Heimsmynd - 01.09.1986, Qupperneq 69

Heimsmynd - 01.09.1986, Qupperneq 69
HÁKONARDÓWR ur þegar hann reiðist. Til dæmis tók hann einu sinni húsbóndastólinn, sem var eng- in smásmíði, og henti inn í næsta her- bergi. Þegar allt er um garð gengið og heimilið ein rúst, þá er þetta „ekkert mál“ fyrir honum. Það má bara kaupa nýtt í staðinn fyrir það sem búið er að eyðileggja og það er líka gert. En þá kaupir hann eitthvað sem ég kann ekki ? við, því ég fæ engu að ráða um hvað hann kaupir í staðinn og það nýja hefur ekki alltaf sama gildi og það gamla. Ég hætti að vinna þegar ég var ófrísk og hef verið heima mestalla okkar sambúð. En þetta var orðið þannig, að jafnvel þó að hann væri í vinnunni vissi ég varla hvernig ég ætti að vera til þess að þóknast honum og lenda ekki í vand- ræðum. Hann var ekki bara afbrýði- samur út í samband mitt við börnin, held- ur ofboðslega tortrygginn út í allt og alla. Hann átti það til að setja kílómetramæl- inn í mínum bíl á núll áður en hann fór í vinnuna, svo hann gæti séð hvað ég hefði keyrt mikið yfir daginn. Ég var komin með símann út í glugga svo ég gæti séð hvenær hann kæmi heim ef ég var að tala við einhvern, annað hefði kostað yfir- heyrslur og jafnvel brothljóð og barsmíð- ar. Ef ég var að tala í síma við dóttur mína þegar hann var heima, sagði hann að ég talaði svona lágt til þess að hann heyrði ekki hvað mér og henni færi á milli, en öskraði svo á sig. Eins og þú heyrir þá liggur mér ekki mjög hátt róm- ur,“ bætir hún við og það er alveg rétt. Það er erfitt að ímynda sér þessa konu öskra á einn eða neinn. „Hann var líka á tímabili kominn með síma í hvert einasta herbergi í húsinu svo hann gæti alltaf svarað fyrstur. Hann er nefnilega húsbóndi á sínu heimili," segir hún og breytir ekki um tóntegund þó hún bregði fyrir sig kaldhæðni. „Ég breyttist líka smám saman. Á daginn þorði ég varla að hreyfa mig, fannst hann alltaf vera á eftir mér. Á kvöldin átti ég helst að vera inni í stofu þar sem hann var að horfa á sjónvarpið, en ekki í eldhúsinu eða annars staðar í húsinu, sama hvort það hentaði mér eða ekki. Ég þurfti allt- af að hugsa mig vandlega um áður en ég talaði; á ég að segja þetta? Á ég að segja hitt? Næturnar fóru líka í þras og rifrildi, hann átti það til að halda manni vakandi til morguns og ég var orðin ofboðslega langþreytt þegar ég kom fyrst í Athvarf- ið. Éftir að ég var komin þangað gat ég ekki farið út fyrir hússins dyr án þess að rekast á hann „af tilviljun“, svo á endan- um hætti ég hérumbil alveg að fara út úr húsinu. Þetta er aðeins skárra núna í seinna skiptið, en hann fylgist samt með mér... Stundum er eins og hann sé alls staðar, ég geng fyrir horn og þá er hann þar, svo kem ég heim og þá er hann í símanum að spyrja hvar ég hafi verið og hvað að gera. Hann hefur ekki lagt á mig hendur nema þrisvar. En þá hefur hann líka reynt að kyrkja mig, sagst ætla að ganga frá mér og næstum tekist það. í fyrstu tvö skiptin var „ástæðan" eitthvað sem ég sagði, ég man ekki einu sinni hvað, sem honum líkaði ekki. Minningin um þriðja skiptið er hins vegar alveg á hreinu. Sonur minn bjó heima í vetur. Þetta kvöld hafði hann skroppið í bæinn með vinum sínum og hringdi heim til þess að láta vita af því að hann kæmi ekki í kvöldmat. Rétt fyrir klukkan ellefu kemur hann svo heim, segir eitthvað á þá lund að það hafi ekki verið neitt gaman í bænum og spyr mig skömmu seinna hvort hann megi ekki fá sér mjólkurglas og kexköku í eldhúsinu. Auðvitað mátti hann það, en þegar stjúpi hans sér hann sitja við eldhúsborðið ræðst hann á hann, slær mjólkurglasið úr höndunum á honum og segir: „Hér er enginn matmálstími núna.“ Þá var sonur minn nýbúinn að borga 1.000 krónur heim eins og hann gerði í hverri viku og þegar ég sá að nú átti að fara að leggja hendur á börnin líka var mér allri lokið. Sonur minn rauk út og ég á eftir og leitaði í fyrsta og eina skiptið ásjár hjá tengdaföður mínum. Hann sagði mér að hundskast heim til mín aftur, þetta væri minn maður og mitt vandamál, en gaf mér þó fyrir leigubflnum til baka. Við ætluðum varla að þora heim, vissum ekk- ert hvað biði okkar. En þegar við kom- um að húsinu var það aldimmt, svo að við ályktuðum að hann væri annað hvort farinn út eða sofnaður. Ég bað samt leigubflstjórann að hinkra og kalla á lög- regluna ef ég kæmi ekki út og gæfi hon- um merki eftir ákveðinn tíma. Svo fórum við inn. Hann stökk á okkur í myrkrinu áður en við náðum að kveikja ljósin og tók okkur bæði hálstaki. Ég hef aldrei orðið eins hrædd á ævinni. Ég hélt að honum myndi takast að drepa okkur bæði. En leigubflstjórinn hafði strax gert sér grein fyrir því að eitthvað var að og kallað á lögregluna. Hún kom og stöðvaði leikinn en gerði ekkert meira í málinu, af því að hann var ekki undir áhrifum áfengis. Eða réttara sagt: Þeir gerðu allt sem hann vildi. Ég var tekin afsíðis „til þess að róa mig niður,“ af því að hann sagði þeim að ég væri svo æst á taugum, og á meðan bauð hann þeim kaffi og fór að ræða við þá viðskiptamál. Ég var með fingraför á hálsinum og stóra kúlu á enninu en einn þeirra sagði að ég yrði að „safna stórum bunka af áverkavottorðum“ áður en nokkuð væri hægt að gera í málinu. „Á ég ekki bara að koma til ykkar þegar ég er dauð?“ spurði ég og hann sagði: „Jú, þú gætir reynt það, vinan. Svona eru reglurnar og lögin. Við megum berja konurnar okkar.“ Ég ætlaði að fara í Athvarfið þessa nótt, lögreglan sagði að það eina sem þeir gætu gert fyrir mig væri að fara með mig þangað. En af því að hann kom í veg fyrir að ég gæti haft litla barnið með mér hætti ég við en fór svo skömmu seinna þegar svipað ástand var í uppsiglingu. Þetta var ekki í eina skiptið sem kallað var á lögregluna, en það var alltaf sama sagan; af því að maðurinn var ekki drukkinn var ekkert hægt að gera.“ -Hvernig líður þér núna? „Mér finnst ég vera orðin of gömul til þess að búa við eitthvað sem er ekki meira virði en þetta og mér finnst heldur ekki hægt að bjóða litlu barni upp á að alast upp við brothljóð. „Pabbi brjóta allt,“ var fyrsta heila setninginin sem hún HEIMSMYND 69
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140

x

Heimsmynd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.