Heimsmynd - 01.09.1986, Side 77

Heimsmynd - 01.09.1986, Side 77
^ fórnarlambið væri. „Alveg eins og hann væri að spyrja um einhverja gæs,“ segir hún. Hún stóð þá upp við vegginn. Flestir nærstaddir vissu að hún var í taugaáfalli. Myndin sem blasti við lögreglumönnun- um var hins vegar af hávaxinni, glæsilegri konu. Auðvitað sáu þeir líka að á andlit- inu voru áverkar og fötin tætt og rifin. Andlit sem ef til vill hafði einhvern tíma brosað við einhverjum þeirra utan á for- síðu á blaðsölustað. María svaraði hon- um. Og hún svaraði honum þannig að framkoma hans breyttist. Þegar hún rifjar upp þessa þjáningar- ' stund úr lífi sínu og ekki síður þær þján- mgarstundir sem komu í kjölfarið, talar hún um mikilvægi þess viðmóts sem fórn- arlambi nauðgunar er sýnt. „Lögreglan reyndist mér vel. Ég var í skyndi flutt á sjúkrahús og þar kom ung- ur læknakandídat sem augsýnilega kunni ekki sitt fag. Vonandi hefur sá öðlast ^ meiri manngæsku og skilning síðar en á þessari stundu var hann rangur maður í hlutverkinu Hann bað mig að snúa mér við og sprautaði mig með pensillíni. Ég spurði hann á eftir hvað gerist ef ég hef nú ofnæmi fyrir pensillíni. Hann svaraði í kæruleysistón um leið og hann gekk út, uö þá fengi ég krampakast innnan nokk- urra mínútna. Síðar kom inn í sjúkraher- hergið ung kona. Hún var frá samtökum kvenna sem berjast gegn nauðgunum. Að öllum líkindum fórnarlamb sjálf. Hún var skilningsrík og vissi nákvæmlega hvert var hennar hlutverk á þessari stundu. Hún sagðist ætla að vera þarna ef eg þyrfti á henni að halda. Hún spurði hvort ég vildi sígarettu eða tyggigúmmí. Síðan tók lögreglan af mér skýrslu. Þeir spurðu mjög nákvæmlega um það sem nefnt er method of operation hjá ofbeld- ■, ismanninum. Stundum er hægt að kom- ast þannig á sporið ef vitað er nákvæm- Iega um hátterni og aðferðir ofbeldis- mannsins." Nokkrum dögum síðar, segir María að sami maðurinn hafi líkast til verið aftur á ferð, þegar konu var nauðgað í annarri skrifstofubyggingu í New York, einnig á auðri hæð. „Sú kona var ófrísk, komin sJö og hálfan mánuð á leið og missti harnið. í kjölfar þessarar vitneskju akvað ég að fara í mál við eigendur bygg- •ngarinnar þar sem mér hafði verið uauðgað, á þeirri forsendu að auð hæð og opinn væri tilvalinn vettvangur fyrir glæpi af þessu tagi.“ Lögfræðingur Maríu undirbjó málið mjög vel. Aðdragandinn var langur og hin eiginlegu réttarhöld fóru ekki fram fyrr en árið 1980. „Þetta var ekki prófmál en hins vegar fyrsta málið af þessu tagi sem vannst,“ segir hún. „í kjölfarið var Á það fyrir mér að liggja að vera bútuð í sundur á mannlausri hœð, verða afskrœmt lík sem enginn þekkir og enginn muni nokkurn tíma vita um þann óhugnað sem hér átti sér stað. eigendum bygginga af þessu tagi meinað að hafa auðar skrifstofuhæðir opnar,“ segir hún. Hún vann málið og fékk skaðabætur. „En það voru engar bætur í raun, þótt um einhverja fjárhæð hafi verið að ræða. Sá skaði sem ég hlaut er óbætanlegur. Hefði ég vitað á haustdögum 1976 hversu langan tíma það tæki mig að jafna mig á þessari reynslu, hefði ég ef til vill gefist upp á þeirri stundu." Hún rifjar upp fyrstu mánuðina á eftir. Hvernig sumir vinir hafi reynst henni ótrúlega vel. En hvernig vantraust á öll- um og ótti hafi búið um sig í sál hennar. Hvernig hún eyddi heilu klukkustundun- um í baði eins og til að afmá þá reynslu sem hafði borað sig inn í sálarlíf hennar og engin sápa gat máð út. Hún rifjar upp mánuði sem hún gekk á lyfjum gegn þunglyndi, tíma hjá sálfræðingum og stöðugan ótta. Hún talar um andlegan doða, baráttuna við að vilja deyja og baráttuna við að þrauka hvern dag í senn. „Og þetta var ekki aðeins nokk- urra mánaða tímabil,“ segir hún. „Það tók mig alla vega sjö ár að læra að lifa með þessum hryllingi. Eftir svona reynslu verður maður aldrei samur,“ seg- ir hún og bætir við að vonandi sé það einstaklingsbundið og vonandi nái marg- ar konur sér fyrr en hún hafi gert. Hún segir að margir hafi spurt sig um hvort þetta atvik hafi haft áhrif á afstöðu hennar í garð karlmanna. Hún segir slíkt út í hött. „Nauðgari er ekki karlmaður, heldur sálarlaust kvikindi, stútfullt af við- bjóði og þörf til að koma fram einhverj- um hefndum á fórnarlambi sínu.“ María segir það til dæmis athyglisvert varðandi þessa spurningu um hvort fórn- arlamb nauðgunar yfirfæri reynslu sína yfir á karkyn almennt, að þegar réttar- höld í máli hennar stóðu yfir, hafi lög- fræðingur hennar tjáð henni þá von sína að í kviðdóminum sætu sem flestir karl- menn. „Af hverju? Jú,“ svarar hún sjálf. „Þessi lögfræðingur minn vildi höfða til verndartilfinningar karlmanna. Hann vildi höfða til dætra þeirra, systra eða eiginkvenna. - Hvað myndir þú gera ef þetta henti þína eigin dóttur, konu eða systur?“ Þegar María segir þetta færist sorgar- svipur yfir andlit hennar en hún er jafn- framt reið. „Það er ekki síst aðstandenda að koma til móts við fórnarlömbin. Sum- ar konur upplifa nauðgun sem slíka smán að þær þora ekki að segja frá henni. Og ég get ekki skilið hvernig einhver að- standandi eða aðstandendur fórnarlambs geta lifað með það á samviskunni að hafa aðstoðað við að hilma yfir slíkan glæp, sökum einhverra fáránlegra for- dóma frá fyrri tímum, Iíkt og sökin væri fórnarlambsins. Sjálf get ég ekki hugsað þá hugsun til enda, hver yrðu mín við- brögð ef þetta henti einhvern mér ná- kominn." Sjálf hefur María verið mörgum öðr- um konum innan handar sem síðar hafa orðið fyrir þessari ömurlegu reynslu. Hún verður aftur döpur á svip þegar hún segist finna hvað margar þeirra eigi, „langt í land að læra að lifa með hryll- ingnum," eins og hún orðar það. Hún segir það ólíklegt að fólk geti sett sig í spor þeirra sem sætt hafi ofbeldi og nauðgun. „Ég bið fólk um skilning og umburðarlyndi í garð fórnarlamba. Það má hafa hugfast í þessu samhengi fræga setningu Jóns Hreggviðssonar úr íslands- klukkunni: Hvenær drepur maður mann...? HEIMSMYND 77
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.