Fréttablaðið - 16.11.2019, Qupperneq 30
urinn um að eignast öll þessi börn
rættist að nokkru leyti því ég á tvö
börn, einn stjúpson sem kemur
mikið til mín og nú á ég eina litla
ömmustelpu. Ömmuhlutverkið er
stórmerkilegt og alveg frábært. Það
kom mér á óvart en ég er svo tilbúin
í þetta nýja hlutverk. Ég fæ að sýna
henni hlýju án þess að hafa stjórn
eða bera á henni alla ábyrgð.“
Ásta upplifir ekki eirðarleysi eins
og margir gera í kjölfar skilnaðar.
„Það er skrýtið að mörgu leyti að
skilja. Það er auðvitað álag og það
er alltaf svakalega erfitt, þó maður
skilji í góðu eins og ég gerði. Það eru
líka alltaf tækifæri í erfiðum verk-
efnum og áföllum, þar vex maður
og þá reynir virkilega á vöðva sem
maður er ekki vanur að nota. Ef
maður nær að styrkja þann vöðva
þá er maður sterkari og getur miðl-
að af reynslu sinni.
Það er nýtt fyrir mér að hafa
allan þennan tíma fyrir sjálfa
mig, þegar strákurinn minn er hjá
pabba sínum. Í raun og veru gæti
ég allt eins hagað lífi mínu eins og
unglingur ef ég hefði ekki margt á
minni könnu,“ segir Ásta. „Þessi
tími nýtist vel til að rækta sjálfa
mig. Ég held að konur geri alltof
miklar kröfur til sín. Ég gerði það
að minnsta kosti eftir skilnaðinn og
varð ofsalega þreytt og svolítið nei-
kvæð líka. Vinkona mín leiddi mig
hins vegar á réttan stað og benti mér
á að koma á á öndunarnámskeið til
Nicolai Engelbrecht. Ég þóttist fyrst
ekki hafa tíma en lét mig svo hafa
það að fara til hans. Þetta var algjört
fyrir og eftir!“ lýsir Ásta.
Öndunaræfingar og jóga
Nicolai var staddur hér á Íslandi á
síðasta ári og kenndi Íslendingum
að nýta öndun til að leita inn á
við, losa um streituvalda og erfiða
lífsreynslu. „Þetta breytti mér, ég
losaði um svakalega mikla spennu
en hlóðst líka af mikilli orku. Ég hef
aldrei fundið eins öf lugt verkfæri
til að komast í gott jafnvægi og líða
betur. Ég er mjög hrifin af þessum
öndunaræfingum því þarna nær
maður sambandi við kjarnann sinn
og svo eru æfingarnar sjálf bærar.
Allir geta gert þessar öndunar-
æfingar heima hjá sér. Ég get kennt
þér og svo kennir þú öðrum, ef allir
gera þetta þá trúi ég að samfélagið
verði betra. Við verðum þolin-
móðari gagnvart okkur sjálfum og
öðru fólki. Mér finnst með þessum
einföldu aðferðum eins og það sé
verndarhjúpur í kringum mig sem
fyllir mig værð, og ég er fyrir vikið
miklu tillitssamari við sjálfa mig og
aðra.“
Snyrtivörur úr lýsi
Hún nýtir nú reynslu sína og bak-
grunn og hefur þróað nýjar snyrti-
vörur og bætiefni úr lýsi sem eru
framleiddar á Íslandi. Ásta stofnaði
fyrirtækið Oil of Iceland og fyrsta
vörulínan er komin á markað.
Línan samanstendur af tveimur
vörum, serum-dropum og bætiefni.
„Serum-olían er náttúruleg afurð
sem er búin til úr lífrænni sandal-
viðarolíu og þorskalýsi. Bætiefnið
samanstendur af ómega-3, kollageni
og hyaluronic-sýru.“
Ásta var með mikið og þrálátt
exem og ofnæmi frá unga aldri.
Hún fór að prófa sig áfram með lýsi
og bar á blettina og árangurinn var
góður.
„Ég vil leggja áherslu á húðheilsu
og hvetja konur til að styrkja húðina,
stærsta líffærið okkar. Við vitum að
krem eða serum eitt og sér getur haft
áhrif en það skiptir líka miklu máli
að sofa vel, borða hollan mat, draga
úr streitu, drekka nóg vatn og stunda
einhvers konar hreyfingu. Að njóta
lífsins og gefa sér tíma skiptir líka
miklu máli,“ leggur Ásta áherslu á og
segir að konur ættu að vera vakandi
fyrir því að láta ekki selja sér skyndi-
lausnir.
„Það var alltaf til lýsi heima og ég
eins og f lestir Íslendingar tók eina
skeið á dag og tek enn. Ég vildi þróa
vöru sem myndi bæta einhverju
góðu við líf kvenna og legg áherslu á
Við erum öll í
sama stríðinu,
segir Ásta. „Því
miður þá gefa
flestir það eftir
að rækta líkama
og sál. Það
endar oftast
neðst á „to-do“
listanum.“
MYND/KÁRI
SVERRISS
heildræna nálgun til að byggja upp
húðina. “
Exem og ofnæmi Ástu var mjög
erfitt viðureignar fyrir nokkrum
árum og hún sýnir blaðamanni
mynd af sér þar sem einkennin eru
slæm. En nú bólar ekki á neinum
einkennum.
„Þetta var fyrir fjórum árum,
ég þurfti oft að nota sterakrem,
taka ofnæmislyf og fara í ljós til að
halda exeminu niðri. Ég reyni að
vera jákvæð og hugsa með mér að
líkami minn sé einfaldlega svo klár
að láta mig vita þegar ég þarf að fara
betur með mig. Ef ég er í ójafnvægi,
að borða óhollt eða nota óvandaðar
vörur þá finn ég strax fyrir því. Í
dag borða ég lítinn sykur og hveiti
og engar mjólkurvörur. Svo nota ég
auðvitað olíuna mína á næturnar.
Ég er samt ekki hrifin af öfgum og
það er mjög persónubundið hvað
er til dæmis dýpri öndun, góður
svefn, minna kaffi og meira vatn!
Einfalt og kostar ekki mikið,“ segir
Ásta og tekur það fram að þetta sé
æviverkefni.
„Auðvitað á ég slæma daga, að
finna jafnvægi er æviverkefni. En
öndunaræfingarnar hafa reynst
svo vel að ég hef kennt vinum og
fjölskyldu þær æfingar sem ég lærði
af Nicolai og þær skipta sköpum
í mínu lífi. Ég geri þessar æfingar
á hverjum morgni áður en sonur
minn vaknar og allt fer á fullt, þær
taka stuttan tíma en breyta miklu.
Lýsið er líka mikilvægt okkur
Íslendingum og það er merkilegt
hvað það virkar vel á húðina. Það
getur í raun hver sem er prófað að
kaupa sér lýsisflösku og borið á sig.
Mín vara er betrumbætt að því leyti
að hún er mildari, er í betri umbúð-
um og ilmar betur. Svo er bætiefnið
mikilvæg viðbót.
Manstu þegar þú varst átta ára?
Hvernig þér leið?“ spyr Ásta.
„Það er þessi tilfinning um að allt
sé hægt en á sama tíma er maður
öruggur og rólegur. Á þessum aldri
erum við svo beintengd kjarnanum
okkar. Þegar maður verður fullorð-
inn sækir að manni löngun til að
finna þetta aftur. Ég er næst því að
vera þar í lífinu núna.“
Upplifði óöryggi í Kaíró
Ásta er nýkomin úr ferðalagi til
Kaíró. Þangað fór hún á vegum Re-
Cover-samtakanna í ljósmynda-
verkefni tengt f lóttafólki.
„Þetta var var magnað og lær-
dómsríkt ferðalag. Ég fékk skila-
boð frá vinkonu minni sem er
búsett þar í landi um að ég skyldi
koma með túrtappa með mér. Það
er nefnilega varla hægt að kaupa þá
þar. Það er skelfilegt, konur upplifa
skömm vegna kynfæra sinna. Mikil
skömm fylgir því að kona sé á blæð-
ingum og ennþá eru ungar stúlkur
að ganga í hjónaband með eldri
karlmönnum. Ég fékk vægt menn-
ingarsjokk í borginni, feðraveldið
var svo yfirþyrmandi. Ég hef hvergi
í heiminum fundið eins mikið fyrir
því og þarna. Veruleiki kvenna í
borginni er sá að þær eru algjörlega
upp á eiginmenn sína komnar. Ef þú
ert ekki gift, þá getur þú ekki leigt
þér íbúð. Ég hef aldrei áður fundið
fyrir jafn miklu virðingarleysi og
jafnvel fyrirlitningu sem kona og í
þessari borg. Það var stundum ekki
hlustað á mig, það var eins og ég
væri ekki til. Ég upplifði líka mikið
óöryggi, þarna fannst mér að ef
einhver myndi ráðast að mér í fjöl-
menni þá myndi enginn koma mér
til hjálpar.“
Sagði takk við mömmu sína
Ásta segist hafa snúið heim til
Íslands full þakklætis. „Ég sagði
takk við mömmu og í huganum
þakkaði ég öllum þeim konum sem
börðust og berjast enn fyrir rétt-
indum okkar. Þetta eru ekki sjálf-
sögð réttindi og það er hægt að taka
þau af okkur. Við þurfum að halda
okkur við efnið.
Það er sorglegt að árið 2019 halli
svo mikið á konur í heiminum. Ég
er þakklát fyrir að geta fengið mér
hreint vatn úr krananum heima,
andað að mér hreinu lofti og að
hafa réttindi. Að vera ekki álitin
úrhrak þótt ég sé einstæð móðir.
Þetta var því góð ferð þótt hún hafi
verið erfið.
Ég er enn staðráðnari í en ég var
áður að láta gott af mér leiða. Ein-
hver gæti spurt: En hvað get ég gert
til að breyta heiminum? Líðan
kvenna í Kaíró? Óréttlæti heimsins?
Ég lærði það þegar ég bjó á Indlandi
þar sem margt fólk býr við mikla
fátækt og erfiðleika að viðhorfið
skiptir miklu máli.
Ef velvildin ræður för, ef allir gera
eitthvað eitt. Ef allir myndu hjálpa
einni manneskju á hverjum degi, þá
yrði lífið og heimurinn betri staður.
Við getum hreinlega byrjað á litlu
hlutunum, æða ekki út um dyrnar
á morgnana eftir að hafa svolgrað í
okkur kaffibollann. Heldur staldra
við og gefa sér og öðrum það eina
sem er raunverulega dýrmætt.
Tíma.“
ÞARNA FANNST MÉR AÐ EF
EINHVER MYNDI RÁÐAST
AÐ MÉR Í FJÖLMENNI ÞÁ
MYNDI ENGINN KOMA MÉR
TIL HJÁLPAR.
Ásta bjó um
tíma í Síberíu.
Hún segist hafa
lært margt af
því að búa víða
um heim.
er gott fyrir fólk. Sumir þola meira
kaffi á meðan aðrir þurfa minni
svefn. En við getum öll gert betur
við okkur. Að gæta húðarinnar er
spurning um að fjárfesta í heilsu
sinni, til þess þarf tíma og alúð en
alls ekki dýrustu kremin,“ segir
Ásta og segir mikilvægt fyrir konur
að standast þrýstinginn á að kaupa
eitthvað sem þær þurfa ekki á að
halda.
Lítil atriði geta breytt miklu
„Við erum öll í sama stríðinu, þurf-
um að klára vinnudaginn, sinna
fjölskyldu og vinum, gefa af okkur
og reyna líka að rækta líkama og
sál. Því miður gefa f lestir það eftir
að rækta líkama og sál, það endar
oftast neðst á „to do“-listanum,“
segir Ásta og segir einmitt þess
vegna marga fasta í skyndilausnum.
„Ég hef lært svo margt sjálf af því að
vera undir álagi og vinna mig út úr
erfiðleikum. Þegar við förum út um
dyrnar á morgnana þá dugir ekki að
fá sér bara sterkan kaffibolla til að
koma mér af stað.
Við vitum það vel að við þurfum
að hlaða batteríin og næra sálina
en erum svolítið ráðalaus. Hvað er
hægt að gera? Ég hef verið að æfa
mig í því að finna lausnir á þessum
vanda í mörg ár og er þakklát fyrir
alla veggina sem ég hef rekist á,
þeir gerðu mig að því sem ég er. Ég
byrjaði fyrir tvítugt að lesa Dale
Carnegie og Brian Tracy, fór ung í
Al-Anon. Síðar fór ég að leita í jóga
og hugleiðslu. Ég náði hins vegar
aldrei almennilega að hugleiða fyrr
en ég lærði rétta tækni við að anda.
Við erum öll að leita að því rétta.
En staðreyndin er sú að það eru
nokkur lítil atriði sem geta breytt
mjög miklu í lífi hvers og eins. Það
Framhald af síðu 28
1 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:3
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
3
F
-D
F
4
4
2
4
3
F
-D
E
0
8
2
4
3
F
-D
C
C
C
2
4
3
F
-D
B
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
9
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K