Fréttablaðið - 16.11.2019, Síða 36

Fréttablaðið - 16.11.2019, Síða 36
Adapt Sport er hentugt fyrir íþróttafólk og er hannað til að hjálpa fólki að ná hámarks árangri á nátt- úrulegan hátt, gefa hámarks orku og aukið úthald, ásamt því að flýta fyrir endurheimt. Eftir nokkra daga var ég orkumeiri og orkan orðin jafnari. Kolbrún Fjóla Arnarsdóttir Kolbrún Fjóla Arnarsdóttir segir að eftir að hún byrjaði að nota Adapt Life hafi minnið batnað til muna og að hún hafi meiri orku en áður. MYND/REGÍNA SIF Adapt Life og Adapt Sport eru bætiefni sem eiga að hjálpa fólki að höndla andlegt álag, ná upp orku og vinna gegn streitu á hraðvirkan hátt. Adapt hentar bæði til að bæta árangur í daglegu lífi og íþróttum. Adapt Life hentar vel fyrir dag- legt líf og er sérstaklega hannað til að auka orku, bæta einbeitingu, draga úr þreytu og auka þol gegn streitu. Adapt Sport er hentugt fyrir íþróttafólk, en það er hannað til að hjálpa fólki að ná hámarks árangri á náttúrulegan hátt, gefur hámarks orku og aukið úthald, ásamt því að flýta fyrir endur- heimt. Fólk finnur muninn fljót- lega eftir inntöku og Adapt Sport virkar sífellt betur ef það er tekið yfir lengri tíma. Adapt Life og Sport byggt á klínískum rannsóknum Adapt Life og Adapt Sport byggja á sérhæfðum blöndum sem inni- halda adaptogen jurtirnar: burni- rót, schisandra, síberíuginseng og B-vítamín. Klínískar rannsóknir benda sterklega til að þessar einstöku blöndur geti hjálpað líkamanum við að auka orku, bæta árangur og auka afköst í starfi, leik og íþróttum. Adaptogen jurtir hafa ýmsa eiginleika, eins og að auka líkam- lega og andlega orku og þrek, vinna til dæmis gegn áhrifum svefnleysis, vernda heila og tauga- kerfi (sem meðal annars bætir minni og skynjun), draga úr kvíða og streitu og vernda gegn til- teknum tegundum sindurefna. Á meðan orkudrykkir og kaffi gefa tímabundna orku eru áhrifin af adaptogenum jafnari og þau auka árangur og vara lengur. Jafnvægi á streituhormónið Það er mikilvægt að stresshorm- ónið kortisól sé í jafnvægi. Rann- sóknir benda til að Adapt hjálpi til við að viðhalda þessu jafnvægi, minnki streitu og stuðli þar með að betri svefni og minni þreytu. Langtíma ójafnvægi eða of mikið magn af kortisóli í blóði er ekki gott fyrir líkamann og getur valdið þreytu, dregið úr vöðvamassa, aukið matarlyst og dregið úr kyn- löngun. Sömu rannsóknir skjóta stoðum undir að Adapt stilli af rétt hlutföll af kortisóli og testósteróni sem er mikilvægt í öllum íþróttum. Með því að hafa jafnvægi á kortisóli og testósteróni næst betri hvíld, endurheimt verður betri og æfingar skila meiri árangri. Adapt Sport er prófað og notað af afreks- fólki í íþróttum. Hjálpaði Kolbrúnu að ná upp orku og einbeitingu á ný Kolbrún Fjóla Arnarsdóttir er 38 ára íþrótta- og heilsufræðingur og tveggja barna móðir. Hún kennir lýðheilsutengdar greinar við Menntaskólann á Ísafirði og vaknar klukkan hálf sex á morgn- ana til að kenna líkamsrækt, en hún hefur þjálfað síðan árið 2002. Þar fyrir utan starfar hún sem leiðsögumaður á sumrin, kennir skyndihjálp af og til og á fimm vikna fresti er hún með vaktsíma fyrir öryggishnapp aldraðra allan sólarhringinn, viku í senn. Kolbrún fékk væga kulnun vegna vinnu í fyrravor en hefur náð góðum bata. Hún sá auglýs- ingu fyrir Adapt Life þar sem kom fram að það gæti hjálpað fólki að höndla streitu og álag og segir það hafa kallað á hana. „Eftir að hafa unnið alltof mikið alltof lengi var ég orðin líkamlega og andlega orkulaus. Ég átti í raun ekkert eftir til að gefa af mér þegar heim var komið,“ segir hún. „Eitt af því sem dró mig að Adapt Life var að þetta á að auka einbeitinguna og losa mann við minnislekann, sem hentar mér mjög vel vegna þess að ég er með ADHD en vil ekki vera á lyfjum vegna þess. Ég var alltaf þreytt og hausinn ekki alveg að virka. Mér fannst ég þurfa að taka til í höfðinu á mér,“ segir Kolbrún. „Ég er búin að taka þessa vöru í nokkrar vikur núna og strax farin að finna mun, fyrst og fremst það að ég er með betri yfir- sýn yfir hlutina núna og minnis- lekinn gerir ekki eins oft vart við sig. Í raun er ég að nýta sjálfa mig betur.“ Kolbrún segist ekki hafa fundið mun strax en að hann komi hægt og rólega. Eftir nokkra daga tók hún eftir að hún hefði verið orku- meiri og orkan hefði verið jafnari. „Fyrstu dagana var ég alltaf á iði, eins og alltaf, og reyndi eins og svo oft áður að stytta mér leið þegar kom að kvöldmatnum, en núna nenni ég að hafa meira fyrir honum,“ segir Kolbrún. „Ég veit ekki hvort það er út af aukinni orku eða betra jafnvægi í hug- anum. Almennt séð finnst mér ég vera með jafnari orku, jafnvel þó að ég sé oft að gera hluti sem reyna á á ólíkan hátt á milli daga. Eftir að hafa keyrt sig í kaf eins og ég gerði tekur langan tíma að ná sér. Stundum koma góðir dagar og þá er hætta á að maður klári orkuna því maður fer of geyst af stað, en Adapt Life hjálpar mér að vera rólegri og stöðugri,“ segir Kolbrún. „En það besta við þetta er klárlega yfirsýnin sem mér finnst ég hafa fengið. Það er líka frábært að nenna nú að nota heilann og orkuna í alla þessa litlu hluti í lífinu sem maður á að gera en gerir oft ekki. Auðvitað er þetta engin töfralausn og virkar mismunandi á fólk,“ segir Kolbrún. „Fyrstu dagana fannst mér ég líka verða rosalega þreytt þegar minnislek- inn var að stoppa. Það var eins og heilinn væri að vinna úr hlutunum og skipuleggja þá betur og um leið nota meiri orku. En þetta náði f ljótlega jafnvægi. Það er frábært að fá jafnvægi á kortisólið og Adapt Life hefur hjálpað mér að læra að slaka á,“ segir Kolbrún. „Allan daginn er maður að gefa af sér og reyna sitt besta, en það er betra að eiga eitt- hvað eftir þegar heim er komið.“ Adapt Life og Adapt Sport fæst í lyfjaverslunum um land allt. Nánari upplýsingar á raritet.is Aukin orka og einbeiting í leik og starfi Adapt Life er hannað til að bæta einbeit- ingu, gefa orku, draga úr þreytu og auka þol gegn streitu. Adapt bætiefnin eru hönnuð til að auka orku og hjálpa fólki að höndla streitu. Þau hafa hjálpað Kolbrúnu Fjólu Arnarsdóttur, menntaskóla- kennara og lík- amsræktarþjálf- ara, að ná orku og einbeitingu eftir væga kulnun. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5654 / jonivar@frettabladid.is JÓLAHREINGERNINGAR Veglegt sérblað Fréttablaðsins um jólahreingerningar kemur út 27. nóvember nk. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 1 6 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :3 9 F B 0 9 6 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 0 -2 9 5 4 2 4 4 0 -2 8 1 8 2 4 4 0 -2 6 D C 2 4 4 0 -2 5 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 9 6 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.