Heimsmynd - 01.09.1986, Page 130
FOLK
VALDIMAR
Unni Arngrímsdóttur hjá Módelsam-
tökunum var falið að finna íslenskan
þátttakanda. Þórunn Elva hafði verið á
námskeiði hjá henni í framkomu og Unn-
ur bað hana að koma í viðtal. Hafði síðan
samband aftur og sagði Þórunni að hún
hefði verið valin. Þórunn hafði annars
litla reynslu úr fegurðar- og sýningar-
bransanum.
Hún hugsaði sig vandlega um áður en
hún tók því að verða fulltrúi íslenskra
frúa í alþjóðlegri keppni. Taldi samt að
það myndi veita sér þroska á nýjum svið-
um. Þá er keppnin haldin á Honolulu á
Hawai og eyjan hefur alltaf heillað Þór-
unni. Hún segir að hún hefði ekki getað
farið nema með aðstoð foreldra sinn.
Það þarf síðan kjól, föt og skartgripi við
ýmis tækifæri og allt er þetta dýrt. Hún
missir einnig þrjár vikur úr skólanum i
haust vegna fararinnar en ætlar samt að
slá til.
Nú er Þórunn ekki beinlínis sú kven-
gerð sem maður á von á að sjá í verk-
fræðinámi í háskólanum. Ljóshærð, förð-
uð og með langar lakkaðar neglur. Hún
segir frá því að hún hafi legið á spítala
síðasta vetur og hjúkrynarkonurnar hafi
varla trúað því að hún væri í verkfræði
með þessar neglur. „En ég vil vera kven-
leg. Læra samt. Mér finnst að konan eigi
að vera hún sjálf jafnframt því sem hún
berst fyrir jafnrétti við karlmenn."
Maður Þórunnar Elvu heitir Hafsteinn
Eggertsson og er í tannlækningum í há-
skólanum. Hann er einu ári eldri en hún
og búinn með þrjú ár af sex. í sumar
vinnur hann sem gjaldkeri í Verslunar-
bankanum en Þórunn er að vinna hjá
fyrirtæki sem heitir Rafís hf. Það er hluti
af námi hennar.
-En eru ekki fáar stúlkur í verkfræði
við háskólann?
Þórunn segir að verkfræðin virðist vera
eitt af síðustu vígjum karmannanna. Af
um það bil fimmtíu manns í verkfræði í
háskólanum eru einungis þrjár stelpur.
Henni finnst það mjög furðulegt. „Ég
held að þetta sé líka dálítið konum að
kenna,“ segir hún. „Þær vantreysta sér. í
fimmta og sjötta bekk menntaskóla
verða hvörf. Þá eru stelpurnar sem eru
búnar að vera samviskusamar frá því að
þær voru sjö ára orðnar leiðar. Strákarn-
ir eru hins vegar búnir að rasa út.“ Þór-
unn segir að verkfræðin taki nær allan
tíma sinn á veturna. Hún er í tímum frá
átta til sex alla vikuna og þarf að skila
skýrslum og dæmum vikulega í öllum
fögum. „Barn rúmast ekki í þessu námi,“
segir hún. Venjulegur dagur líður þannig
að hún fer í skólann og er þar til kvölds.
Hún fer beint eftir skólann á safn og er
þar til tíu eða hálfellefu. Hún og maður
hennar lesa oft á sama safninu. Annars
hittast þau heima og elda saman matinn
og fara síðan að sofa. Laugardagskvöldin
eru einu fríkvöldin.
-Er barn á stefnuskránni?
Því finnst Þórunni erfitt að svara. Hún
hefur áhuga á að ljúka framhaldsnámi í
rafmagnsverkfræði áður en það verður.
Hún þarf að bíða eitt ár eftir manni
sínum eftir að hún er búin með fyrrihluta
hér heima. Þá eru eftir tvö ár í viðbót
erlendis. Það þýðir að hún getur orðið
móðir tuttugu og sjö ára og það finnst
henni allt í lagi.
Fulltrúi okkar í keppninni um titilinn
frú Heimur segir að á heimili sínu ríki
algert jafnrétti. Ekki þvingað jafnrétti
eins og sums staðar er. Hún segir að
maðurinn sinn sé oft að strauja þegar
hún komi heim. Mesti kosturinn við jafn-
réttið sé þegar báðir aðilar finni hjá sjálf-
um sér hvað á að gera. Maður Þórunnar
er einnig búinn að vera mjög jákvæður í
sambandi við keppnina. Þórunn er búin
að vera að æfa sig að ganga heima og
hann hefur hjálpað henni. Hún hefur
annars fengið þjálfun í framkomu og
göngu hjá Módelsamtökunum og sýnir
þrisvar í viku með þeim til að æfast í að
koma fram. Þá stundar hún líkamsrækt
og maður hennar, sem er fótboltamaður,
er farinn að stunda hana með henni og
það finnst henni skemmtilegra.
-En er ekki erfitt að þurfa að koma
fram í sundbol í keppninni?
„Það er meðal annars þess vegna sem
ég var ekkert sérlega hrifin,“ svarar Þór-
unn. „Það er að sumu leyti ágætt hvað
keppnin er langt í burtu frá íslandi. Ég
mundi halda að ég ætti erfiðara með að
ganga í sundbol á sviðinu hér í Broad-
way. Auk þess snýst þessi keppni ekki
bara um útlitið heldur líka eitthvað
meira. Ég reyni að vera landi og þjóð til
sóma. Mér finnst Hófí hafa staðið sig vel.
Ég kann svo vel við hvað hún er róleg og
eðlileg. Hún hefur ekki orðið stærilát. Ég
hef hugsað mér að reyna að vera fulltrúi
ungu konunnar. Ég ætla að leitast við að
vera ég sjálf,“ segir Þórunn og nú er bara
að vona að hún bæti enn einum titlinum í
safn okkar íslendinga.
Valdimar Örn Flygenring leikari alías
Skarphéðinn Njálsson eða eigum við að
segja Calvin Klein - átti langalangalang-
afa sem hét Þórður og bjó á Fiskilæk í
Leirársveit í Borgarfirði. Og Þórður
þessi sigldi til Hafnar til að læra að smíða
kirkjur. Meistarinn sem hann vann hjá
hét Flygenring og var barnlaus. Þegar
hann kvaddi íslendinginn Þórð í hinsta
sinn sagði hann: Ef þú eignast erfingja á
fslandi, lofaðu mér þá því að láta hann
heita Flygenring.
Löngu seinna þegar Þórður eignaðist
erfingja minntist hann loforðsins við sinn
gamla meistara. Og það var ekki að
sökum að spyrja, barnið var skýrt
Flygenring. Þannig nam danska ættar-
nafnið Flygenring land á íslenskri grund.
Og hver veit nema að nafnið eigi eftir að
hasla sér völl víðar, ef fram fer sem horfir
að Valdimar Örn verði tákn tískukóngs-
ins bandaríska Calvin Klein.
En hvernig stóð á því að Valdimar Öm
fór að nema leiklist?
Hann segir að slíkt hafi legið lengi í
loftinu. „Ég var að vísu búinn að vinna
alls konar störf til sjós og lands áður en
ég lenti í Leiklistarskólanum. Þó var það
ekki eingöngu tilviljun sem réði því.“
-Þú útskrifaðist í fyrra og ert strax
kominn inn fyrir þröskuldinn á atvinnu-
leikhúsunum og í aðra skálmina á þekkt-
ustu gallabuxum heims. Hvers vegna
gengur þér svona vel?
„Ástæðan er einföld. Hún er sú að ég
hef verið í höndunum á góðu fólki. Og
eitt er víst að leiklistin á mig allan.“
-Valdimar hefur verið að leika í kvik-
mynd í sumar og það hefur farið heldur
hljótt um þá mynd. Hvers vegna?
„Það stóð aldrei til að auglýsa þessa
mynd upp hérna á íslandi. Það er banda-
rísk kona sem gerir þessa kvikmynd og
hún heitir Nitska Keene. Kvikmyndin
ber hins vegar nafnið The Juniper Tree.
Efnið er sótt í eitt af ævintýmm
Grimmsbræðra. Ætli það heiti ekki Eini-
berjarunnurinn á íslensku."
-Og nú þurfið þið væntanlega að tala
ensku í þessari mynd?
„Við tölum að sjálfsögðu með íslensk-
um hreim en það gerir ekkert til því
myndin á að gerast í Norður-Skandinavíu
fyrir langa löngu. Það eru fjórir íslenskir
leikarar sem leika í þessari mynd. Auk
mín eru það Björk söngkona í hljóm-
sveitinni Kukl, Bryndís Bragadóttir, sem
lék Hildigunni í Njálssögu í sumar, og
130 HEIMSMYND