Heimsmynd - 01.03.1991, Side 58
MJÚKU KONURNAR
líkama því sambandið er víst við líkama
úr fyrri lífum; og Audrey Hepburn fékk
óverðskuldaðan óskar árið 1953 fyrir leik
sinn í kvikmyndinni Frídagar í Róm og
sýndi okkur þar náttúrulausa prinsessu
sem lifir tvöföldu lífi. Hún er einna fræg-
ust fyrir að leika nunnu. Árið 1964 lék
hún Elísu Doolittle í kvikmyndaútgáf-
unni af söngleiknum My Fair Lady sem
er byggður á leikriti náttúrulausasta leik-
ritaskálds sem nokkurn tíma hefur verið
uppi: George Bernard Shaw. Hepburn
gat reyndar ekki sungið svo það varð að
fá aðra konu til að syngja fyrir hana í
kvikmyndinni.
Sú sem lék hlutverk Elísu á sviði, áður
en söngleikurinn var kvikmyndaður, Jul-
ie Andrews, gat hins vegar sungið. Hún
gat og getur líka leikið en hún fékk ekki
að beita neinum kyntöfrum árum saman
vegna þess að hún festist í sterílli ímynd
úr Tónaflóði og Mary Poppins. Loksins
fyrir fimm árum fékk Júlía greyið að
sýna þann kvenleika sem í henni býr í
Dúett fyrir einn. En það var reyndar að-
eins of seint svo það hafði ekki mikið að
segja fyrir hana, frama hennar og fjöl-
hæfni sem leikkonu.
Eiginmaður hennar, leikstjórinn Blake
Edwards, hefur hins vegar orðið frægur
fyrir að selja kynþokka ekki síst hjá Bo
Derek. Hún fékk víst ekki tíu fyrir leik
sinn í 10 (1979) en hins vegar gaf Dudley
Moore, eða karakterinn sem hann lék í
myndinni, henni ellefu fyrir kynþokka.
Ljósmyndin af Bo í flæðarmálinu í
blautri skyrtu gerði sitt til að selja kvik-
myndina (miðar seldust fyrir 37 milljónir
dollara í Bandaríkjunum einum) en
margir urðu fyrir vonbrigðum með
myndina ekki síst vegna þess að ljós-
myndin af Blautu-Bo í skyrtunni var alls
ekki í kvikmyndinni.
Annars er það einkennilegt með
- Diane Keaton sígiit náttúruleysi
uppmálað.
- Barbara Streisand
Gyðinganef úr gulli.
- Glenda Jackson útvegar George Segal
getuleysi.
FRÍÐLEIKI,
KULDI OG LÍK-
AMSDOÐI
Tvær leikkonur
fylgja fast eftir í kjöl-
farið sem Greta Gar-
bo skildi eftir sig.
Það eru Marlene
Dietrich í tíma,
dirfsku og raddbeit-
ingu; hún bryddar
- Sofia Scicolone (Sophia Loren). Tign-
arleg, munúðarfull, þrýstin. Möndlulaga
augu og munnur í stíl við þau. Hún kom
sér upp hinu aðdáunarverða vaxtarlagi
með því að borða nóg af spagetti.
- Simone Signoret Einn stærsti persónu-
leikinn á hvíta tjaldinu. Hlý, tilfinninga-
rík, viðkvæm, sterk, gáfuð, einbeitt,
mögnuð, gyðingur, vinstrisinnuð.
Ogleymanleg í Fíflaskipinu (1965).
Júlíurnar í Hollywood; þær eiga það all-
ar sameiginlegt að vera sterkir persónu-
leikar en illa og kennslukonulega vaxn-
ar: Julía Róberts varð að fá lánaðan ann-
an líkama í Pretty Woman; Júlía Christie
gerðist svo kynköld gagnvart Hollywood
og karlmönnum að nú getur enginn
huggað hana nema konur; og Julía And-
rews naut sín best í Mary Poppins sem
var eins langt frá því að haga sér og vera
vaxin eins og Marilyn Monroe sem hugs-
ast getur.
Systir Audrey Hepburn, Katherine
Hepburn (sem reyndar var ekki systir
hennar), átti líka í vandræðum með lík-
ama sinn. Hún bætti upp skortinn á kyn-
þokkafullum línum í vexti sínum með því
að Ieika þeim mun betur og nældi sér í
fleiri óskara en aðrar leikkonur, alls
fjóra. Það var næstum sama hvað hún
lék, allt gerði hún það af snilld. Hún var
einstaklega frjó og skapandi listakona en
tók þá ákvörðun að vera ekki frjó í
einkalífinu. í valinu: allt fyrir listina eða
allt fyrir heimilið, valdi hún listina. Hún
hélt síðan við einn besta leikarann í
Hollywood, Spencer
Tracy, og þar eignað-
ist hún traustan vin.
Ekki verður framhjá-
haldi betur fyrir
komið en var hjá
þeim því hjónabandi
hans var alls ekki
ógnað með ást hans á
Katrínu. Tracy var
nefnilega kaþólskur
og mátti því ekki
ganga í gegnum
hjónaskilnað.
58 HEIMSMYND