Heimsmynd - 01.06.1991, Page 12
STJÚRNMÁL/
Herdís Þorgeirsdóttir
HVER FER
í HÁSÆTIÐ?
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson - reyndi maðurinn
DVERGARNIR EIGA LEIKINN
Sá einn er góður skipstjóri sem hefur vit
á því að þjálfa upp góðan stýrimann. Val
nýs borgarstjóra í Reykjavík bendir til
þess að Davíð Oddsson borgarstjóri, nú
formaður Sjálfstæðisflokks og forsætis-
ráðherra íslands, hafi verið allt í senn
skipstjóri, stýrimaður og bátsmaður.
Hann hefur nú sama sem yfirgefið skút-
una og eftir standa hásetarnir hálf ráð-
villtir og bendir ýmislegt til uppreisnar
um borð.
A undanförnum árum hefur oft verið
talað um Davíð og dvergana sjö (að vísu
eru borgarfulltrúarnir níu auk Davíðs).
Þarna er engin Mjallhvít sem bíður þess
að prinsinn veki hana úr dái. Og þarna
er ekki hægt að bregða spegli á loft sem
svarar afdráttarlaust hver sé fríðastur í
hópnum.
Tæplega hundrað þúsund Reykvíking-
ar bíða þess nú hver verði í forsvari fyrir
þá næstu þrjú árin - og það skiptir þá
máli. Það voru tugir þúsunda sem veittu
Davíð Oddssyni umboð til þess vorið
1990. Aldrei hafði annar eins sigur unnist
í kosningum um borgina og þá. Sú staða
sem er komin upp núna á sér heldur ekki
hliðstæðu allt frá því að Jón Þorláksson,
þáverandi formaður Sjálfstæðisflokks,
varð borgarstjóri 1933. Þessi dansk-
menntaði verkfræðingur, eins og forveri
hans Knud Ziemsen, flutti með sér and-
blæ og formfestu danskrar embættis-
mannahefðar þegar hann tók við borg-
inni. Við af honum tók Pétur Halldórs-
son og stjórnaði hann borginni til ársins
1940.
Bjarni Benediktsson lagaprófessor var
Katrín Fjeldsted - menntakonan
borgarstjóri á árunum 1940 til 1947. Þá
tók við af honum dr. Gunnar Thorodd-
sen. Gengu þessi skipti mjúklega fyrir sig
eins og ekkert væri sjálfsagðara enda
hæfileikamenn á ferð. Geir Hallgrímsson
sem einnig var löglærður og hafði stund-
að nám við Harvardháskóla þótti sjálf-
sagður krónprins í embætti borgarstjóra
þegar Gunnar Thoroddsen tók sæti í
Viðreisnarstjórninni 1959. Auður Auð-
uns sat við hlið Geirs sem borgarstjóri í
tæpt ár en hann gegndi stöðunni til árs-
ins 1972 við fádæma vinsældir. Þessir þrír
borgarstjórar, Bjarni, Gunnar og Geir,
mörkuðu allir djúp spor í stjórnmálasögu
íslenska lýðveldisins.
Áður en Geir fór út í landsmálapóli-
tíkina hafði hann þjálfað Birgi Isleif
Gunnarsson, ungan lögfræðing með geð-
þekkt yfirbragð og listræna hæfileika, til
að taka við af sér. Birgir Isleifur varð
síðar að líða fyrir það að tapa borginni í
hendur vinstrimanna í kosningunum
1978. Næstu árin var Egill Skúli Ingi-
bergsson skipaður borgarstjóri og þegar
Sjálfstæðisflokkurinn endurheimti meiri-
hluta sinn 1982 varð Davíð Oddsson
borgarstjóri. Hann var þá 34 ára gamall
og ólíkur forverum sínum um margt þó
hann væri lögfræðimenntaður eins og
þeir. Þessi ungi borgarstjóri kom úr öðru
umhverfi, fæddur á Selfossi og alinn upp
hjá einstæðri móður. Hann hafði verið
oddviti borgarstjórnarflokksins í stjórn-
arandstöðu, leiddi flokkinn til sigurs og
„tók við embættinu með stæl“ eins og
núverandi borgarfulltrúi orðar það. Dav-
íð tók djarfar ákvarðanir og fylgdi þeim
eftir af slíkri hörku að forvera hans hefði
ekki dreymt um slíkt. Svo mikil var eljan
að hann gleymdi því að þegar hann einn
Árni Sigfússon - ungi maðurinn
góðan veðurdag léti af skipstjórninni og
tæki við útgerðinni yrði hann að hafa
kláran arftaka í brúnni til að tryggja vel-
gengni útgerðarinnar, í þessu tilfelli
Sjálfstæðisflokksins, um ókomna tíð.
Davíð hefur verið uppnefndur kon-
ungur og sumpart minnir hann á Lúðvík
XIV. Líkt og sólkonungurinn forðum
hefur Davíð ríkt í Reykjavík á glæstasta
tímabili í sögu borgarinnar. Lúðvík XIV.
þráði frægð ofar lífinu sjálfu og dýrðar-
ljóma umfram allar ástríður. Hann los-
aði sig við alla ráðherra og var gersam-
lega einráður. í 54 ár vann hann átta
tíma á dag og fylgdist grannt með mál-
um, hvort sem þau snerust um hirðsiði,
hernað, vegalagnir eða guðfræðilegar
deilur.
Að vísu er ofurvald Davíðs í borgar-
stjórnarflokknum eitthvað orðum aukið.
„Við létum markvisst fara lítið fyrir okk-
ur og okkar verkum svo Davíð fengi not-
ið sín,“ segir einn þeirra fulltrúa sem nú
er líklegur arftaki hans. „En því fer fjarri
að hann hafi verið með puttana í öllum
okkar málum.“ Nú þegar Davíð Odds-
son er að skilja við embætti sitt sem
borgarstjóri eru margir og ugglaust fleiri
en nokkru sinni áður sem renna hýru
auga til hásætisins. Reykjavíkurborg er
stærsta og glæsilegasta „fyrirtæki“ lands-
ins. Nýi borgarstjórinn sest inn á skrif-
stofu í höllinni við Tjörnina, með einka-
bílstjóra og limósínu fyrir utan. Olíkt
öðrum stjórnarherrum þessa lands er
embætti borgarstjóra ekki þrautaganga á
milli slæmra valkosta. Borgin er ríkt fyr-
irtæki með aragrúa af vel þjálfuðum
embættismönnum sem lúta leiðsögn
borgarstjórans. Afgerandi meirihluti
Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn gerir það
12 HEIMSMYND