Hlynur - 15.02.1981, Side 27

Hlynur - 15.02.1981, Side 27
valdi „verkfræðingur" virðir fyrir sér tækni í Landmannalaugum. Á heimleið. Síðan var fossinn Hjálp barinn aug- um augnablik og einnig Búrfells- virkjun. Var nú farið að halla degi og bótti bví tími til kominn að skola af sér ferðarykið og skroppið í sund í Pjórsárdalnum og léku menn þar ýmsa fimleika, bæði ofan vatns og neðan. Þá var stefnan tekin að Flúðum og tjaldað þar. Tók nú „brytinn“ fram grillið og von bráðar bauð hann upp á grillpinna, kjúkl-' inga og annað lostæti, er rann ljúf- lega niður í þreytta ferðalanga. Pessu var svo skolað niður með vökva af ýmsum gæðum og tegund- um, er nýttust svo fram eftir kvöldi, þegar haldið var á dansleik í félags- heimili staðarins og margir voru búnir að hlakka til frá því snemma um daginn, þegar Flúðir voru á- kveðnar sem næsti næturstaður. Fengu menn far með ýmsum farar- tækjum bæjarbúa á dansleikinn, m. a. rússajeppa og mótorhjól, aðrir gengu á sínum tveimur misfljótum. Að morgni sunnudags voru menn ekki eins árrisulir og daginn áður, en að loknum morgunverði og sundi var lagt af stað um kl. 11,00 og nú var löng dagleið fyrir höndum, þar sem heitn skyldi komist að kvöldi. Var ekið að Geysi og Gullfossi og áð þar um stund á hvorum stað, fyrir þá sem ekki höfðu komið þar áður. Þaðan var svo haldið norður Kjöl og að Hveravöllum með smá- stoppum á leiðinni. Á Hveravöllum voru hverirnir skoðaðir, en Valdi „verkfræðingur" leitaði uppi rústir af bæli Fjalla- Eyvindar og var sá eini, sem skoðaði það. Frá Hveravöllum var svo ekið sem leið liggur, til norðurs yfir Auð-’ kúluheiði og framhjá Friðmundar- vötnum og þaðan niður í Blöndudal. Næst var stansað í Varmahlíð og enn var pylsa og kók vinsælasti rétturinn, þrátt fyrir samlokukappát manna á leiðinni yfir Kjöl. Nú var haldið heim, án nokkurra teljandi tafa á leiðinni og heim var komið um kl. 10,30 að kvöldi, eftir stranga en mjög skemmtilega ferð. Voru menn þreyttir að vonum, en glaðir og kátir og ákveðnir að efna til skemmtiferðar að ári. SPELL. HLYNUR 27

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.