Fréttablaðið - 16.11.2019, Qupperneq 68
Rauði þráðurinn í hug-myndinni um Heims-þing kvenleiðtoga er að þegar við gerum hlut-ina saman, þá erum við sterkari,“ segir
Hanna Birna Kristjánsdóttir sem er
formaður stjórnar Women Political
Leaders (WPL). Samtökin halda, í
samstarfi við ríkisstjórn Íslands og
Alþingi, Heimsþing kvenleiðtoga í
Hörpu í næstu viku.
Auk þingkvenna og ráðherra víðs
vegar að úr heiminum, er mikill
fjöldi ráðakvenna og stjórnenda í
stórfyrirtækjum á leið til landsins,
meðal annars Julia Gillard, fyrr-
verandi forsætisráðherra Ástralíu,
Dalia Grybauskaité, fyrrverandi
forseti Litháen, Christy Tanner,
aðstoðarforstjóri CBS News Digi-
tal, Victoria Budson, frá Harvard,
og Anita Bhatia, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri UN Women.
Leggja á ráðin um aðgerðir
Hanna Birna, sem eins og lands-
menn þekkja er fyrrverandi borgar-
stjóri, innanríkisráðherra og vara-
formaður Sjálfstæðisf lokksins,
starfar nú sem sérstakur ráðgjafi á
aðalskrifstofu UN Women í New
York ásamt því að sinna formennsku
í alþjóðlegu þingkvennasamtök-
unum WPL.
Heimsþing kvenleiðtoga var einn-
ig haldið hér í nóvember á síðasta
ári og þá mættu líka 450 leiðtogar
til þingsins. Sérstakt þema þess árs
var stafræn bylting samtímans og
þau tækifæri sem það gefur til að
fjölga konum í leiðtogahlutverkum
og tryggja jöfn tækifæri kvenna og
karla til ákvarðanatöku.
„Á síðasta ári töluðum við mikið
um þá staðreynd að það vantar fleiri
konur í tæknigeirann. Nú erum við
meira að horfa á almenna umhverf-
ið og þá stöðu og staðreynd að við
búum í veröld þar sem aðeins 7,5
prósent þjóðarleiðtoga eru konur
og aðeins 5 prósent forstjóra stærstu
fyrirtækja heims skráðra á markaði.
Við sjáum svipaða stöðu á öllum
sviðum samfélagsins og aðeins 25
prósent þingmanna í heiminum eru
konur. Við ætlum að horfa á þessa
staðreynd og hvað konur sem eru
stjórnendur og leiðtogar geta lagt
til málanna.“
Hanna Birna nefnir að á þing-
inu fari ekki einungis fram samtal,
heldur séu lögð á ráðin um aðgerðir.
„Við erum að taka verkefnið lengra
og í fyrsta skipti munu margir af
þeim leiðtogum sem þarna mæta
gefa fyrirheit um aðgerðir með því
að stíga fram og lýsa hvað til stendur
Neistinn
hefur aldrei
verið stærri
450 kvenleiðtogar frá yfir 80 löndum eru
væntanlegir til landsins vegna heimsþings
sem er haldið í næstu viku. Hanna Birna
Kristjánsdóttir segir frá verkefninu og störf-
um sínum fyrir UN Women í New York.
„Ég er 53 ára en
líður stundum
nú eins og ég
sé aftur orðin
25 þegar ég
hraðgeng
borgina á enda
milli funda,
hleyp á milli
lesta eða geri
misheppnaðar
tilraunir til að
venja mig á að
taka morgun-
hlaup meðfram
Hudson,“ segir
Hanna Birna.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
að gera fyrir næsta þing að ári. Fyrir-
tæki og einstaklingar gefa fyrirheit.
Til dæmis um að minnka launamun
kynjanna, breyta stjórnendastrúkt-
úrnum, fjölga tækifærum kvenna og
svo framvegis. Þetta verður því ekki
bara samtal, heldur líka raunveru-
legar aðgerðir,“ segir hún frá.
„Við viljum að Heimsþingið sé
ekki bara einstakur viðburður held-
ur viðvarandi verkefni um hvernig
við fjölgum konum í ákvarðanatöku
og sem leiðtogum.“
Forréttindi að halda heimsþing
Hún segir það hafa reynst vel að
halda heimsþingið á Íslandi. „Það
eru einstök forréttindi að fá að halda
þingið hér. Íslendingar eru einfald-
lega heimsins bestu gestgjafar og
þeir kvenleiðtogar sem hingað koma
finna allir hversu stolt við erum öll
af góðri stöðu Íslands þegar kemur
að jafnrétti.
Að auki kallar Ísland fram í leið-
togunum tilfinningu fyrir því að
þetta sé hægt. Þær koma sumar úr
umhverfi þar sem þær hafa verið
einu konurnar við borðið. Þó að
við Íslendingar séum langt frá því
að búa í fullkomnu jafnréttissam-
félagi, þá er hvatningin héðan mikil
og þær sem hingað koma fá jákvæð
skilaboð frá öllu samfélaginu um að
það sé hægt að breyta hlutum.“
Hanna Birna hætti í stjórn málum
eftir kosn ing ar haustið 2016. Hún
hætti sem inn an rík is ráð herra í lok
árs 2014 í kjöl far leka máls ins. Árið
2015 ákvað hún að hætta sem vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins.
„Ég elskaði að starfa í stjórn-
málum, var afar þakklát og stolt af
því trausti sem ég naut en fannst
ég hafa upplifað allt litrófið á þeim
vettvangi og kominn tími á breyt-
ingar. Þegar ég ákvað að hætta þá
skar ég í raun alveg á öll f lokks-
pólitísk afskipti, enda vildi ég aldr-
ei verða stjórnmálamaðurinn sem
hætti en teldi mig enn vita best og
þurfa að skipta mér af þeim sem á
eftir komu. Ég reyni hins vegar að
styðja allar konur í stjórnmálum, í
öllum flokkum og hvar sem er. Ég bý
að reynslu sem vil ég gjarnan deila
og finnst það skylda mín að gefa til
baka.
Það voru jafnréttismálin sem
leiddu mig inn í stjórnmálin og alla
tíð eru það þau sem hafa kveikt á
mínum vilja til afskipta. Þau þokast
svo hægt í rétta átt. Sorglega hægt.
Eftir því sem maður eldist og upp-
götvar hversu ólíklegt það er að
maður sjálfur eða börnin okkar
munu nokkurn tíma lifa í heimi
fulls jafnréttis þá færist í mann
meiri kraftur. Maður verður að
nýta tímann vel. Og þessi neisti sem
ég hef alltaf verið með, hann hefur
aldrei verið stærri og öfugt við það
sem ég taldi þegar ég var yngri verð
ég meiri og meiri femínisti eftir því
sem ég eldist.“
Ævintýri að búa í New York
Hanna Birna segir lífið í New York
hrista upp í tilverunni. Hún segist
samt ekki alflutt til borgarinnar þó
að hún hafi þar aðsetur. „Ráðning
mín hjá UN Women er til tveggja
ára og verkefni mín hjá WPL fara vel
saman við það starf. Að vinna með
og finna leiðir til að hækka hlutfall
kvenna í leiðtogastörfum.
Að búa í New York er ný upplifun.
Ég hef alltaf sótt kraft og næringu til
þessarar stóru borgar. Ég get ekki
talið hversu oft ég hafði farið þangað
áður en ég f lutti þangað. Ég sótti í
kraftinn í borginni en það er öðru-
vísi að búa þar. Maður verður fljótt
hluti af hraðanum og suðupottinum
sem borgin er. Ég er 53 ára en líður
stundum nú eins og ég sé aftur orðin
25 þegar ég hraðgeng borgina á enda
milli funda, hleyp á milli lesta eða
geri misheppnaðar tilraunir til að
venja mig á að taka morgunhlaup
meðfram Hudson,“ segir Hanna
Birna. „Þetta er bara ævintýri!“
Hanna Birna býr neðarlega á
Manhattan en ferðast líka mikið um
heiminn vegna starfa sinna. „Fjöl-
skyldan mín reynir að vera með mér
eins mikið og hægt er. Og ég reyni
að vera hér á Íslandi eins mikið og
mögulegt er, enda kallar það líka
á mikla innlenda vinnu að tryggja
að Heimsþing kvenleiðtoga standi
undir nafni ár hvert. Þetta líf kallar
á ansi mörg ferðalög,“ segir Hanna
Birna og segir það vel þess virði.
„Mér finnst það svo mikil forrétt-
indi að fá að vinna við þá áskorun
sem ég held að geti haft svo mikil
áhrif til góðs fyrir alla – sem er jafn-
rétti kynjanna. Heimsþingið er hluti
af því, það tekur allt árið að undir-
búa það en við erum með starfsfólk
hér heima og erlendis sem sér um
undirbúning og framkvæmd.
Ég finn fyrir raunverulegum og
einlægum áhuga hjá öllum þátt-
takendum á að ná árangri og vinna
að því að ná fram breytingum og
tryggja aðkomu bæði kvenna og
karla að forystu. Og það sem mestu
skiptir er að ég trúi því að Ísland geti
gegnt algjöru lykilhlutverki í þeim
breytingum, tekið forystu og haft
mikil áhrif til góðs þegur kemur að
því að gera líf fólks um allan heim
betra með tilkomu aukins jafn-
réttis. Og það er frábært að fá að
taka örlítinn þátt í því,“ segir hún en
eins og áður segir er þingið haldið í
samstarfi við ríkisstjórn Íslands og
Alþingi og hefst í Hörpunni næsta
þriðjudag.
Meðal gesta á ráðstefnunni
Julia Gillard
fyrrverandi
forsætisráð
herra Ástralíu
Dalia
Grybauskaité
fyrrverandi
forseti Litháen
Christy Tanner
aðstoðar
forstjóri CBS
News Digital
Victoria
Budson
frá Harvard
Anita Bhatia
aðstoðarfram
kvæmdastjóri
UN Women
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
1 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:3
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
3
F
-E
4
3
4
2
4
3
F
-E
2
F
8
2
4
3
F
-E
1
B
C
2
4
3
F
-E
0
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
9
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K