Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.11.2019, Qupperneq 66

Fréttablaðið - 16.11.2019, Qupperneq 66
Leilanie Lurina Farao er fædd og uppalin í Namibíu en f lutti til Íslands árið 2004. Ástin dreif hana hálfa leið yfir hnöttinn en í Nami­ bíu kynntist hún sjómanni sem vann  hjá  útgerðinni Sea Flower. Hún er nú gift í annað sinn, Reg­ inald Scott Farao, sem er líka frá Namibíu.  „Ég lít á Ísland sem mitt heimaland. Mér finnst gott að búa hér en auðvitað fylgist ég svolítið með fréttum frá Namibíu,“ segir hún. Leilanie vinnur í mötuneyti fyrir eldri borgara á Hjallabraut í Kópavogi. „Þau vilja vita hvað mér finnst,“ segir hún. Fáir Namibíu­ menn búa hér á landi. „Ég veit ekki um nema nokkra og þeir tengjast f lestir fjölskyldu minni,“ segir hún. Fréttir af mútugreiðslum og spillingu komu henni ekki á óvart. „Það er mikil og viðvarandi spilling í landinu sem hefur reynst erfitt að uppræta,“ segir Leilanie sem segir það þó jákvætt merki að ráðherr­ arnir hafi sagt af sér. Henni finnst þó ósanngjarnt að einblína á spill­ ingu í fæðingarlandinu. „Við á Íslandi þurfum líka að taka á spill­ ingu,“ segir Leilanie. Leilanie segir Namibíu eiga möguleika á betri framtíð. „Margir tala um fátækt Namibíu en það er hins vegar auðugt af náttúruauð­ lindum. Ef spillingin væri ekki svona mikil væru möguleikarnir meiri,“ segir hún en úti fyrir 1.500 kílómetra strandlengju landsins eru einhver auðugustu fiskimið jarðar. Auðlindirnar hafa hins vegar ekki skilað miklum arði til íbúa landsins vegna rányrkjuveiða. Eiginmaður Leilanie, Reginald Scott Farao tekur undir með henni og segir fréttir af spillingu ekki hafa komið á óvart. „Nei, þvert á móti. Íbúar Namibíu eru vanir umræðu um spillingu ráðamanna en þjóðin er hins vegar að opna augun. Ég held það sé gott að þetta mál hafi komið upp, ef laust á f leira eftir að koma í ljós sem tengist öðrum fyrirtækjum á svæðinu,“ segir Reginald. „Eins og konan mín sagði líka  þá er Namibía sérlega auðug af auðlindum og þess vegna ásælast önnur ríki þær. Það reynist þeim líklega auðveldara vegna þess hve stjórnkerfið er veikburða og spilling víða. En svo er þetta líka f lókið því núna sækir líka Kína að ríkjum Afríku og ásælist einnig auðlindir okkar,“ segir hann. Reginald segir f lesta Nami­ bíubúa standa í þakkarskuld við Íslendinga vegna þeirrar uppbygg­ ingar sem þeir hafa staðið fyrir frá árinu 1990. „Íslendingar gerðu ótal margt gott fyrir Namibíu og stór­ fyrirtækið hefur ekki áhrif á það að Namibíumenn eru þakklátir fyrir það. Mörg störf og uppbygging í iðnaði eru Íslendingum að þakka.“ – kbg Vakning fyrir íbúa Namibíu Hjónin Leilanie og Reginald eru Íslendingar en fædd og uppalin í Namibíu. Þau lýsa sýn sinni á fréttir vikunnar af viðskipta- háttum Samherja í Namibíu. Þau eru sammála um það að uppljóstrunin muni leiða gott af sér og að líklega muni fleira koma í ljós á næstu vikum. Reginald og Leilanie eru bæði fædd og uppalin í Nami- bíu en hafa búið í meira en ára- tug á Íslandi. Gunn þór Ingva son, fram­k v æ m d a s t j ó r i S í l d a r ­vinnslunnar, segir að það haf i aldrei verið ætlunin með tölvupóstsamskiptum sínum við stjórnendur Samherja að blekkja neinn. Líkt og greint var frá í blað­ inu í gær sendi Gunnþór tölvupóst í lok apríl árið 2014 á Aðalstein Helgason, Jóhannes Stefánsson og mann hjá Samherja sem hefur net­ fangið siggi@samherji.is. Þar óskar hann eftir tilbúnum punktum þar sem „einhverjir heimamenn“ séu að þykjast fara í uppbyggingu á Austur­Grænlandi til að komast yfir veiðiheimildir og velvild. „Sælir félagar. Þannig er mál með vexti að vinur okkar í Grænlandi, Henrik Leth, var að biðja mig að setja niður fyrir sig hvað þyrfti til í fjárfestingum, veiðum, vinnslu og hafnarmannvirkjum ef menn myndu vera setja upp fiskimjöls og uppsjávarverksmiðju í Ammasalik austurströnd Grænlands,“ útskýrir Gunnþór. „Hann er ekki að hugsa um að setja neitt upp, heldur eru einhverjir heimamenn í Græn­ landi með einhverja með sér í því að reyna ná kvótum og goodwill af stjórnvöldum með því að þykjast vera fara byggja upp á Austur Græn­ landi,“ undirstrikar Gunnþór. „Eigið þið ekki tilbúna einhverja svona punkta þó svo að þeir eigi við um Afríku?“ Jóhannes svarar. „Það er kannski spurning um að taka frá Mar­ okkó, hvað segirðu um það?“ spyr Jóhannes í svarskeyti og beinir þá spurningunni til Sigga. „Gunnþór, ertu að leitast eftir ein­ hverju ýtarlegu eða bara í kynning­ arformi?“ spyr hann síðan stjórn­ anda Síldarvinnslunnar. Gunnþór svarar þá: „Nei, bara punktum hvað þarf.“ Fréttablaðið hafði samband við Gunnþór á fimmtudag og tjáði honum að daginn eftir yrði birt frétt um tölvupóstsamskipti hans sem væru að finna í skjölum Wikileaks tengdum Samherja. Vildi hann ekki tjá sig eða svara spurningum á þeim tímapunkti. Bað hann um að hringt yrði í sig daginn eftir. Eftir að fréttin birtist vísaði Gunnþór því alfarið á bug að það haf i verið ætlunin að blekkja Grænlendinga, ekki haf i verið alvara að baki póstinum. Hann segist vera sleginn yfir umfjöllun Kveiks og ekki hafa hugmynd um hvað Samherji hafi verið að gera í Afríku, þó hann hafi verið að biðja um punkta sem eigi við starfsemi Samherja í Afríku. Síldarvinnslan sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem segir að Henrik Leth hafi haft samband við Gunnþór og tjáð honum að á Grænlandi væri í umræðunni að einhverjir áformuðu að koma upp fiskimjöls­ og uppsjávarvinnslu í Ammassalik á austurströnd lands­ ins. Segir einnig að Henrik hafi talið áformin mjög óraunhæf og talið þau lið í að ná kvóta hjá grænlenskum stjórnvöldum. Hann hafi þá leitað til Gunnþórs til að fá nánari upp­ lýsingar um tæknileg málefni og kostnað við uppbyggingu eins og þessa. Þá hafi Gunnþór leitað til Samherja því hann vissi að Sam­ herji hefði nýlega látið gera áætlanir um slíka uppbyggingu í Marokkó. – gar, ab, oæg Bað um punkta um starfsemi Samherja í Afríku Gunnþór Ingvason, framkvæmda- stjóri Síldarvinnslunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 1990 Namibía öðlast sjálfstæði. Namibísk stjórnvöld leita til íslenskra stjórnvalda eftir hjálp við að byggja upp sjálfbært sjávarútvegskerfi. Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur starfsemi í Namibíu. Útvegar mannskap til hafrannsókna og átti á næstu árum eftir að aðstoða Namibíumenn við að byggja upp fiskiðnað sem var lítill eða enginn fyrir, þá átti ÞSSÍ þátt í að koma á fót sjómannaskóla í landinu. Þróunarað­ stoðin stóð yfir til ársins 2010. Niður­ staða þróunarvinnunnar var að tekist hefði að byggja upp fiskveiðistjórnunar­ kerfi sem átti að skila landinu störfum og skatttekjum. 18. maí 2007 Greint frá kaupum Samherja á Sjólaskip­ um sem gerð voru út frá Kanaríeyjum. Útgerðin er nefnd Katla Seafood. Sam­ herji hefur starfsemi í Namibíu og tryggir sér rétt til að veiða. 2010 Ísland hættir þróunarsamvinnu í Nami­ bíu vegna slæmrar ríkisfjárstöðu eftir hrun. Febrúar 2012 Íslenska útgerðarfélagið Samherji festir kaup á 30.000 tonna fiskikvóta af tveimur kvótahöfum í Namibíu og hefur veiðar á brynstirtlu (hrossamakríl). 12. nóvember 2019 Kveikur og Stundin opinbera viðskipta­ hætti Samherja í Namibíu á síðustu árum og hvernig fyrirtækið sölsaði undir sig verðmætan brynstirtlukvóta í landinu með mútugreiðslum til ráðamanna sem námu yfir einum milljarði króna. Wiki­ leaks birtir 30 þúsund skjöl í tengslum við málið. Í skjölunum er að finna tölvupósta, skýrslur innan fyrirtækisins, töflur, kynningar og ljósmyndir. Wiki­ leaks hefur boðað frekari birtingu eftir tvær til þrjár vikur. 13. nóvember 2019 Bernhard Esau, sjávarútvegsráðherra Namibíu, og Sacky Shanghala, dóms­ málaráðherra landsins, segja af sér embætti vegna uppljóstrana um að þeir og fleiri aðilar þeim tengdir hafi þegið greiðslur frá dótturfélögum Samherja til að greiða fyrir því að félögin fengju eftir­ sóttan kvóta. 14. nóvember 2019 Þor steinn Már Bald vins son, for stjór i Sam herj a, seg ir að hon um hafi blöskr­ að um ræð an und an farn a daga og þess vegn a hafi hann á kveð ið að stíg a til hlið­ ar tímabundið. Björg ólf ur Jóh anns son, fyrr verandi for stjór i Icel and a ir Gro up, tekur tím a bund ið við stöð u for stjór a. SAMHERJAMÁLIÐ Sjálfstæði Namibíu, Ísland og Samherjamálið 1 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 6 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :3 9 F B 0 9 6 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 3 F -D 0 7 4 2 4 3 F -C F 3 8 2 4 3 F -C D F C 2 4 3 F -C C C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 9 6 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.