Fréttablaðið - 16.11.2019, Page 34

Fréttablaðið - 16.11.2019, Page 34
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit­ stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Átta teymi valin Alls voru átta teymi valin til verk- efnisins og fengu þau vinnuað- stöðu í Setri skapandi greina við Hlemm, stuðning við að þróa hugmyndina áfram og koma henni í framkvæmd. Þau nutu þjálfunar frá fremstu sérfræðingum á sviði samfélagslegrar nýsköpunar og fengu aðgang að neti mentora sem styðja við einstök verkefni. Hér fyrir neðan eru fjögur þessara verkefna kynnt. Verkefnið Tré lífsins Eitt teymið í Snjallræði heitir Tré lífsins. Að því standa þær Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir mannvist- fræðingur, sem er núna í fullu starfi við að gera verkefni þeirra að veruleika, Oktavía Hrund, sem starfað hefur við kennslu og ráðgjöf, og Olga Margrét lög- fræðingur. Tré lífsins hyggst bjóða upp á nýja valmöguleika við andlát þannig að fólk geti skrásett sögu sína og hinstu óskir fyrir andlát. Eftir andlátið lifir minning ástvina áfram á minningasíðu. Aska hins látna verður jafnframt gróður- sett ásamt tré í minningagarði þar sem tréð vex upp til minningar um hinn látna. „Verkefnið okkar fjallar í grunninn um að veita val- kost og frelsi til vals. Það skiptir okkur máli að einstaklingar geti haft áhrif á hvernig lífslok verða, að það sé möguleiki til staðar sem gerir okkur kleift að láta lífsgildin endurspeglast við lífslok, sem sagt óháðan umhverfisvænan val- kost,“ segir Oktavía og bætir við að þeim hafi verið bent á Snjallræði. „Okkur fannst það smellpassa við bæði grunngildi og tilgang verkefnisins. Það er mikilvægt að Ísland hafi vettvang eins og Snjall- ræðið sem fer út fyrir hið hefð- bundna frumkvöðlaform og beinir sjónum að frumkvöðlum sem hafa sjálf bærni og samfélagslegt hugvit að leiðarljósi,“ segir hún. Hugmynd þeirra kviknaði fyrir fimm árum. „Verkefnið hefur tekið verulegan þróunarkipp á þessu ári og það að taka þátt í Snjallræðinu hefur sérstaklega ýtt þeirri þróun áfram. Það hefur gengið afar vel að nýta þau tækifæri sem við höfum mótað og sóst eftir á þessu ári,“ segir Oktavía og segir að það sé ekki spurning að verkefnið eigi eftir að verða að veruleika. „Við höfum unnið okkur í gegnum þær meginhindranir sem voru til staðar í upphafi en núna erum við að klára þá vinnu sem mun nýtast okkur við að gera þetta að veru- leika fyrr en síðar,“ segir hún. „Við erum mjög ánægðar með bæði formið sem Snjallræðið býður upp á og þann stuðning sem við höfum fengið. Sérstaklega sjáum við sterka og fjölbreytta mentora sem góðan kjarna þeirrar þjálfunar sem okkur hefur verið boðið í gegnum Snjallræðið.“ Verkefnið Samfélagsgróðurhús Rúnar Þór Þórarinsson og Friðrik Atli Sigfússon vinna að verkefni sem nefnist Samfélagsgróðurhús en það hófst sem vinkill út frá öðru verkefni sem þeir segja að sé dálítið sérstakt. „Verkefnið Samfélagsgróðurhús snýst um að hanna og reisa gróðurhús á leikskólum landsins, þar sem börn leika sér að plöntum og því að planta. Það spannst út frá verkefninu ABC Lights sem snýst um að hanna birtu- og hitastýrða lýsingu fyrir gróðurhús sem mun spara framleiðendum, neytendum og þjóðarbúinu hundruð milljóna króna á ári, styrkja matvæla- framleiðslu og vernda umhverfið. Við vinnum að því með tveimur félögum okkar, Þorgeiri og Sturlu Jónssonum. Það er spennandi Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir , Olga Margrét Kristínardóttir Cilia og Oktavía Hrund Jónsdóttir eru með verkefnið Tré lífsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Rúnar Þór Þórarinsson og Friðrik Atli Sigfússon vinna að verkefni sem nefnist Samfélagsgróðurhús.Renata Stefanie Bade Barajas og Jillian Verbeurgt vinna að verkefninu GreenBytes. Kristín Linda Ragnarsdóttir og Sveinbjörn Gizurarson vinna að verkefni sem nefnist Rephaiah en þau vilja setja lyf á markað fyrir börn í Malaví. verkefni en mjög tæknilegs eðlis og mun taka tíma í þróun en hins vegar er hægt að ráðast í Sam- félagsgróðurhúsin undir eins. Við vinnum í þessu af elju og erum sem stendur með dálítinn styrk í gegnum Frumkvæði, eigin sjóði og stöku tilfallandi tekjur,“ segja þeir. Þegar Rúnar er spurður hvers vegna þeir hefðu tekið þátt í Snjall- ræði, svarar hann: „Við vorum með vinnuaðstöðu hjá Nýsköpunar- miðstöð á Setri skapandi greina við Hlemm en það var úrvalsfólk þar sem benti okkur á að verkefnið okkar ætti líklega mjög vel heima í Snjallræði. Við sáum að þetta væri vettvangurinn fyrir okkur, þar sem við værum með fram- kvæmanlega, varanlega lausn á samfélagslegu vandamáli sem mikill ávinningur væri af að leysa. Þorgeir vinur okkar teiknaði síðan fyrir okkur fyrsta gróðurhúsið.“ Rúnar segir að verkefnið felist annars vegar í hugsjón og hins vegar í framkvæmd lausnarinnar. Hugsjónin – hugmyndafræðilega verkefnið – er að bæta heilsufar barna og þar með þjóðarinnar á skömmum tíma með menningar- aðlögun. „Verkefnið – veraldlega fram- kvæmdin – er að hanna snotur, þægileg og upphituð gróðurhús, fjármagna byggingu þeirra og reisa við alla leikskóla landsins. Þau verða afhent fullbúin; hituð með affallsvatni af leikskólunum sjálfum, endingargóðum og spar- neytnum LED-ljósum til að geta ræktað allt árið og þeim plöntum sem börnin og kennarar þeirra vilja rækta ásamt þeim bökkum og verkfærum sem til þarf,“ útskýrir Rúnar. „Verkefnið hefur gengið mjög vel. Við hófum vinnuna við Sam- félagsgróðurhús ehf. í raun um viku eftir að við höfðum skilað umsókn í Tækniþróunarsjóð fyrir ljósalausn ABC Lights en svar við henni berst í desember. Snjall- ræði fór í gang í októberbyrjun og við þróum módelið utan um Samfélagsgróðurhús ehf. algerlega samhliða því og njótum góðs af því prógrammi sem sett hefur verið upp.“ Rúnar segir engan vafa á að verk- efnið verði að veruleika. „Mikil- vægt er að almenningur vilji taka þátt í þessu með okkur. Það kemur í ljós á næstu vikum og mánuðum hvort svo er en við höfum fundið fyrir miklum áhuga. Við höfum notið góðs á undanförnum vikum af aðstöðu, þjálfun, tengslamynd- un, andrúmsloftinu, stemningu og drifkrafti. Allt hefur þetta farið talsvert fram úr væntingum. Hér er prógrammið svo stíft að við höfum í raun ekki náð að fullnýta okkur það sem til boða stendur, þannig að úr nægu verður að vinna á komandi vikum.“ Verkefnið The GreenBytes Renata Stefanie Bade Barajas og Jillian Verbeurgt vinna að verkefninu GreenBytes sem er lausn þar sem sölugögn, reiknirit og vélanám er nýtt til að draga úr matarsóun á veitingastöðum og auka um leið hagnað þeirra. Renata og Jillian útskrifuðust fyrir stuttu úr meistaranámi í sjálf bærri orku frá Háskólanum í Reykjavík. Þær eru nú í fullu starfi við verkefni sitt í Snjallræði og telja að þær geti gert plánetunni gagn með viðskiptahugmynd sinni. Þær segjast einnig hafa ein- beitt sér að því að horfa til sjónar- horns vísindanna. „Við erum að þróa þjónustu sem gengur út á hversu mikinn mat veitingahús ættu að panta fyrir næstu daga til að koma í veg fyrir sóun. Við erum mjög ánægðar með þróun verkefnisins, höfum búið til gott markaðsefni auk þess sem við höfum gert Facebook- og Instagram-síður auk heimasíðu. Þá höfum við þróað markaðsáætlanir og tekjuskipulag. Þegar verkefninu lýkur verðum við komnar með áætlun sem mun nýtast okkur til að halda áfram með þjónustuna,“ segir Renata. Þær stöllur eru mjög ánægðar með aðstöðuna sem þær hafa fengið í Setri skapandi greina við Hlemm og hafa áhuga á að leigja þar rými áfram til að klára verk- efnið. „Þjálfunin sem við höfum fengið er mjög dýrmæt og að vinna með leiðbeinendum hefur orðið til þess að við fengum nýja sýn á suma þættina,“ segir hún. Verkefnið Rephaiah Sveinbjörn Gizurarson, prófess- or við lyfjafræðideild Háskóla Íslands, og Kristín Linda Ragn- arsdóttir, framkvæmdastjóri Hananja ehf., vinna með verkefnið Rephaiah en markmið þess er að setja á fót óhagnaðardrifin samtök sem hafa það að markmiði að framleiða lífsnauðsynleg lyf fyrir ung börn í Malaví. Með því mætir teymið þeirri gríðarlegu þörf sem er til staðar meðal þessa við- kvæma hóps. Þau segjast hafa sótt um þátt- töku eftir umfjöllun á Facebook um Snjallræði og hraðalinn. „Markmið þessa hraðals var mjög áhugavert og við sáum að það gæti nýst verkefni okkar mjög vel og sóttum því um,“ segja þau og bæta við að verkefnið hafi gengið vonum framar. Við erum búin að vera að vinna að þessu verkefni síðastliðin þrjú ár og það verða líklega um tvö til þrjú ár í að verk- efnið verði að veruleika,“ segja þau og segjast vera ákaflega ánægð og þakklát fyrir þá aðstöðu og þjálfun sem þau hafa fengið í ferlinu. Frekari upplýsingar um hraðal­ inn er að finna á síðu Snjallræðis, snjallraedi.is. Við höfum notið góðs á undan- förnum vikum af aðstöðu, þjálfun, tengsla- myndun, andrúms- loftinu, stemningu og drifkrafti. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 1 6 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :3 9 F B 0 9 6 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 0 -1 5 9 4 2 4 4 0 -1 4 5 8 2 4 4 0 -1 3 1 C 2 4 4 0 -1 1 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 9 6 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.