkomandi. Í skýrslunni hefur verið sagt að greint verði frá gögnum bresku leyniþjónustunnar um að Rússar hafi reynt að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðsluna um útgöngu Breta úr Evrópusam- bandinu árið 2016. Einnig að Rússar hafi reynt að hafa áhrif á þingkosn- ingarnar 2017. Skýrslan hefur verið tilbúin síðan í mars og er nú í yfir- lestri á skrifstofu forsætisráðherrans. Dominic Grieve, formaður leyni- þjónustunefndarinnar, hefur hvatt til að skýrslan yrði birt fyrir kosn- ingar þar sem innihaldið skipti kjós- endur máli. Hillary Clinton, fyrr- verandi öldungadeildarþingmaður í Bandaríkjunum, hefur einnig hvatt til að skýrslan yrði birt. Johnson svaraði þessu rólega og sagði þetta ferli eðlilegt. „Það er engin ástæða til að breyta hefðbundnu verkferli og birta þessa skýrslu bara af því að það eru kosningar,“ sagði Johnson. Hann varaði við því að stimpla Rússa sem einhver illmenni og vísaði því á bug að Rússar hefðu haft áhrif á kosningar í Bretlandi. „Það eru engar sannanir fyrir því og þú þarft að fara varlega. Það er ekki hægt að kasta rýrð á alla sem koma frá ákveðnu landi, bara vegna þjóð- ernis þeirra.“ Johnson hafnaði sögusögnum um að hann hefði boðið Nigel Farage, leiðtoga Brexit-f lokksins, aðals- tign í skiptum fyrir að afturkalla frambjóðendur í mikilvægum kjör- dæmum. Hann var þá spurður hvort kjós- endur gætu samsamað sig með honum. „Ég hef ekki hugmynd um það,“ sagði Johnson. „Það er bara almenningur sem metur það. Þetta er örugglega erfiðasta spurning sem ég hef fengið.“ Talið barst þá að börnunum hans og hvort þau væru í einkaskóla. „Ég ræði ekki um börnin mín opinberlega. Staðhæfingar um að börnin mín hafi aldrei farið í opin- bera skóla eru rangar,“ sagði Johnson. „Ég vil að allir okkar skólar séu frá- bærir og ég vil að öll börn hafi sömu tækifærin.“ arib@frettabladid.is Hafnar áhrifum Rússa á kosningar Forsætisráðherra Bretlands mætti í útvarpið og svaraði innhringjendum í beinni. Sagði hann engar sannanir fyrir áhrifum Rússa á kosningar. Johnson setti sig í stellingar Winstons Churchill, forvera síns í embætti, þegar hann heimsótti sælgætisverksmiðju í gær. NORDICPHOTOS/GETTY 1 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 6 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :3 9 F B 0 9 6 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 3 F -E 9 2 4 2 4 3 F -E 7 E 8 2 4 3 F -E 6 A C 2 4 3 F -E 5 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 9 6 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.