Heimsmynd - 01.09.1986, Side 96
Hvíta tjaldið í París var heldur dauft.
Af og til komu ungar og nýjar kvik-
myndaleikkonur fram á sjónarsviðið, ein
tók við af annarri án þess að það vekti
nokkra verulega athygli. Því miður virt-
ust þær flestar ósköp keimlíkar og skorti
yfirleitt þau persónu- eða útlitseinkenni
sem svo oft virðist skipta sköpum. Pær
höfðu ekki fyrr birst á tjaldinu en flestir
voru búnir að gleyma þeim. Einhvern
veginn tókst engri þeirra að fá fólk til að
muna eftir sér, að gera greinarmun á sér
og einhverri vinsælu stjörnunni frá því í
fyrra.
Svo kom Beatrice Dalle. Og hún var
ólík öllum hinum. Það var leikstjórinn
Jean-Jacques Beineix, sá er leikstýrði
Diva, er hratt Dalle fram á sjónarsviðið í
myndinni 37 gráður að morgni, 37 Le
Matin. Myndin sem nýlega var frumsýnd
fjallar um stormasamt ástarævintýri
ungrar konu og rithöfundar. Hún ryður
úr vegi öllum hindrunum svo þau megi
njótast. Hún er saklaus en sterk og gefur
honum nýja innsýn í lífið og tilveruna.
En það eru takmörk sem hún ekki
skynjar og smám saman missir hún vitið.
Fyrir honum er aðeins ein leið til að
hjálpa henni og það er að binda endi á líf
hennar, svo hún verði ekki lokuð inni á
hæli.
Áhorfendur skynja í lok myndarinnar,
ekki aðeins harmleikinn, heldur að
stjarna er fædd. Ný Brigitte Bardot. Nýtt
franskt kyntákn. Hún er aðeins tuttugu
og eins árs gömul. Húðin er eins mjalla-
hvít og hárið er blakkt og án efa mun hún
ráða ríkjum á hvíta tjaldinu í náinni
framtíð. Hún er þegar á forsíðum tíma-
rita beggja megin Atlantsála, þótt hún
sjálf lýsi sér sem of feitri og alls ekki
fallegri. Hún hefur óskaplega kyntöfra
og enginn er ósnortinn af henni. Augun
eru stór og brún, varirnar eru þrýstnar og
göngulagið næstum eins og í mynd, sem
er sýnd hægt. Og fæstir áhorfendur munu
eftir Sólveigu Anspach
gleyma f svip nektarsenum af líkama
hennar í þessari nýju mynd Beineix. En
leikstjórinn hefur sjálfur lýst því yfir að
hann hreinlega elski að horfa á hana í
gegnum linsuna og maður skilur svo sem
af hverju. Auk þess virðist persónu-
leikinn það sterkur að hún fyllir út í
tjaldið með orku sinni og nærveru.
Þá er sagan um uppgötvun Beatrice
Dalle næstum eins óraunveruleg og sög-
urnar á hvíta tjaldinu sjálfu. Einhver
ljósmyndari sá hana á götu og tók af
henni mynd fyrir hálf óþekkt myndablað.
Þar var hún máluð og klædd eins og
einhver nútíma Lolita. En frán augu
leikstjórans Beineix sáu hvað hugsanlega
bjó að baki, þegar hann af tilviljun fletti
þessu blaði.
Og nú er hún orðin eftirsóttasta kyn-
Beatrice Dalle í hlutverki sínu í nýjustu mynd
Jean-Jacques Beineix ásamt mótleikara sínum,
Jean-Hugues Anglade. Honum er einnig spáð
miklum frama.
tákn Frakka. Sjálf segist hún hins vegar
vera siðprýðin uppmáluð. Eiginmannin-
um kynntist hún á diskóteki. Hann er 27
ára gamall myndlistarmaður og heitir
Jean-Francois.
„Heima fyrir geng ég aldrei um alls-
nakin,“ segir hún. „Og þegar ég er í
rúminu með manninum mínum finnst
mér mjög skemmtilegt að sauma út um
leið og við horfum á sjónvarpið.“ Hún
hikar hins vegar ekki við að fækka fötum
fyrir framan myndavél Beineix, sem hún
álítur mikinn hæfileikamann. En nýjasta
myndin hans þykir ein besta franska
kvikmyndin sem gerð hefur verið í langa
tíð. Hún segist hins vegar ekki sólgin í
fleiri hlutverk af þessu tagi. Helst vill hún
aldrei framar birtast nakin á hvíta tjald-
inu. Þetta er aðvörun!
Það eina sem þessi unga konq segist
virkilega hafa áhuga á er hamingjusamt
hjónaband. „Mig langar líka til að
eignast þrjá syni.“ Hún leynir því þó ekki
að peningar freista hennar. Hún þarf að
kaupa alla smáhlutina sem stjörnur geta
ekki verið án. Eins og Marilyn Monroe
söng eru demantar bestu vinir stúlkn-
anna. Og Beatrice á örugglega eftir að fá
nóg af þeim. Þá langar hana í loðfeldi.
Nokkur stykki. Það væri líka gaman að
eignast glæsilegan bíl og góða íbúð í
hjarta borgarinnar. Og síðast en ekki síst
langar hana að gefa Jean-Francois allt
sem hugur hans girnist.
Beatrice Dalle veit hvað hún vill. Og
trúið mér, hún mun fá það sem hugur
hennar girnist fyrr en hún sjálf heldur.
Það er afar langt síðan nokkur kona á
hvíta tjaldinu hefur átt hug og hjörtu
franskra bíógesta. Henni hefur tekist
það. Hvort henni hefur! Ég vona bara að
Beatrice Dalle gefist kostur á að velja og
hafna öllum þeim tilboðum sem eiga eftir
að streyma til hennar. Ég vona að henni
gefist tækifæri til að sýna meira en sinn
þokkafulla líkama.
96 HEIMSMYND