Heimsmynd - 01.09.1986, Page 53

Heimsmynd - 01.09.1986, Page 53
 „Fólk lifir betra lífi“ „Við þekktumst austur á Fljótsdalshér- aði. Við erum bæði þaðan. Hann kenndi mér þegar ég var lítil. Bar ábyrgð á mér undir fermingu," segir Una Sveinsdóttir glettnislega um Eirík Stefánsson mann sinn. í>au eru orðin ein eftir í rúmgóðri íbúð við Kambsveg þar sem þau hafa alið upp fjögur börn. Eiríkur er orðinn 85 ára og er blindur. Una er 72 ára. Bæði eru þau fyrrverandi kennarar. Þau kynntust aftur hér fyrir sunnan árið 1942. Petta var fyrsta hjónaband Unu en Eiríkur hafði verið giftur áður. Eiríkur kenndi við Laugarnesskóla. Una setti upp smábarnaskóla sem var kallað- ur Unuskóli. „Ég var lengi með hann hérna heima eða leigði í nágrenninu," segir hún. Eiríkur kenndi í Laugar- nesskóla öll venjuleg fög og „það fór þannig að ég kenndi sund með. Síðustu árin kenndi ég sund eingöngu." Una rak Unuskóla í fjórtán ár en hætti þegar komu sex ára deildir við skóla almennt. Hún lauk kennaraferli sínum í Laugarnesskóla eins og Eiríkur. -Eruð þið ánægð með lífsstarfið? „Ég held að það sé ekki svo vitlaust,“ segir Una. „En ég veit ekki hvort maður hefur valið það. Maður hefur einhvern veginn asnast út í það. Það var nú ekki hægt að velja mikið hér á árunum. Mað- ur varð að taka það sem var hyggilegt og kleift. En ég hef ekki séð eftir því. Ég hlakkaði alltaf til að hætta á vorin og byrja á haustin." Bæði Eiríkur og Una unnu eitthvað á sumrin með kennslunni. „Við fórum í kaupavinnu um það leyti sem við vorum að byggja. Fiskvinnu og skúringar," segir Una. Þau telja bæði að á þeim árum hafi kennarakaupið verið ennþá lægra en það er núna. Nú er Una með 40% eftirlaun. k Eiríkur er með 80% og svo bætist við ellilífeyrir. Þau telja sig geta lifað á þeim iaunum. „Við þurfum ekki að borga I húsaleigu. En það fer að grána ef það i þarf að gera við húsið. Rifur og glugga,“ segir Una. ! -Hvernig verjið þið deginum? „Ég er nú sú manngerð að mér finnst ég alltaf svo önnum kafin að ég hef varla tíma til að anda,“ segir Una. „Hvort sem það er heilbrigt eða óheilbrigt.“„Ég missti sjónina um áttrætt,“ segir Eiríkur. „Þá fór nú að minnka um athafnafrelsið. Ég gekk í blindrafélagið og fór þar á námskeið að læra að hnýta. En ég geri ekkert til þarfa.“ Una stendur upp og sýnir fallegt handklæðahengi sem Eiríkur hefur hnýtt. „Ég geng mikið hér á svöl- unum til að halda mér uppi,“ segir Eirík- ur. Una segir frá því að hann gefi á garðann á svölunum. Komi inn og segi: „Þá er ég búinn að hára ánum.“ Eiríkur fer þrisvar til fjórum sinnum á dag út á svalirnar og gengur kílómetra í hvert sinn. Hann segist koma við á vissum stöðum í landareigninni. „Þegar maður er blindur sér maður ásana og hólana frá öllum hliðum í einu. Annars er ég ekkert að segja frá því hvar ég kem við. Stund- um fer maður á næsta bæ, „bætir hann við leyndardómsfullur á svip. í tómstundum sínum fara Una og „Þegar madur er blindur sér maöur ásana og hólana frá öllum hliöum í einu.“ Eiríkur einstaka sinnum í leikhús og þau eru nýkomin frá Löngumýri þar sem þau voru í tólf daga. Þá voru þau að Vestmannsvatni í viku í sumar. Þar er orlofsstaður. Þau spila einnig vist við kunningja og barnabörn. Þau segjast halda góðu sambandi við börnin, barna- börnin og ekki síst tengdabörnin. „Út- varpið er drýgst fyrir Eirík,“ segir Una. „Ég hlusta á hljóðbækur frá hljóðbóka- safninu,“ segir hann. „Svo er ýmist gott orð talað í útvarpinu. Annars er hvergi friður fyrir músík og tónlist.“ -Það hafa orðið miklar breytingar frá því að þið voruð ung? „Síðan við vorum á sæmilegum aldri hafa orðið óskaplegar breytingar. Það er áreiðanlegt að fólk lifir betra lífi en áður,“ segir Una. „Það eru komin ýmis tæki sem við höfðum ekki fyrst.“ „Það er erfitt fyrir blindan mann að gera grein fyrir heimsmyndinni,“ segir Eiríkur. Una bætir við: „Ef við lítum lengra í heimsmyndina ólagast hún. Þegar maður fer að velta því fyrir sér hvernig fari fyrir barnabörnunum.“ Eiríkur: „Það er ekk- ert notalegt að vita að manni er stillt upp fyrir skotmark. Það er ekkert þægileget að bíða eftir því að það verði smellt á mann.“ Una: Við erum búin að lifa tvær heimsstyrjaldir og það er búið að vera meira og minna stríð í heiminum eftir að þeirri seinni lauk. Mér finnst að þessi hnöttur ætti að geta verið ágætur bústað- ur.“ „Það er unnið að því að afsiða okkur og heimska," segir Eiríkur. „Og mér finnst það takast nokkuð vel. Peningur- inn er aðalatriðið. Maðurinn sjálfur er aukaatriði. Við erum höfð að leiksoppi." -Ykkar líf hefur ekki stjórnast af pen- ingum? „Maður hefur orðið að hafa í sig og á og helst húsaskjól," segir Eiríkur. -Heldur maður sér ungum í anda með því að kenna? „Ég veit það ekki. Ég held að maður sé orðinn gamall, „svarar Eiríkur. „Það var erfitt að vera unglingur en það er ágætt að vera gamall," segir Una. „Ég held að þetta sé hamingjusamt skeið.“ Eirkíkur: „Ellin er ekki glæsilegt skeið fremur en önnur hrörnun. Menn verða að átta sig á því hverju sinni á hvaða skeiði þeir eru.“ -Eruð þið trúuð? Eiríkur: „Hún fer nú æ minnkandi hjá mér trúin. Það er hægt að telja börnum trú um allt mögulegt en það er erfiðara þegar menn fara að hugsa sjálfir.“ Una: „Ég hef engar áhyggjur af því hvort það er líf eftir þetta líf. Annað hvort er ekk- ert eða maður klárar sig af því eins og lífinu. Maður er stundum trúaður og stundum ekki.“ HEIMSMYND 53
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.