Heimsmynd - 01.09.1986, Side 31

Heimsmynd - 01.09.1986, Side 31
hann geti látið aðra gera fyrir sig. Hann er hugmyndasmiðurinn - hinir fram- kvæma. „í hverjum mánuði fletti ég í gegnum tugi blaða og tímarita. Þannig fékk ég hugmyndina um Soda-stream upphaflega. Sá umfjöllun um þetta fyrir- bæri í einhverju tímariti og sýndi ágætum starfsmanni hér. Sá kom aftur til mín og sagði að þetta væri vonlaus hugmynd. Annað hefur reyndar komið á daginn. Soda-stream var sett á markaðinn hér 1981. Við höfum nú flutt inn 25 þúsund tæki frá Englandi en Danir höfðu áður tryggt sér umboðið fyrir ísland og það kostaði okkur stórfé að losa þá út úr myndinni. Ég er viss um að það rennur meira fé til Dana nú í gegnum svona umboð en á einokunartímunum. Og nú seljum við fleiri lítra á mánuði en Danir í Danmörku. En markaðshlutdeild Sólar hf. er nú yfir þrjátíu prósent á drykkjar- vörumarkaðinum hér.“ Stoltur sýnir hann mér klausu um þetta í tímaritinu Time. „Það sama gilti um Svala. Fólk hélt að ég væri snarvitlaus að ætla að framleiða blandaðan djús í fernum. Og þegar Svali kom fyrst á markaðinn 1983 seldum við rúmlega tuttugu þúsund fernur fyrsta mánuðinn samanborið við 14 milljónir síðasta ár og rúmlega tvær milljónir ferna 1 einum mánuði nú í sumar.“ Hann segir að nú eigi Sól aðeins einn alvöru keppi- naut á íslandi og það sé Coke. Fyrir utan aðrar nýjungar í framleiðslu eins og aldingrauta og fryst grænmeti vakti það athygli nýverið er dreifingar- kerfi fyrirtækisins var tölvuvætt. Tölvum er komið fyrir í öllum sendibflum ásamt Prenturum og er kostnaður við uppsetn- 'ngu þessa um þrjár milljónir króna. Seg- lr Davíð næst á dagskrá að selja Coke og hfjólkursamsölunni kerfið. „Þykkvabæj- arkartöflur hafa þegar keypt kerfið af °kkur.“ En þetta dreifingarkerfi er hið fyrsta sinnar tegundar í Evrópu að hans sögn. Önnur hagræðing í verksmiðjunni er vélmenni á lager sem er á hæð við sex hæða blokk. Það er matað á pöntunum að kveldi, sem síðan eru tilbúnar að morgni næsta dags. Hann segist sjálfur hafa gert sig gild- andi innan fyrirtækisins með tilkomu fyrstu róttæku nýjungarinnar, sem fylgdi mikil fjárfesting í nýjum vélum, en það var upphaf framleiðslu jurtasmjörlíkis árið 1964. Hann átti hugmyndina og seg- ist hafa ýtt henni í ofboði í gegn. Hann var þá 34 ára gamall og nýorðinn ekkjumaður með þrjú börn, það yngsta var tíu mánaða. Hann rifjar þetta skeið upp í sólríkri stofu í húsi sínu í Arnarnes- inu. Þar býr hann nú ásamt seinni konu sinni, Stefaníu. Hún er tíu árum yngri en hann og saman eiga þau þrjú börn, það yngsta hálfs árs stúlka sem einnig heitir Stefanía. Hann talar um litlu Steffí og stóru Steffí og situr fyrir á myndum með báðum auk fimmtán ára dótturinnar á heimilinu, Guðrúnar, sem hamast við að baka súkkulaðiköku fyrir sumarbústað- arferð um helgina. Það vantar alla vega ekki smjörlíki í deigið. „Lífið hefur leikið við mig,“ segir hann. Og það þarf vart gestsauga til að sjá að svo virðist vera. Falleg eiginkona, sex börn og híbýli sem margir myndu öfunda hann af. Þetta Iífslán hans virðist einnig vera að hluta til viðhorf. Það er ekki hægt annað en að brosa í kampinn » Sá sagöi mér að bera aldrei saman fyrri konu mína og þá síðari. þegar hann talar um þrjá eiginmenn í hverfinu, sem hafi hlaupið að heiman, eða marga kunningja af eigin kynslóð sem hafi orðið alkóhóli að bráð. Svo ypptir hann öxlum og segist kannski hafa verið heppinn. Hann hefur þó fengið sinn skammt. Móður sína missti hann um tvítugt og fyrri kona hans dó eftir að þau höfðu verið gift í tíu ár. Hann nær í svart- hvíta ljósmynd af Soffíu Mathiesen. Þau giftust árið 1953 og eignuðust saman þrjú börn. „Það uppgötvaðist að hún var með hvítblæði þegar hún gekk með yngsta barnið okkar, Jón. Hann var aðeins tíu mánaða þegar hún dó og Laura, elsta dóttirin, níu ára. Hún kvaldist mikið í lokin en ég held að hún hafi ekki vitað hvað var í vændum fyrr en undir hið síðasta. Ég réði ráðskonu sem sá um börnin og þau voru orðin vön henni þeg- ar mamma þeirra dó.“ Hann rifjar upp ráð góðs vinar. „Sá sagði mér að bera aldrei saman fyrri konu mína og þá síð- ari.“ En það liðu tvö ár frá því að Soffía dó þar til Stefanía kom til sögunnar. Eftir lát Soffíu segist hann hafa kastað sér út í vinnu. Og jurtasmjörlíkið kom til sög- unnar. „Ég kýldi það í gegn,“ segir hann og sveiflar höndum. Jurtasmjörlíkið var ekki eingöngu nýj- ung á markaðinum heldur og fyrstu kynni markaðarins af því hvernig Davíð Scheving heldur á spilunum þegar hann ætlar að kynna nýja vöru. „Við kynntum vöruna með því að gefa dós af smjörlík- inu inn á næstum hvert einasta heimili í borginni. Þessi nýstárlega tilraun gafst svo vel að Jurta varð þekkt vörumerki á fáeinum dögum og salan fór fram úr björtustu vonum.“ Og afleiðingar jurta- smjörlíksins voru einnig þær að styrkja stöðu hans sjálfs innan fyrirtækisins. „Þetta var það róttæk breyting í fram- leiðslu að mikill ágreiningur ríkti innan stjórnar Smjörlíkis um hvort þorandi væri að taka áhættuna, því fyrirtækið þurfti að fjárfesta í nýjum vélabúnaði í þessu skyni og auk þess voru ýmsir hræddir við að ögra risa á borð við Osta- og smjörsöluna. En ég barði þessa hug- mynd í gegn, sló hnefanum í borðið og HEIMSMYND 31
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.