Hlynur - 15.02.1981, Blaðsíða 6

Hlynur - 15.02.1981, Blaðsíða 6
Tómas til hægri á myndinni í hlutverki Lénharðs fógeta ásamt Pétri Péturssyni. Tíminn deyfir sviða í sárum sól þerrar tár af kinn. Dapur við gröf þína drjúpi ég höfði hjá Drottni er endi þinn. Til himins sendi ég hljóðar þakkir og hjartans kveðju til þín. Blessi þig Guð, um eilífð alla ástríka vina mín. — Pú ert frumkvöðull leikstarf- semi hér á Blönduósi og hefur verið ein helsta driffjöður leikfélagsins í &egnum árin. Hvað vilt þii segja um það? — Árið 1916 sá ég fyrst sjónleik hér á BJönduósi. Pá komu Sauð- krækingar og sýndu hér Skugga- Svein. Ég varð mjög hrifinn og fór á tvær sýningar. Inngangseyrir var 25 aurar. Ég átti 50 aura í buddunni og lét það eftir mér að fara tvisvar. Pá var buddan tóm, en ánægjan mikil og ógleymanleg. 6 HLYNUR Árið 1923 er stofnað hér á Blönduósi ungmennafélag og við tókum strax leiksýningar á okkar stefnuskrá. Helstu hvatamenn að þessari starfsemi voru Kristján Arin- bjarnar, héraðslæknir og Tféndrik Berndsen, verslunarmaður. Mitt fyrsta stóra hlutverk var í leikritinu Skugga-Sveinn. Leiksýningar voru í gamla samkomuhúsinu sunnan Blöndu og þar fór þessi starfsemi fram, þar til félagsheimilið norðan Blöndu var reist, en með tilkomu þess fengum við ágæta aðstöðu til leiksýninga. Ég tók snemma að mér að leik- stýra og stjórna æfingum og lék að jafnaði stór hlutverk. Alls mun ég hafa leikið hér í 44 ár. Við fórum einnig leikferðir og sýndum á Sauð- árkróki, Hvammstanga og Skaga- strönd. Af þeim hlutverkum, sem ég fór með eru mér minnisstæðust: Séra Sigvaldi í „Maður og kona“, Hallsteinn í leikritinu „Hallsteinn og Dóra“, eftir Einar Kvaran og Otlaginn, í leikritinu „Olfhildur“, eftir Pál H. Jónsson á Laugum. Peir sem lengst hafa starfað með mér að þessum málum gegnum árin eru: Bjarni Einarsson, Nanna Tómas- dóttir, Margrét Jónsdóttir, Porgerð- ur Sæmundsen, Ásta Sighvatsdóttjr, Kristín Finnsdóttir og Skúli Pálsson, sem einnig hefur um langt árabil séð um allan búnað á leiksviði. Leik- búninga fengum við að láni hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Þjóðleik- húsinu og nokkuð var saumað hér heima. Áhugi er mikill hér fyrir leikstarfsemi og ég vona að svo verði áfram. — Tómas, þú ert orðlagfður hér í Húnaþingi fyrir hagmælsku og léttan húmor. Átt þú ekki vísukorn því til sönnunar? — Eitt sumar var mjög erfitt til heyöflunar hér í sýslunni. Bændur voru gramir út í veðurguðina og við- höfðu stór orð og ljótan munn- söfnuð. Pá kom í huga minn eftir- farandi: Húnvetnski bóndinn kvarta kann og kröfunum fylgir eftir hart. Hann gagnrýnir allt, sem er gert fyrir hann og Guð fær líka sinn bróðurpart. — Að lokum Tómas, ert þú á- nægður með hlutskipti þitt i lífinu? — Já, ég er ákaflega ánægður með hlutskipti mitt í gegnum árin. Ég eignaðist- góða konu, góð börn og tengdabörn og einnig góða félaga í starfi og leik. Nú eyði ég ævinni við lestur og mér líður ákaflega vel í skjóli sonar míns og tengdadóttur. Ég get tekið undir þau orð Guð- laugs Rósinkrans, Þjóðleikhússtjóra, stjóra, er hann sagði að loknu starfi: „Allt var þetta indælt stríð“. Pá yfirgefum við þennan aldna samvinnustarfsmann, sem hefur skilað 50 árum hjá sama vinnuveit- anda. Enginn kemst hjá því að hug- leiða, hversu mikils virði það er fyrir samvinnuhreyfinguna, að hafa slíka menn í þjónustu sinni. Páll Svavarsson, Blönduósi.

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.