Hlynur - 15.02.1981, Page 36

Hlynur - 15.02.1981, Page 36
Geirs og Kjartans þrek og þor þótti frægt í blöðum. En hver gekk meiri heimskuspor í hlað á Bessastöðum? Pegar umræður voru sem mestar um það framtak Ríkisútvarpsins að senda dagskrána út í steríó kvað Óskar: Mér finnst orðið meira en nóg og mætti gjarnan þverra. Retta strögl um steríó sem stöðugt gerist verra. Hugmyndaauðgi Páls eru lítil tak- mörk sett. Sú staðhæfing hans, að stórt nef væri neftóbaksmönnum hagstætt en ylli aftur á móti óþæg- indum fyrir eigandann í vondum veðrum, fékk misjafnar undirtektir. Óskar svaraði þessu fyrir sig á þessa leið: Nefið stóra sýnir sig sjálfsagt fárra yndi. Oft hefur það angrað mig einkum í hliðarvindi. Páll fékk svo þessa vísu að laun- um fyrir hugmynd sína: Kröftum þeirra kynnst ég hef sem konungsnefin bera Palli með sitt pínu nef í pilsi ætti að vera. Heimboð Arnórs „bónda“ til Ólafs Jóhannessonar, utanríkisráð- herra, er enn vinsælt umræðuefni. Nýleg vísa ó. Þ. er til marks um það. Hún er svona: Ekki sækist Óli Jó. eftir veisluföngum. Er þó í búri Arnórs nóg og eitthvað fram á göngum. Að lokum ein af léttara taginu, „Nýárskveðja til rollubóndans“: Fýsn og kenndir falla í dá fúlt og bölvað veður. Fengitíminn farinn hjá fátt sem augað gleður. ókar Pórðarsoti. skipti á vísum, þar sem orð voru lítt skorin við nögl: Hagleg smíðar Lárus ljóð laglega sníður saman. Braginn þýða býður þjóð bæði níð og gaman. Páll þykir hið mesta snyrtimenni, en Óskari kom hann fyrir sjónir á þennan veg: Bindið hreint og brókin girt borist á í prjáli. Sannlega vel er hárið hirt og hendurnar á Páli. Páll Kristjánsson, sem er Ping- eyingur að ætt og dvaldi langdvöl- um á Akureyri, minntist oft með ánægju góðra daga norður þar. Eitt sinn er Otvarp og Veðurstofa gátu mikilla hlýinda og góðveðurs fyrir norðan, sendi Óskar Páli þessa vísu: Nú er ylur norðan fjalla nú veit gjörvöll þjóðin að ekki er Páll með öllum mjalla að yfirgefa slíkan stað. Hvort Birgir Eðvarsson hefur sjálfur orðið fyrir vonbrigðum eða að honum hafi verið hugsað til ein- hvers vinar síns, þegar hann kvað eftirfarandi vísu, skal ósagt látið: Lítill er nú máttur manns er mikinn hefur elegans að finna ekki fagran sjans sem flýr ei burtu eftir dans. Holtagarðmenn leyfa sér þann munað að vera pó'litískir, í hófi, og skjóta vísum á valdsmenn, ef svo ber undir. Höfundar er ekki getið. 36 HLYNUR

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.