Heimsmynd - 01.09.1986, Side 68

Heimsmynd - 01.09.1986, Side 68
A ég ekki bara aö koma til ykkar þegar ég er dauö? Hún er fjörutíu og fimm, nett og fínleg og vel til höfð; hárið klippt samkvæmt nýjustu tísku og skartgripirnir allir í stíl, en ekki of áberandi. Ef ekki væri þessi reynslusvipur á fíngerðu andlitinu mætti ætla að hún væri talsvert yngri en hún er og röddin og látbragðið er svolítið stelpu- legt. Hún margafsakar við mig hvað bfllinn sinn sé mikil drusla og það eina sem hún hefur út á Athvarfið að setja er að þar sé allt of mikið drasl. Sjálf hef ég ekið um alsæl í farartækj- um sem bfllinn hennar liti út eins og dollaragrín við hliðina á og draslið í At- hvarfinu sýnist mér varla slaga upp í venjulegt vísitöluheimili. í*ess vegna velti ég því fyrir mér á leiðinni á viðtalsstað, hvað það er meinlegt að einmitt þessi kona, sem leggur svona mikið upp úr að allt sé hreint og fallegt - í röð og reglu -, skuli hafa þurft að lenda á manni sem virðist einbeita kröftunum að því að brjóta niður jafnharðan allt sem hún byggir upp. Hún er búin að vera í Athvarfinu í rúman mánuð núna. í vor var hún þar líka í mánuð, en þetta er vonandi síðasta skiptið, segir hún. Dætur hennar tvær, önnur nítján ára, hin fjögurra, eru með henni. Eldri börnin eru af fyrra hjóna- bandi en það yngsta á hún með seinni manninum, sem hún er nú að sækja um skilnað frá. Við höldum í heiðri regluna um fjölmiðlabann í Athvarfinu og erum þess vegna á leiðinni á skrifstofu samtak- anna í Hlaðvarpanum. Pað er laugar- dagssíðdegi og bærinn er tómur og grár. „Druslunni" leggjum við inni í Mogga- porti, því „Hann“ er alltaf á ferli að svipast um eftir henni og ef hann sér bflinn getur það haft slæmar afleiðingar. Hún er samt ósköp róleg; lítil varúðar- ráðstöfun eins og þetta er bara hluti af hennar hversdagsleika. En ég velti því fyrir mér hvernig það sé að þurfa hvern dag að haga lífi sínu eins og eftirlýstur glæpamaður - án þess að hafa framið glæpinn. Hann má auðvitað heldur ekki vita að við höfum talað saman og meðan ég skrifa þessar línur finn ég hennar hræðslu við hann hríslast um mig. Hvað gerist ef... ? Er ég kannski að gera þessari konu einhvern hræðilegan óleik án þess að vilja það? En hann er búinn að vera eins og hann er og gera það sem hann gerir í svo mörg ár og virðist af frásögn hennar að dæma eiga það sameiginlegt með flestum mönnum sem misþyrma öðrum að til- efnið þarf ekki að koma utanfrá. Hún er ættuð að vestan og ólst upp á rólegu heimili eldri hjóna í afskekktri sveit til sextán ára aldurs, en þá fór hún suður að vinna fyrir sér sjálf. „Móðir mín varð sjúklingur þegar ég var barn, svo ég var sett í vist til þessara rosknu hjóna,“ segir hún. „Ég var eina barnið á heimilinu og átti þarna afskap- lega heilbrigða og góða æsku. Það var ekki ofbeldinu fyrir að fara á því heimili.“ Við förum hratt yfir sögu næstu ára. Hún vann á spítala sem sjúkraliði og þegar hún hefur unnið utan heimilis hef- ur það oftast verið á sjúkrastofnunum. „Einu sinni var ég tvö ár í verslun, en mér fannst þvingandi að standa bakvið búðarborðið. Það á einhvern veginn bet- ur við mig að vinna meðal þeirra sem eru hjálpar þurfi en vera að pranga ein- hverjum vörum inn á ókunnugar konur niðri í bæ,“ segir hún. „Ég giftist fyrri manninum mínum tví- tug og átti með honum tvö börn. Um það hjónaband hef ég eiginlega ekkert nema gott eitt að segja og við vorum líka mjög góðir vinir eftir að við skildum, eða alveg þangað til að ég kynntist seinni mannin- um. Ástæðan fyrir því að við skildum var sú, að það kom annar aðili inn í hans líf; karlmaður. Hann fór sem sagt yfir í hitt kynið. Þó að ég sæi eftir manninum mín- um á margan hátt var ástandið orðið þannig að þessi vinur hans var eiginlega kominn inn á heimilið og ég átti um það að velja að búa með þeim báðum eða skilja. Þetta var auðvitað mikið álag og að mörgu leyti léttir að því að skilja, þó að það hafi verið erfitt eftir fimmtán ára hjónaband. Eftir skilnaðinn var ég síðan ein með börnin í fimm ár, vann úti, hélt góðu sambandi við fyrrverandi manninn minn og leið yfirleitt ágætlega. Á þessu tímabili lagði ég alveg karlmenn á hill- una, var bara ég sjálf með börnunum mínum og þetta var rólegur og góður tími í lífi okkar allra. Auðvitað fór ég stundum út að skemmta mér og það var á skemmtistað sem ég hitti manninn sem átti eftir að verða seinni eiginmaður minn. Hann var víst búinn að taka eftir mér miklu fyrr en ég eftir honum. Faðir hans var drykkjumaður sem lamdi hann þegar hann var lítill og þegar við kynntumst var hann nýskilinn við konu, sem hafði verið drukkin upp á hvern dag síðustu fimm árin í hjónabandinu. Hann hefur því megnustu óbeit á ofneyslu áfengis og fer líka mjög vel með það sjálfur; getur al- veg fengið sér í glas á góðri stundu og finnst gaman að eiga flösku af góðu víni uppí skáp, en hefur aldrei misnotað það. Við stunduðum sama skemmtistaðinn á þessum tíma og hann tók eftir því að ég gat skemmt mér ódrukkin og farið heim karlmannslaus á eftir. Þetta var ein ástæðan fyrir því að hann langaði að kynnast mér nánar, sagði hann mér seinna. Svo þróaðist þetta svona hægt og rólega. Við höfðum bæði gaman af því að dansa og fórum út saman við og við, en ekki mjög oft, því ég var mjög ánægð með mína tilveru með börnunum og ekki í neinni eiginmannsleit. Hann var mat- vörukaupmaður, vann úti á landi og þeg- ar hann kom í bæinn kom hann stundum og færði okkur ýmislegt matarkyns. Ég bauð honum svo í mat í staðinn. Börnin voru mjög hrifin af honum, sérstaklega dóttir mín, sem var á því að þennan mann ætti ég endilega að halda í en ekki „frysta“ eins og flesta sem sýndu mér áhuga á þessu tímabili.“ -Hvernig myndir þú lýsa honum? „Hann var - og er enn í dag - mjög myndarlegur; karlmannlegur, hægur og kurteis í framkomu og reglusamur, sem mér þótti ekki minnst um vert. Hann hefur líka alltaf verið vinnusamur, séð vel fyrir sér og sínum. Peningar voru aldrei vandamál hjá okkur. Tveir bflar á heimilinu og svo framvegis. Svo varð ég ófrísk að dótturinni sem er fjögurra ára núna og hans eina barn. Þá vorum við farin að búa saman í minni íbúð og áður en barnið fæddist giftum við okkur. Hann var mjög góður bæði við mig og börnin til að byrja með. Og eftir á að hyggja finnst mér honum hafa tekist að leyna mig sínum skapbrestum ótrúlega lengi. Að vísu varð honum og dóttur minni stundum sundurorða og ég tók eftir því að hann lét sig stundum hverfa í nokkrar klukkustundir ef honum rann í skap, eins og hann vildi ekki láta mig sjá sig reiðan. Svo hætti hann því og fór að brjóta... Eftir að barnið fæddist fóru reiðiköstin að koma. Oft af engu tilefni, að því er mér virtist, en beindust mikið að sam- bandi mínu við börnin, sem honum fannst allt í einu alltof náið. Núna, þegar hann er að reyna að vinna mig aftur, vill hann allt fyrir þau gera, en þá endaði þetta með því að hann flæmdi þau burt af heimilinu. Þau áttu að sjá fyrir sér sjálf, eins og hann hafði þurft að gera. Þau áttu ekki í annað hús að venda en til pabba síns, sem þegar þarna var komið sögu var kominn út í óreglu og eiturlyf, þó að ég gerði mér ekki grein fyrir því fyrr en að nokkrum tíma liðinum." -Hvernig lýstu þessi reiðiköst sér? „Hann braut allt og bramlaði, lagði hreinlega allt í rúst. Ég átti, þó ég segi sjálf frá, mjög fallegt heimili, sem ég var búin að byggja upp á löngum tíma. En þegar hann reiðist. eyðileggur hann allt sem hönd á festir. í vetur sem leið kom sá dagur að ekki var til eitt einasta óbrot- ið drykkjarílát á heimilinu og á tímabili var ég farin að láta þann vegginn, sem oftast varð fyrir barðinu á honum, standa auðan. Það tók því ekki að vera að hengja upp myndir eða annað, bara til þess að láta rífa það niður jafnóðum. Hann verður líka svo óhugnanlega sterk- 68 HEIMSMYND
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.