Fréttablaðið - 16.11.2019, Síða 48
Lögfræðingur á skrifstofu vinnu-
markaðar og starfsendurhæfingar
Félagsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf lögfræðings
á skrifstofu vinnumarkaðar og starfsendurhæfingar. Meginhlutverk
skrifstofunnar er að undirbyggja stefnumarkandi ákvarðanir
ráðherra og að hafa heildarsýn yfir þá málaflokka sem falla undir
málefnasvið skrifstofunnar sem og önnur viðfangsefni sem undir
ráðuneytið heyra, eftir því sem við á. Enn fremur er það hlutverk
skrifstofunnar að hafa yfirsýn yfir framkvæmd stefnu stjórnvalda á
málefnasviði skrifstofunnar og fylgja henni eftir, meðal annars með
gerð lagafrumvarpa, þingsályktunartillagna og reglugerða sem og með
þátttöku í nefndarstörfum innanlands og erlendis. Lögð er áhersla á
gott samráð og samstarf við önnur ráðuneyti og stofnanir, svo sem
Vinnumálastofnun og Vinnueftirlit ríkisins, sem og Alþingi og ýmsa
hagsmunaaðila.
Leitað er eftir einstaklingi sem er reiðubúinn að takast á við
krefjandi, áhugaverð og fjölbreytt verkefni á sviði vinnumarkaðar og
starfsendurhæfingar þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og
sjálfstæði í starfi. Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni tengjast löggjöf á málefnasviði skrifstofunnar,
svo sem um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum,
atvinnuleysistryggingar, vinnumarkaðsaðgerðir, atvinnuréttindi
útlendinga, Ábyrgðasjóð launa og fæðingar- og foreldraorlof.
Kröfur um menntun og hæfni
• Fullnaðarpróf í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi.
• Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Sveigjanleiki og samstarfshæfni.
• Skipulagshæfni.
• Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Góð kunnátta í ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Þekking og starfsreynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu æskileg.
• Kunnátta í einu Norðurlandamáli æskileg.
Frekari upplýsingar um starfið
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi fjármála- og
efnahagsráðherra og Félags háskólamenntaðra starfsmanna
Stjórnarráðsins.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar
sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi
uppfyllir þær kröfur um menntun og hæfni sem gerðar eru. Tekið skal
fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur
rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum,
með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu liggur fyrir.
Ráðuneytið hvetur karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar um starfið veitir Bjarnheiður Gautadóttir, skrifstofustjóri, í
síma 545-8100, bjarnheidur.gautadottir@frn.is.
Umsóknarfrestur er til 2. desember 2019. Umsóknir skulu fylltar út á
Starfatorgi, www.starfatorg.is.
Félagsmálaráðuneytið, 15. nóvember 2019.
Við ráðum
WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS
Stjórnendaleit
Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga
Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu
stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja.
Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga
Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára
löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar
á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið.
Almennar ráðningar á markaði
Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta
áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum
er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu
máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í
viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki
við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið.
Sveigjanleg nálgun
Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun
á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt
ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir
fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf
krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða
starfs tengdar æfingar.
Matstæki
Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta
hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt
sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við
banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem
er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum
mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að
greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður
en ráðning fer fram.
Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn
með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið
OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index)
skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og
staðfærð að íslenskum markaði.
Ráðgjöf við starfslok
Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir
höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að
starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við
ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um
atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs
ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði
varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl.
Ráðum býður upp á ráðgjöf
og ráðningar þjónustu sniðna
að þörfum viðskiptavinarins.
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu og
veita trausta og
persónulega ráðgjöf.
capacent.is
Við gætum verið
með næsta starfsmann
mánaðarins á skrá
1
6
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:3
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
0
-1
A
8
4
2
4
4
0
-1
9
4
8
2
4
4
0
-1
8
0
C
2
4
4
0
-1
6
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
9
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K