Hlynur - 15.02.1981, Qupperneq 30

Hlynur - 15.02.1981, Qupperneq 30
Vegamót á Snæfellsnesi er staður, sem sannarlega ber nafn með réttu. Par skiljast leiðir, þegar ekið er út eftir Nesinu, annars vegar ófram til Ólafsvikur og Sands — hins vegar norður yfir Kerlingarskarð til Stykkishólms. Upp úr 1930 hófst þarna veitingasala. Síðar opnaði Kaupfélag Stykkishólms þarna verslunarútibú og tók við veitinga- rekstri en þegar harðnaði í ári hjá Kaupfélaginu, keypti Kaupfélag Borgfirðinga Vegamót og hefur annast rekstur þar siðan. Nú vikur sögunni að Hreðavatnsskála í Norðurárdal, þar sem greiðasala fyrir ferðamenn hefur verið við lýði um svipað skeið og á Vegamótum eða í hálfa öld. Kann nú einhver að spyrja, hvað sé skylt með þessum stöðum tveim, þegar spurt er — hver er maðurinn? Og svarið er: Jóhanna Leopoldsdóttir. Pað var svo hér um daginn, þegar Samvinnuskólinn stóð fyrir nám- skeiði í Hamragörðum, og útibús- stjórinn á Vegamótum var þar meðal þátttakenda, að dregið var fram blað og penni. Jóhanna er sem sagt nú staðarhaldari á Vegamótum, en á uppruna sinn að rekja til Hreða- vatnsskála, sem dóttir þeirra Leo- polds Jóhannessonar og Olgu Sig- urðardóttur, sem höfðu þar veitinga- rekstur með höndum um árabil. — Kannski er kjánalegt að spyrja svo í upphafi, en hvers vegna fórstu í Samvinnuskólann? — Pað fóár nú bara svona. Guð- laug, kona Guðmundar skólastjóra, var búin að segja við mig, allt frá því ég var smástelpa: „Hvenær kemur þú í skólann til okkar?“ Svo varð ég fyrir smáslysi, þegar ég var 18 ára og þá rölti ég mér nfður fyrir hæð- ina og sé ekki eftir því. Ég útskrif- aðist frá Bifröst 1976 — Var skólinn eitthvað öðruvísi en þú hjóst við? — Ég held ekki. Parna var ég flestum kunnug og minn besti leik- félagi í æsku var Björg, dóttir þeirra Sveinu og Benedikts, húsvarðar að Bifröst. Við fylgdumst af athygli með öllu, sem fram fór í skólanum. — 0& hvað tók svo við eftir Sam- vinnuskólann? — Ég fór sem skiptinemi til Nýja- Sjálands og var þar í rúmt ár. Mér fannst ég þurfa að bæta við mig í enskunni og var á tímabili komin á fremsta hlunn með að fara til Norður-lrlands. — Oj» varstu ánægð með Nýja- Sjáland? — Já, mikil ósköp. Pað var ó- gleymanleg Iífsreynsla, sem maður hefur mjög gott af. Tilgangurifin með þessum skiptinemum er fyrst og fremst að auka skilning þjóða á milli og gerir það örugglega. Pað gengur hins vegar ekki átakalaust fyrir sig. Flestir eru fjötraðir í viðjar vanans. Skilningsleysi gagnvart sið- um og menningu annarra er án efa undirrót flestra átaka í heiminum. Jóhanna Leopoldsdóttir Vegamótum 30 HLYNUR

x

Hlynur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.