Heimsmynd - 01.09.1986, Page 64

Heimsmynd - 01.09.1986, Page 64
styrks jarðnesks manns til að losna úr þeim viðjum. Óvíst er hvort þetta hafi verið hún Svartkoppa eða hvort hún hafi verið und- ir áhrifum Týla, þess sem átti að hafa drepið Hannes hirðstjóra, en víst er að reimleika hefur oftsinnis orðið vart á Bessastöðum eftir að þeir voru gerðir að bústað forseta íslands. Pegar á vordögum 1945, um það leyti sem Sveinn Björnsson var að flytja þarna suður eftir, urðu vinnukonur varar við ókyrrð í húsinu. Viðmælandi HEIMS- MYNDAR hafði þetta að segja: „Systir mín vann þarna og hún svaf ásamt öðrum vinnukonum uppi á lofti. Pær töluðu um að á ákveðnum tíma á hverri nóttu, rétt eftir miðnætti, heyrðu þær mikinn gaura- gang á neðri hæðinni, skrölt og læti eins og húsgögn væru á ferð til og frá. Þegar þær fóru svo niður að athuga málið þá sást ekkert, allt var í réttum skorðum. Ég hefði aldrei trúað þessu nema af því að ég svaf þarna einu sinni þegar þetta gerð- ist. Eftir lágnættið heyrðum við lætin byrja, maður stífnaði og hjartslátturinn jókst en það var sama sagan og áður; engin ummerki sáust þegar farið var að athuga þau niðri á eftir. Ég heyrði því fleygt að oft væri sérstök ókyrrð í húsinu þegar þar væru einhver mannaskipti en ég þori ekki að staðfesta þá sögu.“ Þetta var aðeins forsmekkurinn af því sem fylgdi í kjölfarið. Saga Svartkoppu var á flestra vitorði og vitað er að Georg- ía, kona Sveins, hélt því fram að Appoll- ónía Schwartzkopf væri enn á vappi. „Hún sagði þetta bæði í gríni og alvöru,“ segir Gunnlaugur Þórðarson hæstaréttar- lögmaður og áður forsetaritari um fimm ára skeið. „Maður vissi í raun aldrei hvort þetta var alvara eða bara danskur gálgahúmor en mér fannst allavega að henni þætti þetta skemmtilegt.“ í tíð Sveins Björnssonar vildi það svo til að Elísabet dóttir hans dvaldi á Bessa- stöðum dálítinn tíma með litla dóttur sína. Þær mæðgur sváfu í herbergi uppi á loftinu og var stúlkan í litlu rúmi fyrir framan rúm móður sinnar. Eina nóttina vaknaði Elísabet við það að henni finnst að dyrnar opnist og inn komi vera sem hún hefur á tilfinningunni að sé kvenvera frekar en annað, en hún sá hana mjög ógreinilega. Veran gekk að barnarúminu og beygði sig yfir barnið en Elísabet varð hrædd og dró sængina yfir höfuð. Þegar hún leit upp aftur sá hún á eftir verunni út um dyrnar. Atvik svipað þessu hafði komið fyrir einu sinni áður í sambandi við barnabarn Sveins og eins er þess minnst að sonarsonur hans mátti ekki koma á vissan stað í húsinu án þess að sjá einhverja ára. Ættmenni Ásgeirs Ásgeirssonar for- seta urðu ekki síður vör við ýmislegt á embættisárum hans og er kunnust saga af Sólveig Eggerz málaði sérstæða mynd á Bessa- stöðum. „Ég var inni í einni stofunni að mála og allt í einu gjörbreyttist allt. Ég sá hurð þar sem engin hurð var. Mérfannst hurðinopnastog þessi kona kom þarna út. því þegar einn ættingjanna stóð fyrir framan spegil í því húsi á Bessastöðum sem nefnt er Hjáleigan. Þessi ættingi, sem er kona, sá greinilega í spegli konu sem stóð fyrir aftan hana og taldi fólk að þarna hefði Svartkoppa gert vart við sig. Um svipað leyti var máluð sérstæð v ▼ en eran virtist glaðleg, brosleit og hún kinkaði kolli til konunnar minnar. Meðan veran var á leiðinni fram með rúminu fannst konunni minni leggja um sig algert mátt- leysi. Þá hvarf sýnin. mynd á Bessastöðum. Sólveig Péturs- dóttir Eggerz dvaldi oft á staðnum og segir að ýmislegt hafi gerst, meira að segja um hábjartan dag, sem henni finnst erfitt að skýra. „Ég var inni í einni stofunni að mála og allt í einu gjörbreyttist allt. Ég sá hurð þar sem engin hurð var. Mér fannst hurð- in opnast og þessi kona kom þarna út. Ég get náttúrulega ekki sagt til um hvort þetta hafi verið Appollónía, hún kynnti sig ekki og það hafa fleiri konur dáið þarna. En ég rissaði upp í hroðalegum fljótheitum mynd af því sem ég sá. Seinna þegar ég lýsti húsakynnum, eins og þau birtust mér, fyrir Ásgeiri sagði hann að þau hefðu verið þannig fyrr á öldum. Það vissi ég þá ekkert um. Ég er í sjálfu sér ekki mjög trúuð á svona en þetta gerðist svo greinilega." í annað skipti sá Sólveig húsakynnin á Bessastöðum breytast fyrir augunum á sér og með athugun á gömlum uppdrátt- um virtist Ásgeiri að hún hefði séð stofur eins og þær voru á seinni hluta 19. aldar. Sólveig var ekki fjarri því að Ásgeir hefði sjálfur séð margt óvenjulegt á forseta- setrinu. Það er allavega vitað með vissu að þegar Guðmundur Daníelsson var að vinna að skáldsögu sinni Hrafnhettu, sem vitnað var til hér í upphafi, þá bauð Ásgeir honum að dvelja um hríð á Bessa- stöðum til að kynnast fyrirmyndinni að söguhetju sinni, ef hún væri enn á þess- um slóðum. „Ég held að ég hafi verið þarna í hálfa aðra viku,“ sagði Guðmundur í samtali við HEIMSMYND, „og gerði sérstaka og alvarlega tilraun til að komast í sam- band við vofu eða anda Hrafnhettu. Ég svaf þennan tíma einn úti í gestahúsi sem stundum var kallað fjósið og ég held að heimafólk hafi talið aðstæður allar hlið- hollar mér. Engu að síður sá ég hana hvorki né vitjaði hún mín í draumi eða neitt slíkt. Ég er kannski svona ónæmur á annað líf.“ Ef sú er ástæðan fyrir gæfuleysi Guð- mundar í þetta skiptið má segja hið sama um ættimenni Kristjáns Eldjárns þriðja forseta lýðveldisins. Kristján hafði að vísu mikinn áhuga á sögu Svartkoppu, flutti um hana fyrirlestur á jólarann- sóknaræfingu Mímis og Félags íslenskra fræða fyrir nokkrum árum og var eftir því sem best er vitað að viða að sér upplýs- ingum um hana stuttu fyrir dauða sinn. En engar heimildir eru fyrir því að hann eða hans fjölskylda hafi haft nokkurt ónæði af afturgöngum þau tólf ár sem hann bjó á Bessastöðum. Sigrún dóttir Kristjáns sagði: „Við urðum aldrei vör við hana en kenndum henni um það í gríni sem aflaga fór.“ En það er ekki þar með sagt að jómfrú Appollónía Schwartzkopf sé dauð úr öll- um æðum. Enn er í minnum haft að þegar Vigdís Finnbogadóttir tók við embætti lét hún þess getið að ef Svartkoppa væri á Bessastöðum þá væri henni velkomið að vera þar áfram. Svartkoppa virðist hafa þegið þetta kostaboð því í nýlegri bók eftir Pamelu Sanders, fyrrverandi sendiherrafrú Bandaríkjanna á íslandi, er haft eftir Vigdísi að hún heyri í Svartkoppu um nætur eigra um salina á Bessastöðum, fara úr einu herberginu í annað. „Stund- um kemur hún upp stigann," segir Vig- dís, „og gengur um ganginn fyrir utan svefnherbergi mitt. Og ég tala til hennar, „þú ert velkomin hér. Kæra Appollónía, vertu velkomin á Bessastöðum.“ 64 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.