Fréttablaðið - 16.11.2019, Qupperneq 82
stod2.is 1817
Tryggðu þér áskrift
Verð aðeins
3.990 kr./mán.
Stærsta
efnisveita
með íslenskt
sjónvarpsefni
Vandað íslenskt sjónvarpsefni,
nýjustu erlendu þáttaraðirnar,
barnaefni með íslensku tali og hátt
í þúsund kvikmyndir.
Skuggahliðin jólanna er safn kvæða og sagna en efnið er hljóðritað eftir nafngreindu fólki á liðinni öld og varðveitt í þjóð-fræðasafni Stofnunar Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum.
Eva María Jónsdóttir, starfsmaður
Árnastofnunar, og Rósa Þorsteins-
dóttir þjóðfræðingur tóku efnið
saman og Óskar Jónasson gerði
teikningar sem prýða bókina.
„Hugmyndin kviknaði þegar
við Óskar vorum að vinna að Dans
vil ég heyra, lítilli kvæðabók fyrir
börn með sagnadönsum, þulum
og vísum. Þá var ég í samstarfi við
Rósu vegna texta sem er að finna
á upptökum í þjóðfræðasafninu.
Hún hafði þá þegar opnað augun
fyrir gamla jólaefninu og sérstöðu
þess og það kom upp úr dúrnum
að okkur langaði báðar til að sýna
fólki að jólin hafa ekki alltaf verið
skínandi allsnægtir sem kaupa má
fyrir fé. Við fórum síðan að vinna
að bókinni nokkrum árum seinna,“
segir Eva María. „Efnið í þessari
bók er allt til í þjóðfræðasafni Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum.
Við hlustuðum á upptökur og
völdum efni sem fjallar um jólin og
baráttuna við skammdegið.“
„Fæst af því sem er í bókinni hefur
verið til á prenti. Ýmsar sögur í bók-
inni eru þó til í öðrum tilbrigðum í
þjóðsagnasöfnum, en við prentum
sögurnar eins og þær eru sagðar
á hljóðupptökum, og setjum orð-
skýringar við það sem er illskiljan-
legt f lestum börnum,“ segir Rósa.
„Með þessari bók viljum við
minnast fyrri tíma þegar jólin voru
stórhættulegur tími. Gríðarlega
örlagaríkur og allt mögulegt gat
gerst,“ segir Eva María. Rósa bætir
við: „Þetta er árstíminn þegar sólin
fer og til verður tímabil óvissu og
vættir fara á kreik.“
Í ermabættum kjól
Eva María segir bókina ekki endi-
lega vera einungis fyrir börn. „Við
sáum fyrir okkur að bókin skapaði
tækifæri til samveru.“ Óskar tekur í
sama streng: „Þetta er góð bók fyrir
fullorðna að lesa fyrir börn og með
börnum. Þarna er margt sem má
útskýra og þótt orðskýringar fylgi
þá má örugglega fara dýpra ofan í
margt og ræða jólin í gamla daga.“
Rósa bætir við: „Það má til dæmis
benda á fátæktina og hvað það var
mikils virði fyrir fátækt fólk að geta
gert sér einhvern dagamun.“
„Jólin eru að verða hálfgerður
hr yllingur með gjafaf lóði og
sukki. Það er hollt að líta til baka
og sjá hvernig jólin voru og reyna
að finna einhvern milliveg,“ segir
Óskar. „Og vera í ermabættum kjól,
sem er ótrúlega fallegt. Ég vona að
sem flestir fái ermabættan kjól um
jólin,“ segir Eva María.
Hin ljóta hlið jólanna
Um myndskreytingar sínar segir
Óskar: „Ég hafði mjög gaman af
að myndskreyta efnið. Það var
skemmtilegt að rýna í þessa texta
og sjá fyrir sér kringumstæðurnar
og uppgötva hina ljótu hlið jólanna.
Annars er ég ekki mikill aðdáandi
jólanna. Mér finnst alltaf vera jól,
við höfum alltaf allt til alls.“
„Ég hef einu sinni ákveðið að
sleppa jólunum og það var þegar ég
var 24 ára. Þá fór ég af landi brott og
reyndi að komast hjá tilstandinu.
Það læknaði mig af jólaflótta,“ segir
Eva María. „Ég hef tekið jólin í sátt
en er alltaf að leita að þessum djúp-
stæða kjarna þeirra.“ Eva María
reynist vera mesta jólabarnið af
þeim þremur því Rósa segist aldrei
hafa verið sérstakt jólabarn.
Spurð um uppáhaldsefni sitt í
bókinni nefnir Eva María Barna-
gælu sem hefst svo: Heitan blóð-
mör hæ, hangikjöt ég fæ ... „Ég elska
þá vísu og myndin sem Óskar gerði
við hana finnst mér ná kjarngóðri
stemningu úr fortíðinni.“
„Mér finnst mjög skemmtileg
þulan um drenginn Drjólann og allt
sem hann getur búið til úr þremur
álnum af vaðmáli, meira að segja
kjálkaskjól handa kettinum og
möttul handa músinni,“ segir Rósa.
„Ég hef gaman af þessu öllu saman
en vil nefna kýrnar sem gerðu mann-
inn vitlausan. Smávísur eru svo
margar ansi skondnar,“ segir Óskar.
Baráttan við skammdegið
Eva María Jónsdóttir, Rósa Þorsteinsdóttir og Óskar Jónasson
ákváðu að gera skuggahlið jólanna skil í fjölskyldubók.
Eva María, Rósa og Óskar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ekki kemur á óvart að sjá Trega-stein eftir Arnald Indriðason í fyrsta sæti metsölulista
Eymundsson. Það er heldur ekk-
ert furðulegt að Þögn, ný bók Yrsu
Sigurðardóttur, skuli hlamma sér í
annað sætið. Konungur og drottn-
ing glæpasagnanna hér á landi
eiga örugglega eftir að halda sér á
toppnum í þessari jólabókavertíð
líkt og þeim fyrri.
Í þriðja sæti er Þinn eigin tölvu-
leikur eftir Ævar Þór Benediktsson.
Tilf inningabyltingin eftir Auði
Jónsdóttur er í fjórða og því fimmta
er Hnífur, glæný glæpasaga eftir Jo
Nesbø þar sem lögreglumaðurinn
Harry Hole glímir við erfiðasta
málið á sínum skraut-
lega ferli.
Um t í m a n n o g
vatnið eftir Andra Snæ
Magnason sem lengi
vermdi fyrsta sæti list-
anns er nú í því sjötta.
Í sjöunda sæti er Systa
ber nsk u nna r veg na
eftir Vigdísi Grímsdótt-
ur og í því áttunda er
Vigdís, barnabókin um
fyrsta kvenforsetann.
Skáldsagan Innf ly t j-
andinn eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson er í níunda sæti
og Hvítidauði Ragnars
Jónassonar í því tíunda.
Arnaldur á toppnum
KONUNGUR
OG DROTTNING
GLÆPASAGN-
ANNA HÉR Á
LANDI EIGA
ÖRUGGLEGA
EFTIR AÐ
HALDA SÉR Á
TOPPNUM.
VIÐ HLUSTUÐUM Á
UPPTÖKUR OG
VÖLDUM EFNI SEM FJALLAR UM
JÓLIN OG BARÁTTUNA VIÐ
SKAMMDEGIÐ.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
1 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R50 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:3
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
3
F
-C
6
9
4
2
4
3
F
-C
5
5
8
2
4
3
F
-C
4
1
C
2
4
3
F
-C
2
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
9
6
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K