Fréttablaðið - 16.11.2019, Page 36
Adapt Sport er
hentugt fyrir
íþróttafólk og
er hannað til
að hjálpa fólki
að ná hámarks
árangri á nátt-
úrulegan hátt,
gefa hámarks
orku og aukið
úthald, ásamt
því að flýta fyrir
endurheimt.
Eftir nokkra daga
var ég orkumeiri
og orkan orðin jafnari.
Kolbrún Fjóla Arnarsdóttir
Kolbrún Fjóla Arnarsdóttir segir að eftir að hún byrjaði að nota Adapt Life hafi
minnið batnað til muna og að hún hafi meiri orku en áður. MYND/REGÍNA SIF
Adapt Life og Adapt Sport eru bætiefni sem eiga að hjálpa fólki að höndla andlegt álag,
ná upp orku og vinna gegn streitu
á hraðvirkan hátt. Adapt hentar
bæði til að bæta árangur í daglegu
lífi og íþróttum.
Adapt Life hentar vel fyrir dag-
legt líf og er sérstaklega hannað til
að auka orku, bæta einbeitingu,
draga úr þreytu og auka þol gegn
streitu. Adapt Sport er hentugt
fyrir íþróttafólk, en það er hannað
til að hjálpa fólki að ná hámarks
árangri á náttúrulegan hátt, gefur
hámarks orku og aukið úthald,
ásamt því að flýta fyrir endur-
heimt. Fólk finnur muninn fljót-
lega eftir inntöku og Adapt Sport
virkar sífellt betur ef það er tekið
yfir lengri tíma.
Adapt Life og Sport byggt á
klínískum rannsóknum
Adapt Life og Adapt Sport byggja
á sérhæfðum blöndum sem inni-
halda adaptogen jurtirnar: burni-
rót, schisandra, síberíuginseng og
B-vítamín. Klínískar rannsóknir
benda sterklega til að þessar
einstöku blöndur geti hjálpað
líkamanum við að auka orku, bæta
árangur og auka afköst í starfi, leik
og íþróttum.
Adaptogen jurtir hafa ýmsa
eiginleika, eins og að auka líkam-
lega og andlega orku og þrek,
vinna til dæmis gegn áhrifum
svefnleysis, vernda heila og tauga-
kerfi (sem meðal annars bætir
minni og skynjun), draga úr kvíða
og streitu og vernda gegn til-
teknum tegundum sindurefna.
Á meðan orkudrykkir og kaffi
gefa tímabundna orku eru áhrifin
af adaptogenum jafnari og þau
auka árangur og vara lengur.
Jafnvægi á streituhormónið
Það er mikilvægt að stresshorm-
ónið kortisól sé í jafnvægi. Rann-
sóknir benda til að Adapt hjálpi
til við að viðhalda þessu jafnvægi,
minnki streitu og stuðli þar með
að betri svefni og minni þreytu.
Langtíma ójafnvægi eða of mikið
magn af kortisóli í blóði er ekki
gott fyrir líkamann og getur valdið
þreytu, dregið úr vöðvamassa,
aukið matarlyst og dregið úr kyn-
löngun.
Sömu rannsóknir skjóta stoðum
undir að Adapt stilli af rétt hlutföll
af kortisóli og testósteróni sem er
mikilvægt í öllum íþróttum. Með
því að hafa jafnvægi á kortisóli
og testósteróni næst betri hvíld,
endurheimt verður betri og
æfingar skila meiri árangri. Adapt
Sport er prófað og notað af afreks-
fólki í íþróttum.
Hjálpaði Kolbrúnu að ná upp
orku og einbeitingu á ný
Kolbrún Fjóla Arnarsdóttir er 38
ára íþrótta- og heilsufræðingur og
tveggja barna móðir. Hún kennir
lýðheilsutengdar greinar við
Menntaskólann á Ísafirði og
vaknar klukkan hálf sex á morgn-
ana til að kenna líkamsrækt, en
hún hefur þjálfað síðan árið 2002.
Þar fyrir utan starfar hún sem
leiðsögumaður á sumrin, kennir
skyndihjálp af og til og á fimm
vikna fresti er hún með vaktsíma
fyrir öryggishnapp aldraðra allan
sólarhringinn, viku í senn.
Kolbrún fékk væga kulnun
vegna vinnu í fyrravor en hefur
náð góðum bata. Hún sá auglýs-
ingu fyrir Adapt Life þar sem kom
fram að það gæti hjálpað fólki að
höndla streitu og álag og segir það
hafa kallað á hana.
„Eftir að hafa unnið alltof mikið
alltof lengi var ég orðin líkamlega
og andlega orkulaus. Ég átti í raun
ekkert eftir til að gefa af mér þegar
heim var komið,“ segir hún. „Eitt af
því sem dró mig að Adapt Life var
að þetta á að auka einbeitinguna
og losa mann við minnislekann,
sem hentar mér mjög vel vegna
þess að ég er með ADHD en vil
ekki vera á lyfjum vegna þess.
Ég var alltaf þreytt og hausinn
ekki alveg að virka. Mér fannst ég
þurfa að taka til í höfðinu á mér,“
segir Kolbrún. „Ég er búin að taka
þessa vöru í nokkrar vikur núna og
strax farin að finna mun, fyrst og
fremst það að ég er með betri yfir-
sýn yfir hlutina núna og minnis-
lekinn gerir ekki eins oft vart við
sig. Í raun er ég að nýta sjálfa mig
betur.“
Kolbrún segist ekki hafa fundið
mun strax en að hann komi hægt
og rólega. Eftir nokkra daga tók
hún eftir að hún hefði verið orku-
meiri og orkan hefði verið jafnari.
„Fyrstu dagana var ég alltaf á
iði, eins og alltaf, og reyndi eins
og svo oft áður að stytta mér leið
þegar kom að kvöldmatnum, en
núna nenni ég að hafa meira fyrir
honum,“ segir Kolbrún. „Ég veit
ekki hvort það er út af aukinni
orku eða betra jafnvægi í hug-
anum. Almennt séð finnst mér ég
vera með jafnari orku, jafnvel þó
að ég sé oft að gera hluti sem reyna
á á ólíkan hátt á milli daga.
Eftir að hafa keyrt sig í kaf eins
og ég gerði tekur langan tíma að
ná sér. Stundum koma góðir dagar
og þá er hætta á að maður klári
orkuna því maður fer of geyst af
stað, en Adapt Life hjálpar mér
að vera rólegri og stöðugri,“ segir
Kolbrún. „En það besta við þetta er
klárlega yfirsýnin sem mér finnst
ég hafa fengið. Það er líka frábært
að nenna nú að nota heilann og
orkuna í alla þessa litlu hluti í
lífinu sem maður á að gera en gerir
oft ekki. Auðvitað er þetta engin
töfralausn og virkar mismunandi
á fólk,“ segir Kolbrún. „Fyrstu
dagana fannst mér ég líka verða
rosalega þreytt þegar minnislek-
inn var að stoppa. Það var eins og
heilinn væri að vinna úr hlutunum
og skipuleggja þá betur og um leið
nota meiri orku. En þetta náði
f ljótlega jafnvægi.
Það er frábært að fá jafnvægi
á kortisólið og Adapt Life hefur
hjálpað mér að læra að slaka á,“
segir Kolbrún. „Allan daginn er
maður að gefa af sér og reyna sitt
besta, en það er betra að eiga eitt-
hvað eftir þegar heim er komið.“
Adapt Life og Adapt Sport fæst
í lyfjaverslunum um land allt.
Nánari upplýsingar á raritet.is
Aukin orka og einbeiting í leik og starfi
Adapt Life er
hannað til að
bæta einbeit-
ingu, gefa orku,
draga úr þreytu
og auka þol
gegn streitu.
Adapt bætiefnin
eru hönnuð til
að auka orku og
hjálpa fólki að
höndla streitu.
Þau hafa hjálpað
Kolbrúnu Fjólu
Arnarsdóttur,
menntaskóla-
kennara og lík-
amsræktarþjálf-
ara, að ná orku og
einbeitingu eftir
væga kulnun.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir
Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5654 / jonivar@frettabladid.is
JÓLAHREINGERNINGAR
Veglegt sérblað Fréttablaðsins
um jólahreingerningar kemur út 27. nóvember nk.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
6
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:3
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
0
-2
9
5
4
2
4
4
0
-2
8
1
8
2
4
4
0
-2
6
D
C
2
4
4
0
-2
5
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K