Heimsmynd - 01.09.1986, Síða 112
„Enginn deilir um hver er hljóm-
sveitarstjórinn.í(
framfæri. Áöur en árið var liðið var ég
kominn í heilmikil sambönd við hljóð-
upptökuver og lykilmenn í bransanum og
var á bólakafi að reyna að hasla mér völl
sem tónlistarmaður þar. Hugmyndin um
Stuðmenn var þó ekki dauð. Ég var þá
þegar viss um að Stuðmenn væru hug-
mynd, alveg sérstök hugmynd, sem gæti
átt framtíð fyrir sér.“
„Á meðan ég höstlaði af alefli í
London var Spilverk Þjóðanna sett á
laggirnar af Valla, Agli Ólafssyni og Sig-
urði Bjólu. En ég gat ekki gleymt Stuð-
mönnum og gerði mér grein fyrir að þar
væri alveg sérstakt apparat á ferðinni.
Við Valgeir höfðum frá stofnun Stuð-
manna bætt hvor annan upp á alveg sér-
stakan hátt. En hann er mjög skemmti-
legur og safaríkur einstaklingur, sem og
þeir allir. En til að gera langa sögu stutta,
þá hafði ég samband við hann og ítrekaði
ósk mína um gerð Stuðmannaplötu. Ég
undirbjó jarðveginn síðan með þeim
samböndum sem ég var búinn að koma
upp í London, leigði stúdíó, tónlistar-
menn og upptökumenn. Það var ljóst að
Egill og Bjóla myndu geta orðið hin
besta viðbót við hljómsveitina en Tómas
var þegar inni í myndinni, enda búsettur í
London. Ég taldi þá á þetta og benti
þeim jafnframt á möguleikann að gera
eina Spilverksplötu í leiðinni. Sjálfur var
ég af undangenginni reynslu orðinn tals-
verður einstaklingshyggjumaður og
fannst afar eðlilegt að vera titlaður upp-
tökustjóri plötunnar. Það þýddi að minn
hlutur var eitthvað aðeins meiri en
þeirra. En þetta gerði ég vegna þess að
nafngiftin gat fært mér frekari störf sem
slík. Þetta stríddi hins vegar stórlega
gegn félagshyggjuhugsjón þeirra, það er
að ég sem fjármagnaði plötuna í upphafi
skyldi ætla mér að vera titlaður fremstur
meðal jafningja. Og þarna stóð ég and-
spænis þessum þremur sósíalistum og
vissi ekki mitt rjúkandi ráð. Hins vegar
kom Sumar á Sýrlandi út stuttu síðar og
sló öll met á íslenskum hljómplötumark-
aði. Þetta olli fyrstu alvarlegu misklíðinni
á milli okkar. Og ég vil segja að tíminn
hafi síðar, ekki aðeins læknað sárin,
heldur sett hlutina í perspektíf. Það
hvarflar ekki að neinum okkar núorðið
að rífast um svona hluti. Síðasta áratug-
inn hafa hlutirnir gengið upp og niður en
við erum enn við lýði og verðum áfram.
Hlutverkaskipting er komin á hreint.
Enginn deilir um hver er hljómsveitar-
stjórinn. Valgeir er afkastamesti semjar-
inn í hópnum sem í eru tíu manns og
stundum fleiri. Egill og Ragnhildur eru
mestu og bestu túlkendurnir. Þórður og
Ásgeir eru hinir eiginlegu virtuosar
hljómsveitarinnar hvað hljóðfæraleik
snertir og Tómas og Júlíus hafa mest vit á
hljóðupptökum og tæknihliðinni. Þetta
er eðlileg og skýr verkaskipting sem
komið hefur í tímans rás og enginn deilir
um lengur."
Sú var þó tíðin að Valgeir gekk úr
Stuðmönnum og Egill, Tómas og Þórður
stofnuðu Þursaflokkinn. Jakob fór hins
vegar til Los Angeles.
Hann hafði kynnst Önnu Björnsdótt-
ur, sem hafði um skeið starfað sem ljós-
myndafyrirsæta í London. Hljómleika-
ferð Jakobs ásamt Long John Baldry
leiddi þau til Los Angeles, þar sem þau
giftu sig nokkru síðar og stofnuðu heim-
ili. „Hennar uppgangur var mun meiri en
minn sem og tekjur. Hins vegar gekk
mér ágætlega í tónlistarheiminum, stofn-
aði til ýmissa sambanda og hafði sæmi-
legar tekjur, þótt þær væru ekkert á borð
við hennar. Á þessu tímabili, sem spann-
aði ein fimm ár, kom ég alltaf reglulega
heim til íslands og átti íbúð í Tjarnar-
götunni í Reykjavík. Stuðmenn toguðu
alltaf í mig. Við höfðum í kjölfar Sumars
á Sýrlandi gert aðra plötu, Tívolí, og í
kjölfar hennar gerði ég mína fyrstu sóló-
plötu, Horft í roðann, sem á óbeinan hátt
opnaði dyrnar til Warner Brothers. í Los
Angeles gerði ég síðan fjórar plötur und-
ir eigin nafni og hafa tvær þeirra komið
út í Bandaríkjunum og víðar.
Er líða tók á Los-Angeles dvölina
smitaðist ég æ meir af kvikmyndaáhuga.
Fyrstu afskipti mín af kvikmyndagerð
voru heimildamynd um íslenska innflytj-
endur til Brasilíu árið 1980. Síðar eftir að
Stuðmenn tóku upp þráðinn að nýju
gerðum við kvikmyndina Með allt á
hreinu og síðan varð Nickelfjallið að
veruleika, bandarísk kvikmynd sem ég
framleiddi 1983. 1985 gerðum við svo
kvikmyndina Hvíta máva og nú er í
vinnslu kvikmyndin Stuðmenn í Kína.“
Kveikjuna að kvikmynd þeirra Með
allt á hreinu, sem frumsýnd var 1982,
112 HEIMSMYND