Heimsmynd - 01.09.1986, Page 94

Heimsmynd - 01.09.1986, Page 94
Jack Nicholson sem Jake Gittes í Chinatown. Nina Van Pallandt og Elliot Gould í The Long Goodbye árið 1973. A sjöunda áratugnum kom enn ein hetjan til skjalanna sem enn er með okkur. Þetta var geð- sjúklingur með kvittun frá ríkinu upp á að hann mœtti drepa. Á sjötta áratugnum fór hinn heiðvirði spæjari úr tísku og í staðin kom löggan, eða vísindamaðurinn í gráum flannelsföt- um. Á sjöunda áratugnum kom enn ein hetjan til skjalanna sem enn er með okk- ur. Þetta var geðsjúklingur með kvittun frá ríkinu upp á að hann mætti drepa. (James Bond, Dirty Harry, John Rambo) Svar þessara manna við illsku heimsins var að skjóta á allt kvikt. Engir leynilögreglumenn á hvíta tjaldinu hafa notið viðlíkra vinsælda. Samt sem áður virðist sem þjóðfélagsumrót á sjöunda áratugnum hafa kveikt nýjan áhuga á spæjaranum sem heldur heiðri sínum með því að vinna utan kerfisins. Árið 1969 var myndin Marlowe gerð. Fjórum árum síðar var myndin The Long Good- bye framleidd. í Marlowe er reynt að gera söguna nútímalega með því að sviðsetja verkið í Los Angeles samtímans með blómaæði og bardagamönnum sem létu fætur skipta. Robert Altman gerði The Long Goodbye árið 1973. Þar var Marlowe leikinn af Elliot Gould og móttökur að- dáenda einkaspæjarans voru blendnar. í Englandi gerði Stephen Frear Gumshoe og það er háðfærsla á Chandler , Ham- met ogfilm noir. Jafnvel Burt Reynolds mætti til leiks og gerði grín að The Big Sleep í myndinni Shamus. Ljóst var að róttækra endurbóta þurfti við til að endurvekja Chandler hefðina ef hún átti ekki að lognast út af. Dean Tavoularis gerði Farewell My Lovely 1975 og Robert Mitchum lék aðalhlut- verkið. Hann var að margra mati orðinn heldur gamlaður fyrir hlutverkið. f gerð The Big Sleep 1978 var Marlowe fluttur að heiman og látinn starfa á enskri grund. Þótti það til lítilla bóta. Á síðasta áratug hafa verið gerðar nokkrar myndir í hefð og anda einka- spæjaramyndarinnar. Af þeim er China- town ef til vill mesti í anda Chandlers. Robert Towne er handritshöfundurinn og stjórnandi er Roman Polanski. í myndinni er söguhetjan J.J. Gittes leidd inn í dimmari sannleika en Marlowe nokkurn tímann, þar á meðal sifjaspell. Tvær athyglisverðustu myndir í anda Chandlers á níunda áratugnum eru Cutt- ers Way, 1981 og Blade Runner, 1982. Báðar myndir sækja til leynilögreglu- sagna. Heimurinn er hráslagalegur í Blade Runner. Sögusviðið er Los Angeles árið 2019 og myndin er í anda film noir. Fatn- aður söguhetjanna er í tísku fimmta ára- tugarins og Harrison Ford talar yfir myndina í anda Marlowes. Ford er sér- lega heiðarlegur maður sem er útbrunn- inn í óþverralegu starfi. Hann eyðir eft- irmyndum af mönnum sem við komumst að því að hafa meiri reisn heldur en raunverulegir menn. Eins og við er að búast af Marlowe týpunni þá snýst Ford að lokum á sveif með mannlegri reisn og verður meira að segja hrifinn af einni eftirmyndinni. Einkaspæjarahefðin lifir þrátt fyrir Rambóa, Bonda og Mad Max. Það er því góður möguleiki á að einhverj heyri í huganum Harrison Ford eða jafnvel ís- lenskan stórleikara tala yfir götumynd- inni þegar hann gengur út á regnvott stræti í Reykjavík, ja.. segjum árið 2019. 94 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.