Heimsmynd - 01.06.1991, Page 59
fylgdi jafnan einn lífvörður en að þessu sinni er hann hvergi
sjá^nlegur enda líklega ekki talin þörf á honum. Jagger geng-
ur hröðum og ákveðnum skrefum þangað sem ég sit. Hann er
klæddur Ijósgrænum mittisjakka, svörtum buxum, rúllukraga-
bol og það glittir í grændoppótta sokka. Hann hefur límt hvíta
sultukrukkumiðann á jakkann, rétt eins og allir aðrir. „Mick,“
segir hann um leið og hann heilsar með handabandi og fær sér
sæti. „Mikið er hann mjór,“ hugsa ég um leið og ég tek í
höndina á honum og kynni mig. Það kemur á óvart hversu
unglegur hann er og vel á sig kominn líkamlega þegar haft er í
huga að hann er ekki lengur neitt unglamb. Ég finn hvernig
andrúmsloftið verður rafmagnað í návist hans og mér finnst
ótrúlegt að hann sitji þarna á móti mér, frægasti rokkari
heims. Eftir örstutta þögn brýtur hann ísinn með því að spyrja
hvort Atlanta hafi ekki komið
ánægjulega á óvart. Hann talar með
mjög sterkum breskum hreim og það
er greinilegt að margra ára sambúð
með Texasmærinni Jerry Hall hefur
ekki haft áhrif á málfar hans. Hann
er sérlega alúðlegur og það er ekki að
finna vott af hroka í fari hans þar sem
hann situr með krosslagða fætur í gal-
tómu anddyri þessarar miklu bygg-
ingar.
ið spjöllum
og ég spyr
vegna hann
að taka að sér
um myndina
hann hvers
hafi ákveðið
þetta til-
Vtekna hlutverk eftir að
hafa gert nærri tveggja
áratuga hlé á kvikmynda-
leik. „Þetta bar allt mjög
brátt að,“ svarar Jagger.
Hann er afslappaður, ör-
uggur og á auðvelt með að
tjá sig. „Ég var staddur í
London í janúar á þessu ári þegar
mér var boðið þetta hlutverk.“ Þar í
borg á Jagger hús þar sem hann
dvelst gjarnan ásamt eiginkonu sinni
og börnum tveim, Elísabetu og Jam-
es. Reyndar á fjölskyldan jafnframt
fjögur önnur hús, eitt í New York,
annað í Frakklandi og búgarða í Tex-
as og á eyjunni Mustique í Karíbahafi
þar sem þau dvelja oft í jólafríum
ásamt tveim eldri dætrum Jaggers,
Jade (dóttur Biöncu) og Karis. „Ég
fekk að lesa handritið og leist stax
nokkuð vel á. Það kom hins vegar
dálítið flatt upp á mig þegar í ljós
kom að ætlunin var að hefja tökur á
myndinni innan tveggja til þriggja
vikna. Mér datt eiginlega ekki annað
í hug þegar mér var boðið hlutverkið
en að verið væri að ræða um verkefni
fyrir næsta sumar. Það var annað-
hvort að hrökkva eða stökkva.
Reyndar held ég nú að ef ég hefði
haft lengri tíma til að hugsa mig um hefði ef til vill aldrei orðið
neitt úr þessu en ég er ánægður með hvernig fór því mér finnst
hlutverkið spennandi.“ Hann talar heldur lágt og hægt, kann-
ski vegna þess að ég er útlendingur, og gefur sér tíma til að
velta spurningunum fyrir sér. „Það á tvímælalaust betur við
mig að leika skúrk eins og Vacendak en hetju. Vacendak er
verulega illur og rætinn náungi og hann sinnir starfi sínu, sem
er að drepa fólk, af sérstakri eljusemi og áhuga. Ætli það hafi
ekki einmitt verið illkvittnin í fari hans sem heillaði mig,“ seg-
t a
b
agger situr við eldliús-
borðið og les tímaritið
Vanity Fair meðan Helga
klippir hár hans. Öðru hverj
les hann upphátt upp úr blað-
inu eins og til að skemmta
viðstöddum.
ir Jagger og bætir síðan við og hlær, „og það að hann er ekki
rokkstjarna. Ég sakna þess hins vegar að persóna mín stendur
ekki í neinum ástarsamböndum. Ég fæ til dæmis aðeins að
segja tvær setningar við Rene alla myndina þannig að ástalíf
mitt á hvíta tjaldinu er heldur tómlegt," segir Jagger og glott-
ir. „Það má ef til vill bæta úr því í framtíðinni,“ segir hann síð-
an og ég get ekki stillt mig um að ímynda mér hvernig hann
tæki sig út í ástarsenum í Free-Jack II.
Kvennamál Jaggers hafa alla tíð vakið mikla athygli. Kon-
urnar í lífi hans hafa allar verið áberandi og glæsilegar en þó
mjög ólíkar. Chrissie Shrimpton var fyrsta kærastan sem hann
birtist með opinberlega. Sagt er að þau hefðu gifst hefði Mick
ekki skyndilega orðið frægur. Hún var há, grönn og dökkhærð
en ósköp venjuleg stúlka. Síðan var það Marianne Faithfull,
dóttir austurrískrar barónessu og
bresks fræðimanns. Hún ól Jagger
upp í menningarlegu tilliti, kenndi
honum að meta fagrar listir, kynnti
hann fyrir óperu og ballett, sagði
honum hvaða bækur hann ætti að
lesa og fyllti hús hans af glæsilegum
fornmunum. A þessum tíma lék hún
meðal annars í leikritum eftir Shake-
speare og kveikti það áhuga Jaggers á
leiklist. Það vakti mikla athygli þegar
þau voru handtekin árið 1969 fyrir að
hafa kannabisefni í fórum sínum.
Marianne leiddist síðan út í heróin.
I upphafi áttunda áratugarins kom
Bianca Pérez Mora Macias frá Ník-
aragúa til sögunnar. Hún var há-
skólamenntuð og þótti sérlega glæsi-
leg. Um samband þeirra var sagt að
aðeins þann tíma sem Jagger var gift-
ur henni hafi ímynd hans einkennst af
glæsimennsku, eiginleika sem Jagger
hefur ávallt metið mikils. Brúðkaup
þeirra var haldið í St. Tropez í Suður-
Frakklandi og var einn allsherjar
rokksirkus. Bianca hneykslaðist á
öllu tilstandinu og síðar sagði hún að
brúðkaupsdagurinn hefði markað upp-
hafið að endalokum hjónabandsins.
Á eftir Biöncu kom Jerry Hall.
Hún var komin á fremsta hlunn með
að giftast Bryan Ferry, söngvara
Roxy Music, þegar Jagger tók að
gera hosur sínar grænar fyrir henni.
Um nokkurra vikna skeið flakkaði
hún á milli þeirra meðan hún var að
gera upp hug sinn. Jagger linnti hins
vegar ekki látunum fyrr en honum
hafði tekist að ræna henni frá Ferry
og notaði til þess tækifærið þegar
Roxy Music var í hljómleikaferðalagi
um Austurlönd. Jerry sem er fimm-
tán árum yngri en Jagger er ein af
fimm dætrum flutningabílstjóra frá
Texas. Árum saman hefur hún verið
ein hæst launaða fyrirsæta heims og
hefur nú hafið framleiðslu á eigin
baðfatalínu. Hinn 21. nóvember á síðasta ári gengu þau í
hjónaband. Jagger virðist hafa lært af mistökunum því í þetta
sinn fór brúðkaupið fram við fámenni á eyjunni Bali. Dóttirin
Elisabeth var blómastúlka og James kveikti á kertum. „Ég
held að giftingin breyti í sjálfu sér engu,“ segir Jerry í nýlegu
viðtali, „en ég er glöð yfir því að við drifum í þessu.“ Það er
ekki nema von að hún sé ánægð því hún hefur beðið eftir gift-
ingu í 13 ár og bæði börn þeirra fæddust utan hjónabands sem
þykir hneyksli í Suðurríkjunum þar sem Jerry er alin upp.
U
HEIMSMYND 59
HEIMSM914-14og16