Hlynur - 15.02.1981, Page 21

Hlynur - 15.02.1981, Page 21
 eyrar, en hætti því árið 1973. Lengst liðu fimm vikur, frá því farið var suður og þar til kornið var aftur norður, í einni ferð hjá Halldóri og tvisvar kom það fyrir, að skilja varð vcrur eftir á Sauðárkróki og senda þær með Drangi til Akureyrar, með viðkomu í Grímsey. Alls fór Halldór rúmlega 1100 ferðir milli Akureyrar og Reykjavíkur og sagði hann mikla breytingu hafa orðið til batnaðar á leiðinni, frá því hann ók hana fyrst. Einu sinni tók það hann viku að komast frá Blönduósi til Akureyrar og síðasti spölurinn frá Bakkaseli var 29 tíma þvælingur með ýtu. Á árinu 1979 fluttu flutninga- bílarnir 7640 tonn milli Akureyrar og Reykjavíkur og skiptist það milji leiða, að suður fóru 3815 tonn, en norður 3825. Mjólkurbílarnir fluttu 24 milljónir lítra í 456 ferðum það ár og keyrðu 350974 kílómetra. Tankvæðingin í mjólkurflutningun- um hjá KEA hófst árið 1973 og lauk 1976. Eru innleggjendur nú um 250. Efri mynd: Gamla timburhúsið að Hafnarstræti 82, þar sem Bögglaafgreiðsla KEA er nú til húsa. Neðri mynd: Nýi og gamli tíminn hjá Bifreiðadeildinni. Kristbjörn Björnsson t. v., hjá A-524, nýkomnum á götuna, en t. h. er Valdimar Halldórsson hjá Volvo gamla. HLYNUR 21

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.